Skessuhorn - 08.06.2000, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 8. JUNI 2000
ootojunu..
Sjómannadagurmn á Vesturlandi
I árlegi-i skemmtisiglingu frá Olafsvík var siglt innfyrir Vallnaberg.
iestur Rolm Kristinsson bautj gestum og gangandi upp á veitingar um borð í bát sínum í Stykkishólmshöfii.
Hann hefur haldið þessum skemmtilega sið á sjómannadeginum í fiö ár. MyndEE
í Grundarfirði gafst fólki kost-
ur á að bregða sér í siglingu með
Varðskipinu Tý og kynna sér
innviði varðskipsins um leið.
Hinn hefðbundni knattspyrnu-
leikur milla áhafna var á sínum
stað og þar tókust á skipverjar á
Klakki og Hring og einnig öttu
varðskipsmenn kappi við aldna
tuðrusparkara úr Grundarfirði.
Sjómannnadagshátíðahöldin á
sunnudeginum hófust með sjómannamessu og síðar um dag-
inn var boðið upp á hefðbundna dagskrá með koddaslag og
kappróðri og öðru tilheyrandi.
A Hellissandi var listaverkið beðið í von afhjúpað að við-
stöddu fjölmenni á sjómannadaginn. Að því loknu hófst hefð-
bundin dagskrá í Sjómannagarðinum þar sem Albert Guð-
laugsson aldraður sjómaður frá Hellissandi var heiðraður og
Drífa Skúladóttir flutti hátíðarræðu.
I Olafsvík og á Rifi voru einnig vegleg hátíðahöld um
helgina með skemmtidagskrá og sjómannadansleik svo eitt-
hvað sé nefnt.
A Akranesi voru hátíðarhöldin vegleg að vanda með
skemmtidagskrá við höfnina þar sem meðal annars var hleypt
af fallbyssunni sem vígð var þar á síðasta ári. Þá sýndi Björg-
unarsveitin björgunaraðferðir fyrr og nú og Slysavarnardeild
kvenna á Akranesi sá um kaffiveitingar í Jónsbúð.
EE/GE
Mynd: GE
Sjórnannadagurinn rann upp heiðskír og bjartur en þó
napur með ströndinni. Að venju var boðið upp á veglega
dagskrá í sjávarplássunum á Vesturlandi en víðast hvar
stóðu hátíðarhöldin frá laugardegi til sunnudags.
I Stykkishólmi var meðal annars boðið upp á sjóferð um
Breiðafjörðinn með Sæferðum á
laugardag en á sunnudeginum
stóðu Sjómannadagsráð Stykkis-
hólms og Björgunarsveitin Ber-
serkir fyrir veglegri dagskrá.
Keppt var í ýmsum íþróttagrein-
um sem tilheyra þessum degi, s.s.
brettahlaupi, kappróðri, stakka-
sundi ofl.
lyrlusveit Landhelgsigæslunnar sýndi björgun úr sjó lit af Olafsvík.
Mynd: GE
Mikill viðbúnaðar var á Grundarfjarðarvelli vegna kappleiks Hrings og Klakks og nutu
slasaðir góðrar aðhlynningar. Mynd EE
Em af keppnisgreimnmm á sjómannadegjnum í
Grundatfirði var að láta sigfalla úrstrengdri línu
og lenda í uppblásiimi giímmíslöngu. Mynd: EE
Fjölmennt var íJónsbúð á Akranesi þar sem kvennadeild Slysavarnafélagsins stóð
fyrir kaffisölu. Mynd SÓK
Aldraðir sjómenn heiðraðir á Hellissandi. Albert Guðlaugsson ásamt
konu sinni Stefaníu Hinriksdóttur. Mynd: EE
Einangrunar
gier
Sólvarnargler
K - gler
Sendum
um
allt land
Yfir
30 ára
reynsla
Glerverksmiðjan
SAMVERK
simt 487 5888
fax 487 5907