Skessuhorn - 02.12.1999, Síða 23
TT T'T-'T .• T
SaESSlíHÖBFJ
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
23
fsson formaður, Jón J. Haralds-
narsson meðstjómandi, Eiríkur Olafs.
Nýkjörin stjóm Golfklúbbs Borgamess. Frá vinstri: Ómar Öm Ragn
son gjaldkeri, Stefán Haraldsson varaformaíur. A myndina vantar Hjört Amason ritara.
Mynd: Ingimundur
l/f X f; Á
b ;
1
Hagnaður af rekstri golfklúbbsins
Aðalfundur Golfklúbbs Borgar-
ness var haldinn að Hamri 25. nóv-
ember sl. I skýrslu stjórnar kom
fram að eitt gróskumesta starfsár í
sögu klúbbsins er að baki. Þrátt fyr-
ir erfitt veðurfar var veruleg aukn-
ing á iðkendum, bæði fastra félaga
og gesta. Fastir félagar klúbbsins
eru 118 og hafa aldrei verið fleiri.
Rekstur klúbbsins var með ágæt-
um og skilaði hagnaði. Símon Páll
Aðalsteinsson var ráðinn sem fram-
kvæmdastjóri í hlutastarf og var
hann jafnframt vallarstjóri. Hlaut
hann lof fyrir starf sitt. Sigurður
Hafsteinsson golfkennari kenndi
hjá GB. Hófust æfingar í íþrótta-
miðstöðinni í febrúar og kom hann
reglulega fram eftir sumri. Þóttu
menn merkja það á betri golfsveifl-
um að þar færi góður kennari.
Golfmót félagsins voru almennt
vel sótt. Fjórir kylfmgar tóku þátt í
landsmóti GSI. Bestum árangri
náði Þuríður Jóhannsdóttir er náði
3. sæti í 2. flokki, aðeins fimm
höggum á eftir sigurvegara. Karla-
sveit félagsins féll í 3. deild en
kvennasveitin vann 3. deild og
keppir í 2. deild að ári. I sumar var
unnið að ýmsum lagfæringum á
golfvellinum. Meðal annars var
plantað 2000 trjáplöntum á vallar-
svæðinu er RARIK gaf klúbbnum.
Ingvi Arnason, sem verið hefur
formaður undanfarin ár, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. I hans stað
var Eiríkur Olafsson kosinn for-
maður. Með honum í stjórn eru:
Hjörtur Arnason ritari, Jón J. Har-
aldsson gjaldkeri, Stefán Haralds-
son varaformaður og Ómar Örn
Ragnarsson meðstjórnandi.
Ingimundur
S
Kristján G Þorvaldz ráðinn til IA
Kristján G Þorvaldz hefur verið
ráðinn tæknilegur framkvæmdar-
stjóri Knattspyrnufélags IA.
Mun hann jafnframt þjálfa meist-
araflokk kvenna. Kristján er fæddur
í Reykjavík og hefur starfað við
bókhald til fjölda ára. Hann hefur
víðtæka reynslu af þjálfun og hefur
meðal annars þjálfað hjá Breiðablik,
Val Reykjavík, Fylki, Hugin Seyðis-
firði og Víkingi Olafsvík. Eigin-
kona Kristjáns er Guðlaug R.
Skúladóttir og eiga þau tvo syai.
“Eigum við ékki að segja að ég
hafi verið jöfhum höndum í þessu
tvennu, bókhaldinu og þjálfun-
inni,” sagði Kristján í samtali við
Skessuhom. “Eg hef reyndar verið í
fríi frá þjálfuninni í tvö ár en síðast
þjálfaði ég Vtking í Ólafsvík.11
Nú tekur þú við þjálfun meist-
araflokks kvenna. Hvernig leggst
það í þig?
Kristján G Þorvatdz, tæknilegur fi-am-
kvæmdastjóri óg þjálfari. Mynd K:K.
“Það leggst vel í mig. Það er
töluverður mismunur á aldri leik-
mannanna, við eram með leikmenn
ffá 14, 15 ára aldri og upp í 26 ára
þannig að það er ekki hlaupið að
því að setja saman æfingaáætlun
fyrir allan hópinn. Það þarf að taka
tillit til mismunandi þroska og
margir þættir sem þarf að hafa í
huga. Það eru margar efnilegar
stelpur í hópnum sem á að vera
hægt að gera töluvert úr. Ég lít svo
á að um sé að ræða tveggja ára plan
til að búa til gott lið,” segir
Kristján.
