Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 19 ðniiisaunu^. Ársfimdur lífeyrissjóðs Vesturlands Ársfimdur Lífeyrissjóðs Vestur- lands var haldinn í Gistáheimili Olafsvíkur þann 19. apríl sl. A fundinum var ársreikningur fyrir árið 1998 kynntur, einnig var kynnt breytt fjárfestingastefna sjóðsins og lífeyrisskuldbindingar (tryggingafræðileg staða) sjóðsins miðað við árslok 1998. Nokkrar breytingar voru gerðar á samþykkt- um sjóðsins. Breytingarnar fela m.a. í sér að hjón geta frá og með 1. maí nk. skipt á milli sín réttindum í lífeyrissjóðnum eða skipt útborg- uðum ellilífeyri. Staða sjóðsins hefur styrkst mjög á undanfömum ámm m.a. vegna betri ávöxtunar og lægri rekstrar- kostnaðar. Ávöxtun sjóðsins var 6,88% og hrein raunávöxtun sjóðs- ins miðað við vísitölu neysluverðs var 6,65%. Hrein ávöxtun síðustu fimm ára er 9,0%. Rekstrarkostn- aður sem hlutfall af meðaltali hreinnar eignar var 0,22%. I árslok 1998 var hrein eign til greiðslu lífeyris 5,5 milljarðar en það er hækkun um 11,4% á milli ára. Greiddur lífeyrir var 181,8 milljónir, sem er hækkun um 10,3%. Innborguð iðgjöld vom 341,5 milljónir, en það er hækkun um 14,8%. Þann 1. júlí 1998 fékk Lífeyris- sjóður Vesturlands leyfi hjá fjár- málaráðuneytinu til að hefja starf- semi séreignardeildar. Á árinu 1998 borguðu þrír rétthafar til séreignar- deildarinnar, en það sem er af árinu 1999 hefur þeim fjölgað í tæplega 40. Sú fjárhæð sem greidd er í sér- eignardeild, ásamt áunnum vöxt- um, erfist við andlát og greiðist út eftir sérreglum. Samkvæmt útreikningi á lífeyris- skuldbindingum (tryggingafræði- legri úttekt) í árslok 1998 em eign- ir sjóðsins umfram skuldbindingar 321 milljónir eða 2,9%. I samræmi við þessa góðu stöðu sjóðsins var samþykkt á ársfundinum að hækka þá reiknistuðla, sem réttindi sjóðfé- laga em reiknuð út frá, um 7% miðað við 1. júlí 1999. Reiknistuðl- ar fyrir elli- og örorkulífeyri hækka úr 1,4 í 1,5 og stuðull vegna maka- lífeyris hækkar úr 0,7 í 0,75. Á ársfúndi 1996 var samþykkt að allir sjóðfélagar, sem áttu réttindi hjá lífeyrissjóðnum miðað við 1. janúar 1996, fengu 7% hækkun á réttindi sín vegna góðrar stöðu sjóðsins. Með góðri ávöxtun og að- haldi í rekstri hefur Lífeyrissjóður Vesturlands getað, með þessum tveimur hækkunum á stuttum tíma, aukið réttindi sjóðfélaga sinna um- talsvert. I stjórn sjóðsins eru, Sigrún Clausen formaður, Rakel Olsen, Einar Karlsson, Gylfi Þórðarson, Þórir Páll Guðjónsson og Kristján Jóhannsson. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jónas Dalberg. Skrif- stofa sjóðsins að Kirkjubraut 40, Akranesi, er opin virka daga frá 10- 16. (Fréttatilkynning) „Vesturlandsskógar“ Pennínn Nú eru merk tímamót í skóg- rækt. Fyrir nákvæmlega 100 árum voru fyrstu plönturnar gróðursettar í furulundinn á Þingvöllum. Þetta varð upphaf- ið að íslenskri skógrækt. Þessa afmælis verður minnst með ýmsum hætti. Fyrir Vestlend- inga er kannski mikilvægust af- mælisgjöfin, sem landbúnaðar- ráðherra færði okkur þann 15. apríl. Þá setti hann á stofn starfshóp til undirbúnings „Vesturlandsskógum“. Með Vesturlandsskógum er átt við verkefni á borð við Suður- landsskóga og Héraðsskóga með þátttöku margra tuga bænda, er stundi bæði skjólbeltarækt og ræktun samfelldra skóga, gjarnan með öðrum búskap. Vonast er til, að á nokkrum árum þróist Vestur- landsskógar upp í að skapa á Vest- urlandi talsverðan fjölda ársverka. Um er að ræða störf til sveita, en það eru einmitt sveitirnar, sem mest hafa liðið fyrir meira eða minna dulið atvinnuleysi í fjölda ára. Ekki minna virði er önnur af- mælisgjöf, sem er að líta dagsins ljós á 100 ára afrnæli skógræktar á Islandi. Er hún fólgin í nýju og verðmætu hlutverki þessarar starf- semi, þ.e. bindingu koltvísýrings. Bændur og aðrir landeigendur geta kinnroðalaust gert þá kröfu til stjórnmálamanna, að hið nýja hlutverk skógræktar verði nýtt til að auka atvinnu til sveita og bæta þannig fyrir minnkandi umsvif í