Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Page 48
28. júní 2019 26. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Skeifan 6 / Harpa / Kringlan /Laugavegur 70 / 5687733 / www.epal.is Svanurinn á tilboði* HÖNNUN: ARNE JACOBSEN * Tilboðið gildir frá 1. maí - 1. september 2019 · Áklæði: Christianshavn - 26 möguleikar á litum Verð: 449.000.- Tilboðsverð: 379.900.- Tvennutilboð? Hermann og Alexandra H ermann Hreiðarsson, fyrrverandi atvinnu- maður í knattspyrnu, og Alexandra Fanney Jóhannsdóttir flugfreyja eiga von á barni. Parið hefur ver- ið saman í nokkurn tíma og skráðu sig í sambandi á Face- book í ágúst í fyrra. Parið mætti í brúðkaup hjá vinum sínum í maí og birti Alexandra myndir af þeim á Instagram með orðunum: „Þessi þrjú skemmtu sér kon- unglega síðustu helgi ásamt dásamlegu fólki. Takk fyrir okk- ur.“ Alexandra á fyrir einn son og Hermann tvær dætur. MYND: INSTAGRAM @ALEXANDRAFANNEY Elsa María og Þórir Snær Blessað barnalán K vikmyndaparið Elsa María Jakobsdóttir og Þórir Snær Sigurjónsson eiga von á barni. Elsa María er útskrifuð sem leikstjóri frá Den Danske Filmskole í Kaupmannahöfn, en hún starfaði áður í Kast- ljósinu hjá RÚV. Þórir Snær er einn eigenda og stofn- enda framleiðslufyrirtækisins Zik Zak kvikmyndir og fram- kvæmdastjóri dreifingar- og framleiðslufyrirtækisins Scan- box. MYND: FACEBOOK. Einar Kára ljóstrar upp öllum atvinnuleyndarmálunum H efur þig alltaf dreymt um að vera rithöf- undur? Nú getur þú lært af einum vin- sælasta rithöfundi þjóðarinnar, Einari Kárasyni, en hann hefur í samstarfi við vefsíðuna Frami.is útbúið vefnámskeið sem skiptist í 16 fyrirlestra. „Ég er sannfærður um að skriftir liggja mis- jafnlega fyrir mönnum, eins og það geta ekki all- ir orðið góðir knattspyrnumenn, en hafi menn metnað á þessu sviði og einbeiti sér þá er mjög margt hægt,“ segir Einar. „Fyrir þá sem hafa metn- að og löngun þá er hugmyndin að létta þeim fyrstu skrefin með því að miðla af reynslu, bæði minni og margra annarra. Ég er svona fag-idjót, hef verið lengi í þessu og mjög áhugasamur um til dæmis vinnu annarra höfunda, les ævisögur þeirra og hitti kollega. Það er eitt og annað sem getur auðveldað manni að komast af stað.“ Einar hefur gefið út fjölda metsölubóka á 40 ára ferli, þar á meðal þríleikinn um Djöfla- eyjuna: Þar sem djöflaeyjan rís, Gulleyj- an og Fyrirheitna landið. Hann hef- ur fjórum sinnum verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norð- urlandaráðs og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2008. Einari var stillt upp fyr- ir framan tökuvél og var hann spurður fjölda vel útfærðra spurninga um þetta helsta, hvað þarf að athuga og hverju þarf að gæta að, til dæmis hvað varðar stíl, sköpun persóna og sjónarhorn. „Ég sló til þar sem ég hugsaði að ég hefði feginn viljað fá svör við ýmsu þegar ég byrj- aði sjálfur frá einhverjum sem var búinn að vera lengur í þessu. Ég hugsaði að líklegt væri að þetta myndi gagnast einhverjum sem væri að byrja,“ segir Einar, sem hef- ur áður kennt kúrsa í Kvikmyndaskóla Ís- lands fyrir mörgum árum. „Ég lúri ekki á neinu,“ segir Einar að- spurður um hvort hann ætli að ljóstra upp öllum atvinnuleyndarmálum sínum og spurður hvort hann sé ekki hræddur við samkeppni svarar hann: „Það er nóg pláss og það þarf að vera endurnýjun í þessu.“ n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.