Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 16. tbl. 2. árg. 29. apríl 1999 Kr. 200 í lausasölu Nýr meiríhluti í Borgarbyggð Staða bæjarstjóra auglýst Allar líkur eru á að endanlega verði gengið firá myndun nýs meirihluta í bæjarstjóm Borgar- byggðar í þessari viku. Þegar blaðið fór í prentun lágu fyrir drög að málefhasamningi milli Borgarbyggðarlista og Sjálfstæð- isflokks en stjómmálafélögin á bak við Ustana áttu efrir að funda um máUð. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur talsmanns Borgarbyggðarlistans náðist full sátt um helstu ágrein- ingsefni listatma. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í stað Ola Jóns Gunnarssonar sem sagt var upp störíum í kjölfar þess að slitn- aði upp úr samstarfi Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks. Guð- rún sagði þessa niðurstöðu vera í samræmi við þá meginstefnu Borg- arbyggðarlistans að ráða óháðan bæjarstjóra en hefði ekkert með störf fyrrverandi bæjarstjóra að gera né hans persónu. Varðandi lóðaúthlutun við Brúartorg sem deilur hafa staðið um sagði Guðrún vera samstöðu um að láta umsækj- endur njóta jafhræðis í umfjöllun. Ennffemur sagði hún áherslu vera lagða á að hraða málinu eins og mögulegt væri. Borgarbyggðarlistinn fær forseta bæjarstjórnar.Sjálfstæðismenn fá embætti formanns bæjarráðs. G.E. Olíudreifing í mjólkurflutningana Mjólkursamsalan í Reykjavík, Mjólkursamlag Kjalamesþings og Mjólkurbú Borgfirðinga hafa boðið út söfhun mjólkur frá bændum á Faxaflóasvæðinu og flutning hennar til Reykjavíkur. Að sögn Guðmundar Þorsteins- sonar formanns Mjólkurbús Borgfirðinga fór fýrst ffam for- val þar sem 12 aðilar skiluðu for- valsgögnum. Ur þeim hópi vom sjö aðilar valdir til að taka þátt í lokuðu útboði. Sex þeirra skil- uðu inn tílboðtun sem vom opn- uð í Reykjavík þann 23. apríl síð- astliðinn. Einungis voru gefnar upp tölur lægstbjóðanda en lægsta boð átti Olíudreifing ehf kr. 2,89 pr líter mjólkur. Hæsta boð var 4,37 kr. pr líter. Aðrir sem buðu í mjólkur- flutningana voru Austfrakt ehf, Eimskip hf, Samskip hf, Skeljungur hf og Vöruflumingar Vesturlands ehf. Það var VSO ráðgjöf sem annað- ist undirbúning og ffamkvæmd út- boðsins. Alls er um að ræða flutn- ing á um 13 milljónum lítra á ári. Að sögn Guðmundar verður geng- ið tíl samninga við Olíudreifmgu ehf og sagði hann tilboð þeirra fela í sér Iítilsháttar lækkun ffá fyrri samningum sem voru við Biffeiða- stöð KB. I útboðinu var gert ráð fyrir að semja til fjögurra ára. G.E. Hann var drjúgur með sig bœjarsqárinn á Skaganum er hann hreykti sér á toppi skorteins Sementsverksmiðjunnar. Gárungarnir sögðu reyndar aS ef illa gengi aSfá nýjan bajarstjóra í Borgarbyggð yrði Gísli fenginn í embættið í hjáverkum og þá væri þetta kjörinn vinnu- aðstaða. Akranes Fimm bílar í árekstri Mjög harður árekstur varð upp úr hádeginu á föstudag við Stillholt á Akranesi. Overuleg meiðsl urðu á fólki en eignatjón mikið. Skemmd- ust fimm bílar og þar af þrír mjög mikið. Bifreið sem var ekið upp Stillholt lenti fyrst á bíl sem verið var að leggja í stæði og kastaðist síðan til hliðar á þriðja bílinn. Sá bíll rann á tvo aðra bíla og varð tjón á þeim óverulegt. Bremsuför bflsins sem ekið var upp Stillholtið reyndust vera 17 metrar og vitni að árekstrinum töldu bílinn hafa verið á mikilli ferð. KK Areksturinn varð fyrir framan Stjórnsýsluhúsið við Stillholt. Mynd K.K Skíðamenn á Skaganum Áskriftarleikur Skessuhoms © Kúkur á priki Pepsi 2ltr. Griimorgarar m/brauði 4stk. Lambasalami Þykkmjólk 0.5ltr. Nesquik 400gr fylling 298/pk 999/kg 119/stk 219/pk

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.