hefðbundn- um búskap, enda hafa ís- lenskir bænd- ur yfir að Sigvaldi Asgeirsson ráða meira jarðnæði til skógræktar en kolleg- ar þeirra annars staðar í álfúnni og Islendingar eiga því mun meiri möguleika á að binda koltvísýring í skógi en flest allar aðrar þjóðir. I framtíðinni mun stálpaður skógur jafnframt skapa miklu fleiri atvinnutækifæri bæði í borg og byggð vegna þess hráefnis, sem úr honum kemur og nýta má á margvíslegan hátt, auk ýmissa annarra gæða, sem skógurinn fel- ur í sér. Því er fjárfesting í skóg- rækt í hæsta máta vænlegur kostur frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Sigvaldi Asgeirsson Mótun einstaklinga Penninn Margir þættir hafa áhrif á mót- un einstaklinga þrátt fyrir að fjölskyldan, skólinn og vinimir sinni þar stærsta hlutverkinu. Þar fyrir utan eru íþróttir og skipulagt félagshf afar áhrifa- mikhr þættir. Fjölmargar kannanir sýna svo ekki verður um villst að öflugt tómstundastarf hefur sterk áhrif á ungt fólk til fbambúðar. Félags- málastarf býr einstaklinginn undir að takast á við fjölþætt verkefni síðar á lífsleiðinni og þar temja menn sér sjálfsaga og skipulögð vinnubrögð. Þá efast enginn um það lykilhlutverk sem íþróttir gegna í forvarnarstarfi gegn neyslu ávana- og fíkniefna. Omælt vinnuframlag liggur að baki starfi í íþróttafélögum og fé- lagasamtökum. Vmnuframlag, sem innt er af hendi án greiðslu. Ahugasamir foreldrar og einstak- lingar sinna slíku af áhuga og eld- móð því það þekkir og veit af reynslunni hversu mikilvægt þetta starf er ungu fólki. Við Sjálfstæðismenn viljum standa vel við bakið á þessu fólki. Þegar fjölskyldur velja sér stað til búsetu er af- þreyingar- þátturinn eitt af því sem mestu máli „ , ... , Helga skiptir. Þvier Halldórsdóttir það afar mik- ilvægt fyrir byggðir landsins að stutt sé dyggilega við bakið á íþrótta- og tómstundastarfi og það metið að verðleikum. Öflugt íþrótta- og tómstundastarf fyrir alla aldurshópa er ávísun á betra mannlíf. Helga Halldórsdóttir, Skipar 3. sæti á lista sjálfstaðismanna á Vesturlandi. KOSNIN GAVEFUR V ESTURLANDS: http://www.vesturland.is/x99/ Gæsimar em komnar til baka yfir hafið og byrjaðar að undirbúa sitt sumarleyfi hér á landi. Ekki er þó hægt að segja að í öllum tilfell- um sé tekið vel á móti þeim þótt þær séu alfriðaðar á þessum árs- tíma. Að sögn Theodórs Þórðar- sonar lögregluþjóns í Borgarnesi hefur tvisvar verið tilkynnt um ólöglega gæsaveiði á Vesturlandi það sem af er þessu vori. I annað skiptið sást til skotveiðimanna á Mýrum og í hitt skiptið á Snæfells- nesi. Lögreglan á Snæfellsnesi hafði hendur í hári manns sem grunaður er um að vera valdur að gæsadrápinu í að minnsta kosti öðm tilfellinu. Theodór sagði viðurlög við gæsadrápi utan hefðbundins veiði- tíma vera skýr. Veiði og vopn em gerð upptæk og við það bætast um- talsverðar fjársektir. „Fyrir utan að þetta er ólöglegt athæfi þá þykir mér þetta heldur heimskulegt að drepa gæsina á þessum árstíma. Þetta er svipað og að éta kartöfluútsæðið í stað þess að setja það niður,“ sagði Theodór. G.E. rnmrnmmmmmmmmmmmmmmm Vegna alf)ingiskosninga 8. maí 1999 verður kjörskrá lögð fram almenningi til sýnis miðvikudaginn 28. apríl 1999. Kjörskráin mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagssins, Litla Hvammi, Reykholtsdal milli kl. 10-16 fram að kjördegi. Athugasemdir við framlagða kjörskrá skulu berast undirrituðum fyrir 8. maí 1999. Borgarfirði 27. apríl 1999 Sveitarstjóri f SHÆFELLSBÆR \ Snæfellsbær Kjörskrá Vegna alþingiskosninga 8. maí 1999 verður kjörskrá lögð fram almenningi til sýnis miðvikudaginn 28. apríl 1999. Kjörskráin mun liggja frammi á bæjarskrifstofunni á Hellissandi, Snæfellsási 2 og á^skrifstofu Sýslumannsins á Ólafsvík, opnunartími 9-12 og 13-15,30 fram að kjördegi. Athugasemdir við framlagða kjörskrá skulu berast undirrituðum fyrir 8. maí 1999. Snæfellsbær 27. apríl _____________________Bæjarritari,

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.