Skessuhorn - 08.06.2000, Blaðsíða 1
Ertu að tapa stórfé
út um gluggana?
Fáðu góð ráð hjá okkur og
lækkaðu hitareikninginn!
Sími 54 54 300
Smiðjuvegi 7,
Kópavogi
fax 54 54 301
www.gler.is
Gáfu lang-
veikum böm-
um ferðasjóð
Þann 30. maí síðastliðinn voru
nemendur 10. bekkjar í Granda-
skóla útskrifaðir. Þessir sömu nem-
endur höfðu safnað í sjóð fyrir
lokaferðalagi sínu síðan í 8. bekk og
þegar í ljós kom að þau áttu afgang,
ákváðu krakkarnir að gefa hann,
75.000 krónur, til Umhyggju,
styrktarfélags langveikra barna.
Vakti það að vonum athygli þar
sem peningar sem þessir hafa oftar
en ekki verið geymdir til að nota á
næsta árgangsmóti.
Það var Harald Björnsson sem
dúxaði þetta árið, auk þess sem
hann fékk verðlaun fyrir bæði
stærðfræði og samfélagsfræði.
Hlaut hann að launum tæpar
30.000 krónur úr sjóði Guðmundar
Bjarnasonar frá Sýruparti og skal sú
upphæð notuð til framhaldsnáms.
SÓK
Fulltníi Umbyggju tekur við g/öfnemenda.
Undirskrift samningsins á skrifstofu beejarsfjóra.
Mynd: EE
Styrkur til rann-
sókna á jarðvatni
Bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Krist-
inn Jónasson og Bjarni Reyr Krist-
jánsson jarðfræðinemi við HI, und-
irrituðu nýverið samning þess efnis
að Bæjarstjórn Snæfellsbæjar styrki
rannsóknarverkefni Bjarna sem
felst í könnun jarðvatns á utanverðu
Snæfellsnesi. Aætlað er að rann-
sóknin taki tvö ár og nemur styrk-
urinn einni milljón króna.
Með rannsóknarverkefninu er
Bjarni Reyr að ljúka mastersverk-
efni í jarðfræði við Háskóla Islands.
Verkefnið tekur til vatnajarðfræði,
kortlagningar vatnafars og ferla
sem ráða efnainnihaldi á yfirborði
og grunnvatni á utanverðu Snæ-
fellsnesi með sérstaka áherslu á
vatnsgæði og vatnsgeng jarðlög í
tengslum við núverandi og mögu-
leg framtíðarvatnsból.
Verkefnið byggir í megindráttum
á þekkingu og reynslu á tveimur
sviðum. Annars vegar á rannsókn-
um og athugunum á vatnafari og
hinsvegar á þeim ferlum sem ráða
efnainnihaldi vatns í náttúrunni.
Gagnasöfnun fyrir verkefnið tekur
til gerðar korts yfir vatnafar á vest-
asta hluta Snæfellsness og sýnatöku
og efnagreiningar á yfirborðs- og
lindarvatni á því svæði.
Að sögn Kristins Jónassonar bæj-
arstjóra, er mikilvægt fyrir Snæ-
fellsbæ þegar verkefhinu lýkur að
gert verði vatnsverndarkort og
hægt verði í framhaldi af því að
skipuleggja nýtingu og flokkun
vatnsbóla. Það var að frumkvæði
Bjarna Reys sjálfs sem ráðist var í
þessar framkvæmdir og telur Krist-
inn þetta nauðsynlegt verkefni.
Með því nást þau markmið að
vernda vatnsbólin fyrir komandi
kynslóðir. EE
fra kl.
1091
199
129
U9
Þjóð-
lendu-
mál®
Gáfii klippur
©Ný
gáma-
stöð