Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 29.04.1999, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 aktssunu^ Skoðanakönnun Gallup um fylgi framboðslista á Vesturlandi Samfylkingin með forystu Lidar breytingar frá skoðanakönnun Skessuhoms fyrir tveimur vikum í skoðanakönnun sem Gallup gerði um fylgi framboðslistanna á Vesturlandi fyrir Alþingiskosn- ingamar þann 8. maí kemur íiram að fylgi Sjálfstæðisflokks hefur dalað nokkuð frá skoðanakönn- un Skessuhoms sem gerð var dagana 10. - 11. apríl sl. eða sem nemur 5,9 prósentum. Samfylk- ingin eykur við sig um þrjú pró- sent en Framsóknarflokkur stendur nánast í stað. Vinstri hreyfmgin grænt ffamboð eykur fylgi sitt um eitt prósent og Frjálslyndi flokkurinn um 1,7 prósent. Urtakið í könnun Gallup sem gerð var dagana 16. - 22. apríl sl. var 800 manns og af þeim svöruðu um 76%. Óákveðnir eru 11,4% og 6,3% sögðust ekki myndu kjósa eða skila auðu. Eins og sést á töflunni hér að neðan eru niðurstöður könnunar Gallup mjög samhljóma skoðana- könnun Skessuhorns og sýna litlar breytingar aðrar en þær að mun færri segjast óákveðnir í könnun Gallup. Samkvæmt niðurstöðum könn- unar Gallup fengi Samfylkingin tvo kjördæmakjörna þingmenn, Sjálf- stæðisflokkur einn og Framsóknar- flokkur einn. Það skal þó tekið fram að munurinn á fylgi Sjálfstæðis- flokks og Samfylkingar er ekki nema hálft prósent sem er vart marktækur munur. Samkvæmt könnuninni yrði Jó- hann Arsælsson af S-lista fyrsti þingmaður Vesturlands, Sturla Böðvarsson, D-lista, annar þing- maður, Ingibjörg Pálmadóttir, B- lista, þriðji og Gísli S. Einarsson S- lista yrði fjórði. Ekki er hægt að spá hver yrði 5 þingmaður Vesturlands sem er landskjörinn en næsti kjör- dæmakjörinn þingmaður Vestur- lands samkvæmt könnuninni yrði Guðjón Guðmundsson D-lista. G.E. Jóhann Arsækson. lngibjörg Pálmadóttir. Sturla Böövarsson. Gt'sli S. Einarsson. Tímamótasamningur í Grundarfirði Unga fólkið tekur höndum saman um bætta umgengni Frá sýningunni. Frá Snœfellsbœ. Ferðamálastefiia Snæfellsbæjar Síðastliðinn sunnudag var undir- ritaður óvenjulegur samningur í Grundarfirði. Samningsaðilar voru annarsvegar ungt fólk í Grundarfirði og hinsvegar sveit- arstjóm Eyrarsveitar. Samning- urinn er svohljóðandi: Við undirrituð, ungt fólk í Grundarfirði og sveitarstjórinn í Grundarfirði, geram með okkur eftirfarandi samning. Við unga fólkið ætlum eftir bestu gem að vinna að eftirfarandi mark- miðum: Að umgengni í skólanum og um- hverfi okkar sé til fyrirmyndar. Að sveitarfélagið okkar sé snyrtilegt. Að sýna gott fordæmi í umhverf- ismálum og hvetja aðra til að gera það sama. Til að ná ofangreindum markmiðum ætlum við t.d. að: Passa upp á að gengið sé vel um skólann, skólalóð, eignir og tæki skólans, henda rasli í þar til gerð ílát sem heita „raslafömr“, hvort sem er í skólanum eða annars stað- ar. Slagorðið okkar er „götur era ekki raslafömr.“ Koma endurvinn- anlegum flöskum í endurvinnslu eða dósasafnara. Hvetja hvert ann- að til að nota ekki götur sem rasla- fömr. Tína upp rasl af gömnni ef við sjáum það. Slagorðið okkar er „að tína rasl - er töff.“ Sveitarstjórinn í Grandarfirði mun sjá til þess að komið verði upp dósasafnara og fleiri raslafömm í sveitarfélaginu. Sveitarstjórinn mun ennfremur sjá til þess að kynna þennan samning fyrir öðram í sveitarfélaginu og hvetja til þess að fullorðnir fari að fyrirmynd unga fólksins. Þessi samningur er gerður af því að við trúum því að ungt fólk geti haft áhrif til góðs!“ Dagur umhverfisins Samningur unga fólksins og sveitarstjórnar Eyrarsveitar var undirritaður á degi umhverfisins en hann er hugsaður sem hvatning til skólafólks og almennings að kynna sér bemr samskipti manns og nátt- úra. I tilefni dagsins var dagskrá í Grannskólanum í Grandarfirði og opið hús. Þar var gestum og gang- andi m.a. gefinn kostur á að skoða nýbyggingu skólans. Þá var boðið upp á sýningu á verkum nemenda en þar á meðal voru um- hverfistengd verkefni af ýmsu tagi. Þá vora kynnt úrslit í samkeppni meðal nemenda um hönnun skóla- lóðar en sérstök dómnefiid valdi þrjár besm tillögumar sem hlutu verðlaun. Bæjarstjórn Snæfellsbæjar sam- þykkti á bæjarstjórnarfúndi þann 29. mars sl. ferðamálastefnu Snæ- fellsbæjar fyrir árin 1999-2005. Ferðamálastefnan var unnin af At- vinnu- og ferðamálanefnd Snæ- fellsbæjar en grannur hennar er byggður á skýrslu um stefnumótun í ferðaþjónusm á Vesmrlandi sem nefnist „Byggðir milli jökla“. Ferðamálaffæðingarnir Bjarnheið- ur Hallsdóttir og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir unnu þá skýrslu að frumkvæði Samtaka Sveitarfélaga á Vesmrlandi. Þegar Atvinnu- og ferðamála- nefnd hafði unnið drög að ferða- málastefnunni var hún kynnt fyrir aðilum í ferðaþjónusm í Snæfellsbæ og leitað effir tillögum frá þeim við endanlegan ffágang hennar. Flestir ferðaþjónusmaðilar bæjarfélagsins sótm fundinn og tóku virkan þátt í umræðu um ferðamálastefnuna sem síðan var lögð fyrir bæjarstjórn Snæfellsbæjar, sem samþykkti hana samhljóða. Þetta er í fyrsta skipti sem unnið verður samkvæmt skipulagðri stefnu að ferðamálum í Snæfellsbæ. Samkvæmt ferðamála- stefnunni kemur ímynd Snæfells- bæjar til með að vera kynnt með slagorðunum ...þar sem Jökulinn ber við loft... en Snæfellsjökull er í hjarta bæjarfélagsins og segja má að það liggi við fótskör hans. Með þessari ímynd er athyglinni beint að því að Snæfellsjökull, sem sést svo víða að og hefur alla tíð verið sveipaður dulúð og laðað til sín ferðamenn, er í bæjarfélagi sem býður upp á margvíslega þjónusm. Pakkhúsið í Olafsvík verður aðal- upplýsingamiðstöð ferðamála í Snæfellsbæ og mun sjá um að dreifa kynningarefni um ferðaþjónustu og afþreyingu í bæjarfélaginu um allt land og veita ferðamönnum sem þangað leita margvíslegar upplýs- ingar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.