Skessuhorn


Skessuhorn - 02.12.1999, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 02.12.1999, Blaðsíða 7
siSeasliHuíiEí FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 7 Umhverfisnefind er stýrihópur verkefnis- ins í Borgarfirði. I henni sitja Þórunn Reyk- dal Arnheiðarstöðum, Anna Guðný Þór- hallsdóttir Hvanneyri, Auður Lilja Arnþórs- dóttir Hvanneyri, Bjarni Guðmundsson Skálpastöðum og Sigurður Oddur Ragnars- son Oddsstöðum. Greining á stöðu mála í Borgarfjarðar- sveit hefur að mestu leyti farið fram og birt- ist í svæðisskipulagi sveit- arfélaga í Borgarfjarðar- sýslu norðan Skarðsheið- ar sem staðfest var og út- gefið í desember 1998. I ritinu eru markmið tíunduð, en þau eru m.a. að marka meginstefnu um þróun byggðar og landnotkun á ákveðnu svæði til næstu 20 ára og koma þar með í veg fyrir tilviljanakenndar ákvarð- anir sem áhrif hafa á þró- un byggðar og landnýt- ingu. “Með samþykkt svæð- isskipulag í höndum var grunnur lagður að starfi okkar í Staðardag- skrárverkefninu,” segir Þórunn Gestsdóttir sveitarstjóri sem hefur leitt hópinn. Hún segir Staðardagskrá 21 vera gott verkfæri til að styðjast við þegar sveitarfélag vill setja sér markmið og stefnu í umhverfismálum því þá séu aðstæður skoðaðar útfirá sjónarmiðum sjálfbærrar þróunar. “Umhverfisnefhd sveitarfélagsins hefur unnið að endurskipulagningu á gámastöð- um sem að hluta til hafa komið til fram- kvæmda, brotajárni hefur verið safhað, á fjórum stöðum eru móttökur fyrir raf- geyma, rúlluplast sótt til bænda og fleira. Á Hvanneyri er jarðgerð þar sem líffænn úr- gangur fer í moltun. Unnið er að virkjun vamsbóls við Reykholt og á Kleppjárns- reykjum og eins hefur vatnsból við Hvann- eyri verið afmarkað. Ytt hefur verið úr vör hugmynd um umhverfisfræðslu í skóla í sveitarfélaginu en málið er í vinnslu”, segir Þórunn Gestsdóttir sveitarstjóri. Segir hún að unnið sé að aðalskipulagi sveitar- félagsins samhliða vinnu umhverfisnefnd- ar og voru tveir ráðgjaf- ar ráðnir til starfans í byrjun árs. “Fyrirhugað er að aðalskipulags- vinnunni ljúki í október á næsta ári en sú vinnu er samofin umhverfis- sjónarmiðum sem nýt- ast okkur við Staðar- dagskrárverkefnið”. Þórunn segir skráningu menningarminja og at- hugun á frekari nýtingu auðlinda sveitarfélags- ins, matvælaframleiðslu og starf skógar- bænda á svæðinu meðal þeirra þátta sem hugað sé að og flétta megi inn í vinnu að Staðardagskrá. “Þessu verkefni lýkur ekki á næstunni, þetta er þróunarverkefni 21. aldarinnar sem mun hafa áhrif á viðhorf okkar til umhverf- ismála og umgengnina um okkar næsta ná- grenni jafhframt því að hafa efhahags- og fé- lagsleg áhrif á samfélagið” sagði Þórunn að lokum. Vinnan við Staðardagskrá 21 er lengst kom- inn í Snæfellsbæ af þeim fimm sveitarfélögum sem taka þátt í verkefhinu. Stöðumati og markmiðasetningu er lokið og var markmiðs- setningin birt í Morgunblaðinu fyrir skömmu. Þar er lýst samfélagi sem er sjálfbært að öllu leyti og allt komið í þann farveg sem hug- myndaffæði Staðardagskrár gengur