Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 7
gSlSSUiíöBRÍ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 7 Skæð lungnapest í sauðfé í Borgarfirði Bændur bregðast skjótt við Fyrir skömmu varð vart við lungnapest í sauðfé á bænum Kalmannstungu í Hvítársíðu. Pestin grandaði sjö ám á bænum áður en hægt var að bregðast við henni með viðeigandi lyfjagjöf. Lungnapestin lýsir sér þannig að ærnar fá mikinn hita og andþyngsli og verða lystarlitlar. Þá er þróttlítill hósti eitt af einkennunum. Algeng- ast er að ærnar séu veikar í einn til tvo sólarhringa áður en þær drepast af völdum sjúkdómsins en í mörg- um tilfellum lifa þær sjúkdóminn af. Sjúkdómurinn er smitandi og smitast fyrst og fremst við öndun. Skjót viðbrögð I því slyni að bregðast við pestinni héldu þeir Sigurður Sigurðarson dýralæknir á Keldum og Halldór Runólfsson yfirdýralæknir fund með bændum í Hvítarsíðu, Hálsa- sveit, Reykholtsdal og Flókadal síð- stliðinn miðvikudag. Fundurinn var haldinn í Brúarási og hann sóttu velflestir fjárbændur af svæðinu. Að sögn Sigurðar Sigurðarsonar hefúr lungnapest í sauðfé verið landlæg víða um landið en á Vestur- landi hefúr hennar aðeins orðið vart fjórum sinnum áður. I þetta sinn er hinsvegar um að ræða af- brigði sem er áður óþekkt hér á landi og skæðara en það sem al- gengast er og því var brugðist hratt við að sögn Sigurðar. Ekki niðurskurður „Það verður ekki gripið til niður- skurðar eða annarra opinberra að- gerða vegna pestarinnar en við vonumst til að bændur á þessu svæði sýni samstöðu um að bólu- setja fé sitt til að koma í veg fýrir útbreiðslu," sagði Sigurður. A fundinum samþykktu viðstadd- ir bændur einróma að bólusetja sitt fé og að hvetja aðra sem eiga upp- rekstur á Arnarvatnsheiði til að gera slíkt hið sama. Bólusetja þarf fullorðnar ær tvisvar sinnum í vor, einu sinni í haust og tvisvar næsta vor. Ekki þarf að bólusetja lömbin þar sem þau fá mótefni með mjólk- inni. Hver skammtur af bóluefninu kostar f5 krónur. G.E. Varaeintakasafn Þj óðsW alasafhsins í Reykholti Aðeins tveir buðu í verkið í síðustu viku voru opnuð tilboð í endurbætur á skólahúsinu í Reykholti en þar verður komið fyrir varaeintakasafiii Þjóðskjala- safnsins. Eins og flestum er kunnugt lagðist skólahald í Reykholti af fyrir tveimur árum og í kjölfarið var leitað leiða tál að nýta byggingar skólans. Heimavist skólans var leigð út til hótelreksturs. Þar hefur Hótel Reykholt verið rekið í rúmt ár og gengið með miklum ágætum sam- kvæmt upplýsingum Skessuhorns. Síðastliðið haust var síðan ákveðið að sjálft skólahúsið skyldi í framtíð- inni hýsa varaeintakasafn Þjóð- skjalasafnsins. Áður en af því getur orðið þarf að leggja í viðamiklar endurbætur á húsinu. Kosmaðará- ædun vegna endurbótanna hljóðaði upp á 68. 464.000 kr. Aðeins tvö til- Vífill aðstoð- arrektor Vífill Karlsson lektor við Sam- vinnuháskólann á Bifföst var nýlega skipaður aðstoðar- rektor skólans. Eins og áður hefur komið fram í Vtfill Karlsson. Skessuhorni var Runólfur Ágústsson sem gengt hefur embættinu verið skipaður rektor ffá og með næsta skólaári. Jónas Guðmundsson sem gengt hefur starfi rektors undanfarin ár fer til ffamhaldsnáms í Bandaríkj- unum í sumar. Einnig hefur skólinn fastráðið þrjá nýja kennara frá 1. ágúst að telja. Þeir eru Kjartan Broddi Bragason, Oddný Mjöll Arnardót- tir og Gylfi Gíslason. I samtali við Skessuhorn sagði Runólfur Ágústsson að aðsókn að skólanum væri góð í allar deildir hans. Byrjað er að vinna úr umsóknum og hafa nokkrir verðandi nemendur þegar fengið staðfesta skólavist næsta skólaár. Tekið verður við fleiri umsóknum ffam á vorið, að sögn Runólfs. -MM boð bárust í verkið og voru þau 78.508.671 kr. en hitt tilboðið átti bæði töluvert yfir kostnaðaráætlun. Pémr Jónsson trésmíðameistari á Sólfell ehf átti lægra tilboðið kr. Hvanneyri kr. 80.316.188 kr. Dalabyggð Kjörskrá Vegna alþingiskosninga 8. maí 1999 verður kjörskrá lögð fram almenningi til sýnis miðvikudaginn 28. apríl 1999. Kjörskráin mun liggja frammi á bæjarskrifstofunni á venjulegum opnuartíma skrifstofunnar. Athugasemdir við framlagða kjörskrá skulu berast undirrituðum fyrir 8. maí 1999. J i © Kjörskráin mun liggja frammi á skrifstofu | Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal 1 Búðardal 27. apríl Bæjarstjóri f*re.nta& á encfaruinnaníegan pappír r BORGARBYGGÐ Auglýsing um kjörskrá Kjörskrá Borgarbyggðar vegna alþingiskosninganna, sem fram eiga að fara 8. maí n.k. liggur frammi, á almennum skrifstofutíma, á bæjarskrifstofunni að Borgarbraut 11. V. Bæjarritari. ________J Rdidas Predator kr. 10.900 Rdidas Predator^ kr. 5.390 Rdidas Tektral kr. 6.290 Reebok Prestige kr. 9.990 Reebok Valonw^ kr. 3.690 Nike Jr Roma kr. 2.990 skessuh@aknet.is www.vesturland.is Akranes Kjörskrá Vegna alþingiskosninga 8. maí 1999 verbur kjörskrá lögð fram almenningi til sýnis miðvikudaqinn 28. apríl 1999. Kjörskráin mun ligcjja frammi á bæjarskrifstofunni a venjulegum opnunartíma skrifstofunnar. Athugasemdir við framlagða kjörskrá skulu berast undirrituöum fyrir 8. maí 1999. Kjörskráin mun liggja frammi á bœjarskrifstofunniStillholti 16-18, 3. hœb. fram oð kjördegi. Akranesi 27. apríl 1999. (1 Bæjarritari.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.