Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 15
t jniaainuj.. FIMMTUDAGUR 29. APRIL 1999 Gísli S. Einarsson Jóhann Ársælsson Breytum rétt www.samfylking.is Það gera sér allir Ijóst, nema verjendur gjafakvótakerfisins, að stjórnkerfi fiskveiða stenst hvorki gagnvart stjórnarskrá né réttlætiskennd fólks. Þess vegna vill Samfylkingin: Nýtt stjórnkerfi fiskveiða Samfylkingin vill að nýtt stjórnkerfi fiskveiða taki gildi í síðasta lagi árið 2002. Markmið þess eiga að vera verndun nytjastofna og hagkvæm nýting þeirra, traust atvinna og öflug byggð í landinu. Á því byggist framtíð okkar. Auðlindina í þjóðareign Samfylkingin vill tryggja í stjórnarskrá eignar- hatd þjóðarinnar á auðlindinni í sjónum, taka sanngjarnt gjald fyrir afnot af henni og gæta jafnræðis fólks til nýtingar á auðlindinni. Öðruvísi verður ekki komið í veg fyrir einkaeignarrétt á fiskinum í sjónum. Rjúfa vítahringinn Samfylkingin vill losa nú þegar um eignarhald á fiskistofnum til að tryggja nýliðun í sjávarútvegi og koma i veg að lífsbjörg heitla byggðarlaga Lendi á markaðstorgi, með úthlutun byggðakvóta eða öðrum sambærilegum hætti. Það er forsenda sáttar um nýja tíma í sjávarútvegi. Vistvænar veiðar Við endurskoðun á stjórnkerfi fiskveiða veröur að gæta sérstaklega að stöðu báta- og smábátaútgerðar og taka tillit til umhverfis- sjónarmiða. Þannig eru best tryggðir hagsmunir fólks og náttúru. i

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.