út frá. Stýrihópur verkefhisins í Snæfellsbæ var skipaður af bæjarstjórn en í honum eru Skúli Alex- andersson Hellissandi, Olína Kristinsdóttir Ólafsvík og Guðrún G. Bergmann Hellnum. Hópnum til fulltingis er 19 manna fulltrúaráð skipað fólki úr öllum hlut- um sveitarfélagsins og hinum ýmsu greinum. Þetta fólk hefur meira og minna komið að verkefn- inu frá byrjun. Guðlaugur Bergmann, Hellnum er verkefnisstjóri. “Hér í Snæfellsbæ erum við nokkuð ánægð með ár- angurinn varðandi Staðardagskrárvinnuna. Við höfum lokið markmiðasetningunni og erum lögð af stað í lokaáfangann, þ.e. sjálfa framkvæmdaáætlunina en hún er auðvitað lang erfiðasti áfanginn,” segir Guðlaugur. Um vinnuna til þessa segir hann að leitað hafi ver- ið til ýmissa aðila vegna úttektar á núverandi stöðu auk þess sem góð tengsl við almenning hafi náðst í gegnum fjölmennt fulltrúaráð. “Þá hefur verkefnið verið kynnt á fundum og í fréttabréfum, m.a. í samstarfi við Framfara- félag Snæfellsbæjar,” segir Guðlaugur. Segir hann að það hafi verið tímamót í Snæfellsbæ þegar bæjarstjórn og helstu emb- ættismenn bæjarfélagsins fóru á þriggja daga námskeið til þess að geta tekist betur á við það gífurlega verkefni sem Staðardagskrá 21 er. Á námskeiðinu var hugmyndafræðin fléttuð saman við námsefni Brians Tracys um há- marksárangur. Fjallað var um markmiðssetn- ingu og mikilvægi skipulagðra vinnubragða í öllum athöfnum, hvort sem um var að ræða daglegt líf eða áætlunar- gerð sveitarfélaga. Nám- skeiðið sóttu 18 kjörnir og ráðnir stjómendur sveitar- félagsins. I þessum hópi m.a. bæjarstjórinn, bæjarstjórnarfulltrúar, skólastjórar, leikskóla1 stjórar og tæknimenn. Uttekt á núverandi stöðu lauk seint í mars á þessu ári og var skýrsla um hana afhent verkefnis- stjóra íslenska Staðardag- skrárverkefnisins í apríl. Vinna við markmiðssetn- ingu hófst síðan í maí. “Byggt var á hugmynd um svokallað „útópíuþjóðfélag”, þ.e. framtíð- arsýn um samfélagsgerð í sveitarfélaginu á fyrri hluta næstu aldar. Þetta samfélag er markmiðið sem finna þarf leiðir til að ná. Við markmiðssetningarvinnuna studdumst við við kenningar Brians Tracy og skýrsla með sam- þykktum markmiðum lá fyrir núna í nóvem- ber. Um svipað leyti hófst vinna við gerð framkvæmdaáætlana. Er stefnt að því að taka fyrstu áþreifanlegu verkefnin til umræðu við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2000,” segir Guðlaugur Bergmann. Þórunn Gestsdóttir. Þóninn Gestsdóttir. FISKMARKAÐUR BREIÐAFJARÐAR Opnunarhóf 1 í tilefni þess að Fiskmarkaður Breiðafjarðar hf. hefur tekið í notkun nýtt húsnæði undir starfeemi sína á Rifi er öllum viðskiptavinum ogvelunnurum félagsins boðið að koma í opnunarhóf sem haldið verður í hinu nýja húsnæði laugardaginn 4. des nk. kl. 18:00-20:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og skemmtiatriði, m.a mun Höskuldur Skarphéðinsson skipherra lesa upp úr bók sinni og árita sölueintök. ■ liliitlS Hi2l|f ÍiliBÉÉ Allir velkomnir .. . .. . .. ,pi : ■ g|L

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.