Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 11
^ofisaums... FIMMTUDAGUR 29. APRIL 1999 11 Snæfellsbær orðinn vænlegur kostur ferðamanna Gistiheimilið Höfði stækkar Gífurleg eftispura er eftir auknu gistirými í Snæfellsbæ og ná- grenni. Skipulag og uppbygging vegna ört vaxandi ferðamanna- iðnaðar er á fullu skriði um þess- ar mundir. Auknar væntingar á þessu sviði tengjast óneitanlega opnun Hvalfjarðaganga á síðast liðnu ári og almennri trú manna á lækkun gjaldskrár Spalar á næstu vikum. Snemma um morgun á sumar- daginn fyrsta tók Guðlaug Sveins- dóttir fyrstu skóflustunguna að við- byggingu við Gistiheimilið Höfða. Að lokinni stuttri athöfn var þegar hafist handa við jarðvinnslufram- kvæmdir undir stjórn Tómasar Sig- urðssonar, verktaka. Yfirumsjón með smíðavinnu verður í höndum Sigurðar Elínbergssonar, bygging- armeistara. Onnur verkefni verða að mestu leyti unnin af iðnaðar- mönnum í Snæfellsbæ. Eigandi og rekstraraðili Höfða er Eygló Egilsdóttir en að hennar sögn er verið að mæta aukinni eft- irspurn og kröfum ferðamanna um bætta aðstöðu. Aædað er að við- byggingin verði tilbúin til notkunar í sumar nánar tiltekið í júlímánuði. Viðbyggingin verður byggð úr ein- ingum sem koma frá Einingaverk- smiðjunni í Reykjavík. Verður hún á fjórum hæðum og flatarmál rúm- lega 700 fermetrar. Með viðbygg- ingunni bætast við 18 herbergi með Skæður vírus Hinn skæði W32CIH tölvuvírus gerði umtalsverðan usla á Vestur- landi líkt og víða annar staðar síð- astliðinn mánudag. Að sögn Sverr- is Guðmundssonar í Tölvubónd- anum í Borgarnesi skiptu tölvum- ar sem urðu fyrir barðinu á W32CIH tugum í Borgarnesi og nágrenni. Hafði hann í nógu að snúast við að bjarga því sem bjarg- að varð en í flestum tilfellum náði vírusinn að granda öllum gögnum á harða diskinum og í einhverjum tilfellum olli hann skemmdum á móðurborðinu. Sverrir sagði tjón- ið vera verulegt hjá nokkrum fyrir- tækjum og stofhunum enda væri misjafnt hversu vel þess væri gætt að taka affit af gögnum. G.E. TonyBlair í skólablaði NFFA I nýútkomnu skólablaði NFFA, Ennimána er að finna viðtal við Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Ritstjórnin sendi nokkrum þekktum einstaklingum bréf þar sem óskað var eftir viðtali og barst svar ffá hinum brosmilda Blair. Spurður um ffamtíðaráform sína segir hann: „Eg fann til mikillar auðmýktar yfir hinum mikla kosn- ingasigri okkar og var staðráðinn í að endurgjalda það traust sem breska þjóðin sýndi okkur. Þess vegna er ég afar ákveðinn í að stan- da við kosningaloforð okkar, sér- staklega varðandi menntun, heil- brigðismál, atvinnumál og fækkun afbrota." Ennimáni er 36 síður og fullt af öðru áhugaverðu efhi. Ritstjórar eru þau Sigríður Víðis Jónsdóttir og Gauti Jóhannesson. K.K baði en þá verður heildargistirými fyrir um 60 manns. Þá er einnig horft til stækkunar á veislu- og ráð- stefhuaðstöðu sem rúmar um 100 manns í sal. Ráðstefhusamkomur er markaður sem nýtur vaxandi vin- sælda og með samhentu átaki og samvinnu við ferðamálasamtök í Snæfellsbæ verður hægt að skipu- leggja enn stærri ráðstefnur í ffam- tíðinni. Samvinna ferðamálasam- taka að því leyti gæti því orðið arð- bær viðbót við þá starfsemi sem fyr- ir er í bæjarfélaginu. Þjónusta hefur verið til fyrir- myndar og ekki talin ástæða til að ætla annað í komandi framtíð. Framkvæmdir eru að hluta til fjár- magnaðar með lánum ffá Byggða- sjóði og Ferðamálasjóði og munu að öllum líkindum leiða til fjölgun stöðugilda innan bæjarfélagsins sem styrkir stöðu íbúa Snæfellsbæj- ar og fjölbreytni atvinnulífs sem einskorðað hefur verið við sjávarút- veg. Markmið bæjaryfirvalda und- anfarinna ára hefur verið að efla fjölbreytni atvinnufyrirtækja á nýj- um vettangi. -EMK- Vorboðar birtast Nú eru farfuglamir að birtast hver af öðrum. Sést hefur til lóunnar.; hrossagaukar em famir að þenja stél auk gœsa og álfta semfamar eru aS naga sinuna á tiínum bœnda. Fleiri vorboiar eru einnig komnir á stjá og var meðfylgjandi mynd tekin í veðurblíðunni í sl. viku þegar statfsmenn Vegagerðarinnar í Borgarnesi, þeir Magnús Kristjánsson og Steinar lngjmundarson, voru að holufylla veginn undir Hafiiarfjalli. -MM Contouring Facial Lift Bylting í snyrtivöruheiminum í dag ! Contouring Facial Lift Skerpir útlínur andlitsins, gerir húðina stinnari og veitir andlitinu yngra og fegurra útlit. Kremið er áhrifaríkt fyrir konur jafnt sem karlmenn sem vilja grenna sig í andliti eða skerpa útlínur þess. Rremið dregur saman opnar svitaholur, lyftir húðinni mjúklega og undirhakan minnkar. Til að auka virkni kremsins er mælt með einfaldri nuddaðferð; Clarins “Auto-Lifting” sem er áhrifamikil nuddaðferð sem tekur aðeins tvær mínútur að framkvæma. Leiðbeiningar fylgja með hverju keyptu glasi! Clarins, enginn skilur húð þína betur. Kynning Föstudaginn 7. maí kl: 11-17 Snyrtifræðingur frá Clarins verður á staðnum og veitir faglega ráðgjöf Glæsilegir kaupaukar Snyrtistofa Jennýar Lind Borgarbraut 3 - s: 437 1076 Contouring Facial Lift hlaut Marie-Claire verðlatmin ‘98 fyrir einstaka virkni. CLARINS V A R f S l.ifl- Vfinceur ic Ajfme, Embellii Kajeunit hs TrktU . -:'r“ \iethode Auto íifting -rTviyV Contouriiíg 1‘at'ial LÍft Smmtber, Firmer, wnrr Yontbfui Featam Contouring Facial Lift er ofnæmisprófað. Vð rannsóknir á Clarins vörum eru ekki gerðar tilraunir á dýrum. www.clarins-paris.com CLARINS P A R I S

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.