Kristán mun sjá um daglegan
rekstur ásamt Petrínu Ottesen sem
hefur verðið ráðin sem rekstrar-
stjóri.
“Eg verð meira í því að koma fé-
laginu á framfæri, auglýsingum og
þess háttar og vinna síðan að því
með stjórn félagsins að skapa sterk-
ari fjárhagslegan grandvöll undir
rekstur félagsins út frá þeim hug-
myndum sem ég hef í farteskinu,”
sagði Kristján.
Skessuhorn óskar Kristjáni vel-
farnaðar í nýju starfi.
K.K.
• •
Yfirburða sigur Kristjáns og Oldu
Frá vinstri Kristján Axelsson, Om Einarsson, Kristján B. Snorrason, Alda Guðnadóttir, Dóra Axelsdóttir, Riínar Ragnarsson.
Mynd: K.K.
Keppni í aðaltvímenningi hjá
Bridgefélagi Borgarness lauk á
miðvikudaginn í siðustu viku.
Kristján B. Snorrason og Alda
Guðnadóttir leiddu mótið öll fimm
kvöldin og unnu yfirburðasigur
með 225 stig eða tæplega 100 stig-
um meira en þeir sem næstir komu.
Það voru Örn Einarsson og Krist-
ján Axelsson gestir úr Borgarfirði
sem hlutu 129 stig. Rúnar Ragnars-
son og Dóra Axelsdóttir lentu svo í
þriðja sæti með 102 stig. Baráttán
um þriðja sætið var hörð og réðust
ekki úrslit fyrr en í síðustu setunni.
Fjórða sæti náðu Jón A Guðmunds-
son og Stefán Kalmansson með 100
stig og í fimmta sæti lentu Hall-
grímur Rögnvaldsson og Sigurður
Tómasson með 96 stig.
Stórliðið Hálifax Town tapaði ensku 3. deildinni. Leikurinn
óvænt á heimavelli gegn Mansfi- endaði með 0-1 sigri Mansfield.
eld síðastliðinn laugardag í GE
Petrína Ottesen
ráðin rekstrarstjóri
Petrína Ottesen hefur verið ráð-
in rekstrarstjóri Knattspyrnufélags
IA. Undanfarin tvö ár hefur Petr-
ína starfað sem rekstrarstjóri
Heiðarskóla í Leirársveit og þar
áður í tíu ár sem starfsmaður Sam-
vinnubanka / Búnaðarbanka á
Akranesi. Petrína hefúr störf fyrir
IA í byrjun mars 2000.
K.K.
Dagatal Sundfélagsins
Sundfélag Akraness
hefur látið gera daga-
tal sem félagsmenn
rnunu ganga með í
hús og selja nú í des-
ember. Dagatalið
prýða 12 ljósmyndir
Friðþjófs Helgasonar
teknar á Akranesi og í
nágrenni bæjarins.
Lukkumiði fylgir
hverju dagatali og
vinningarnir eru
myndir Friðþjófs í
veglegum ramma.
Dregið verður úr
lukkumiðunum í Ut-
varpi Akraness í des-
ember á næsta ári.
KK.
Þjálfe yngri fiokka ÍA
Þrír nýir þjálfarar yngri flokka
Knattspyrnufélags IA hafa verið
ráðnir til félagsins fyrir næstu ver-
tíð. Það era þau Kristinn Reimars-
son, Laufey Sigurðardóttir og
Ólafúr Jósefsson. Af störfum hafa
látið þjálfararnir Sævar Guðjóns-
son, Guðjón Guðjónsson, Rúnar
Sigríksson, Ingibjörg Ólafsdóttir
og Anna Sólveig Smáradóttir.
K.K
Kristján Hreinsson sparisjóðsstjóri tekur við bikamum lír hmdi Magmísar Gunnlaugs-
sonar.
Ólafsvík:
Firmakeppni í golfi
Golfklúbbur Ólafsvíkur hélt sína árlegu firmakeppni á haustdögum. Ur-
slitin urðu eftirfarandi:
1. sæti: Magnús Gunnlaugsson á 31 höggi fyrir Sparisjóð Ólafsvíkur.
2. sæti: Sæþór Gunnarsson á 32 höggum fyrir Tannlæknastofuna.
3. sæti: Magnús Gunnlaugsson á 33 höggum fyrir Þorstein SH á Rifi
Golfklúbbur Ólafsvíkur vill koma á framfæri þökkum til þeirra sem stutt
hafa starfsemi hans á nýliðnu starfsári.
K.K.