Skessuhorn - 02.12.1999, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
□ocssunuu.:
Kaffihús á Bifröst
Nemendafélag Samvinnuháskól-
ans á Bifröst opnaði fyrir skömmu
kaffihús í húsnæði skólans. Kaffi-
húsinu er ætlað að verða til menn-
ingarauka í háskóla”þorpinu”. Ekki
er endanlega búið að ákveða rekstr-
arform kaffihússins en rekstur þess
var einmitt verkefhi samþættingar-
viku sem er nýlega afstaðin.
Vantar fyllingu
Beiðni Dalabyggðar um að fá merki sveít-
arfélagsins skráð sem Byggðamerki hefur
verið hafnað af Einkaleyfastofu. Skýringin
var sú að það vanti fyllingu í merkið. Hins-
vegar lagði Einkaleyfastofa fram breytingar-
tillögu við merkið sem Dalamenn sætta sig
ekki við.
Merki Dalabyggðar var valið úr fjölda til-
lagna sem bárust í samkeppni á vegum sveit-
arfélagsins og að sögn sveitarstjóra verður
það notað þar sem við á þrátt fýrir að það fá-
ist ekki formlega samþykkt sem byggða-
merkí. GE
Stórhuga starfsmenn
Félag starfsmanna Dvalarheimil-
isins Höfða, Akranesi hélt nýlega
aðra sýningu sína á ýmsu listverki
og föndri sem þeir vinna að í ffí-
stundum sínum.
Sýningin Hugur og handverk var
haldin í félagsrými Höfða dagana
20. og 21. nóvember síðastliðinn.
Þátttakendur voru 19 starfsmenn
og sýndu þeir m.a. málverk og önn-
ur listaverk auk ýmiss prjóna og
saumaskaps. Einnig birtust þarna
ljóð eins starfsmanns auk úr-
klippusafns Höfða síðastliðinna
tveggja ára.
Við opnunina söng hjúkrunar-
deildarstjóri heimilisins, Ragnhild-
ur Theodórsdóttir, nokkur létt lög
við undirleik Guðbjargar Sigur-
jónsdóttur. Að lokum voru bornar
fram veitingar í boði starfsmanna-
félagsins sem um þessar mundir
hefur starfað í rúmlega tvö ár. Góð-
ur rómur var gerður að sýningunni
og söngnum.
Stórhöfði
Starfsmannafélagið sem ber heit-
ið Stórhöfði hefur á sínum stutta
starfstíma staðið fýrir ýmsum uppá-
komum, bæði til að auka fræðslu til
starfsmanna og einnig félagsmönn-
um til upplyftingar. Formaður er
Baldur Magnússon.
Haldnir hafa verið ffæðslufundir,
m.a. um heilsueflingu á vinnustöð-
um svo og upprifjunarnámskeið í
skyndihjálp og brunavörnum.
Gönguhópar hafa starfað en þeir
hafa staðið fýrir gönguferðum á
Akrafjall og um Hvalfjarðarsvæðið.
Þá hafa verið famar haustlitaferðir.
Undanfarin tvö jól hefur félagið
skipulagt hópferð barna og fullorð-
inna upp á AJkrafjall til að hitta jóla-
sveinana sem þar búa. Hafa þær
ferðir tekist vel og verið vinsælar,
sérstaklega hjá unga fólkinu. Fyrir-
huguð er þriðja ferð félagsins til
fundar við jólasveinana laugardag-
inn 11. desember næstkomandi.
Vilja aukna
samvinnu
A síðasta bæjarráðsfundi Stykkis-
hólms lögðu Erling Garðar Jóns-
son, Aðalsteinn Þorsteinsson og
Davíð Sveinsson bæjarfulltrúar
fram tillögu þess efhis að setja á
stofn þriggja manna vinnunefnd
undir leiðsögn bæjarstjóra til að
vinna að auknu samstarfi sveitarfé-
laga á Snæfellsnesi. I tillögunni er
gert ráð fýrir að nefhdin taki til
skoðunar markmið og leiðir til
stóraukinnar samvinnu sveitarfé-
laganna í atvinnumálum, sam-
göngumálum og mennta- og
menningarmálum. Þá er lagt til að
nefhdin verði Héraðsráði til að-
stoðar við mótun tillagna um stór-
aukið samstarf í félagslegri þjón-
ustu. Einnig segir í tillögunni að
sérstök áhersla verði lögð á að
koma fram með nýsköpun í fram-
haldsskólamálum fýrir unga fólkið
á Snæfellsnesi.
Tillögunni var vísað til næsta
fundar bæjarstjórnar.
GE
Vel sóttur borgamfundur í Dalabúð
Rætt um Eirík og félaga
Þann 18. nóvember síðastliðinn
var haldinn borgarafundur í Dala-
búð á vegum Dalabyggðar. Fund-
urinn var að sögn Sigurðar Rúnars
Friðjónssonar oddvita afar vel sótt-
ur en tilgangur hans var að kynna
fýrir íbúum sveitarfélagsins stöðu
framkvæmda vegna minningar
landafundanna.
Á fundinum sagði Friðjón Þórð-
arson formaður Eiríksstaðanefndar
frá framkvæmdum á Eiríksstöðum.
Þá var rætt um fýrirhugaðar fram-
kvæmdir við safh í Búðardal, sigl-
ingu víkingaskipsins Islendings og
fleira. GE
Tilgdtuhúsiö að Eiríksstöðum er risiö en í vetur er unniö að því að þilja húsið og ganga
jrá innanstokksmunum. Mynd: GE
Bætt póstdreifing?
íbúar í dreifbýli hafa víða þurft
að búa við mun minni þjónustu
hvað varðar póstdreifingu heldur
en íbúar í þéttbýli. Svo dæmi sé
tekið er póstur einungis borinn út
þrisvar í viku í flestar sveitir á Vest-
urlandi. Hugsanlega mun þetta
breytast á næstunni þar sem ísólfur
Gylfi Pálmason stjómarmaður í Is-
landspósti hefur lagt fram tillögu
þess efnis að pósti verði dreift alla
virka daga í sveitum landsins.
GE
ATVINNA
A
Oskum eftir að ráða
smiði og byggingarverkamenn
á Grundartangasvæðið.
Upplýsingar gefur Sigurjón Skúlason í
síma 897 6206
ISIAK