Skessuhorn - 08.06.2000, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 8. JUNI 2000
sbessuh©bki
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgames og Akrones) 430 2200
Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgames) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. 430 2200
Framkv.stjóri: Mognús Mognússon 852 8598
Ritstjóri og úbm: Gísli Einorsson 852 4098
Internetþjónusto: Bjarki Mór Korlsson 899 2298
Bloðamenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310
Egill Egilsson, Snæfellsnesi 894 5038
Iþróttafréttoritori: Jónas Freysson (James Fryer)
Auglýsingor: Hjörtur Hjortorson 864 3228
Fjórmól: Sigurbjörg 8. Ólafsdóttir 431 4222
Prófarkolestur: Ásthildur Mognúsdóttir og Mognús Mognússon
Umbrot: Skessuhorn / TölVert
Prentun: Isafoldarprentsmiðjo hf
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 200 kr.
430 2200
Hnegg
Við íslendingar erum að upplagi sér-
lundaðir sveitamenn og því hefur það
háð okkur tilfinnanlega að við kunnum
okkur ekki í samskiptum við erlendar
þjóðir. Við brúkum enga hirðsiði heima
fyrir og höfum ekki lagt slíkt fyrir okkur
ffá því íslensk sálmaskáld voru að sleikja sig upp við Noregs-
kóng fyrir þúsund árum eða svo. Þeirra aðferð fólst í því að
halda um löpp konungs á meðan þau þuldu lummuleg lof-
kvæði sem áttu sér enga stoð í raunveruleikanum.
Fram til þessa höfum við tekið á móti erlendum gestum af
aðalsættum á malbikinu í Keflavík með úfinn og illa greiddan
forsætisráðherra í forgrunni og litlar og sætar blómastúlkur
honum til stuðnings. Slíkt sæmir ekki sjálfstæðu lýðveldi sem
telur sig öðrum ffernra miðað við höfðatölu. Nú horfir þó til
betri vegar. Loks ætlum við brúka tilhlíðilega mannasiði og
mæta kóngafólki í Keflavík með fullri reisn, á fjórum fótum.
Nú eiga íslenskir gæðingar nefnilega að leysa blómastúlk-
urnar af hólmi og Kóngar og keisarar, hertogar og háttsettir
embættismenn fá loks viðtökur sem þeim sæmir, hrossahlátur
og ilminn af nýskitnu hrossataði. Enn er þó óleyst það vanda-
mál að íslenskir alsparihestar verða svo nervösir í nágrenni við
kollega sína úr samgöngubransanum, flugvélarnar, að ég hef á-
hyggjur af þessu, ég verð að segja það. Hávaðinn í þessum
vængjuðu stálbikkjum pirrar hina glæstu fáka og þeir gæm því
átt það til að hegða sér ósæmilega á viðkvæmum augnablikum.
Þá eru ekki önnur ráð en að dusta rykið af gömlu jálkunum
sem komnir eru að fótum ffam og hafa ekki lengur þrek til að
ókyrrast. Því má búast við að Lati - Jarpur, Blindi - Brúnn og
Hálfdauði - Hosi eyði sínu ævikvöldi á Keflavíkurflugvelli.
Eg fagna því að sjálfsögðu að vel sé tekið á móti stórhöfðing-
um og þeim verði allur sómi sýndur. Við eigum að tjalda því
sem til er og umffam allt að hampa því sem er þjóðlegt og gott.
Það er hinsvegar tilhneyging stjórnvalda að skrumskæla, mis-
þyrma og afskræma góðar hugmyndir. Þótt fátt sé þjóðlegra en
ekta íslenskur húðarjálkur er fátt óþjóðlegra en að tilla á
hrygginn á honum sléttrökuðum og pasturslitlum ungsveinum
í spjátrungsklæðum. Atvinnuhestamenn láta nefhilega ekki sjá
sig á almannafæri í dag öðru vísi en íklæddir aðskornum
nælonbrókum, plaststígvélum og í jökkum með axlapúðum.
Rétt eins og breskir pólóleikarar. Enn ósmekklegra þykir mér
þó ef við ætlum að láta íslenskar konur heilsa útlenskum höfð-
ingjum með útglennta fætur, sitjandi klofvega á klárum sínum.
Ef móttökurnar eiga að vera þjóðlegar þá sendum við út á
völl alvöru karlmerm í karlamannaklæðum og kvenlegar konur
sem ríða í söðli eins og sönnum dömum sæmir. Eina viðeig-
andi lausnin er sú að fljúga með allra heldristéttar menn beint
í Skagafjörð, mistöð íslenska hestsins. Þar yrðu öll vandamál
leyst í einu lagi. A Sauðárkróki er flugvöllurinn í hesthúsa-
hverfinu og klárarnir því ekki vanir að kippa sér upp við smá-
muni. Ekki þyrfti heldur að dröslast með þá langar leiðir í öðr-
um farartækjum. Þá væru engir bemr til þess fallnir að taka vel
á móti konungum en Skagfirðingar. Þeim væri allavega vel
treystandi til að koma almennilega ríðandi og sómasamlega
klæddir, í vaðmálsbuxum og lopapeysu og með vasapela í ull-
arsokk.
Veljum íslenskt!
Gísli Einarsson, þjóðháttafræðingur
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
vefsmidja@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
egill@skessuhorn.is
ougl@skessuhorn.is
bokhold@skessuhorn.is
Tveir ísfisktogarar
smíðaðir í Kína
Þeir fyrstu í rúmlega 20 ár
Undirritaðir hafa verið samning-
ar um smíði tveggja nýrra ísfisk-
togara í Kína og eru það fyrstu
togararnir sem smíðaðir hafa
verið fyrir íslenskar útgerðir í
rúmlega tuttugu ár. Utgerðimar
sem standa að smíðinni eru
Guðmundur Runólfsson hf í
Gmndarfirði og Gullberg ehf á
Seyðisfirði en skipin em hönnuð
af Skipatækni.
Togararnir eru 52 metra langir
og verða útbúnir fyrir 18 manna á-
hafnir. Auk þess að skrifa undir
samning um smíði þessara tveggja
togara hefur Skipatækni undirritað
viljayfirlýsingu við skipasmíðastöð-
ina í Kína um smíði þriggja togara
í viðbót eftir sömu teikningum.
Guðmundur Smári Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Guðmund-
ar Runólfssonar, segir að það sé alls
ekki verri kostur að smíða ísfisk-
togara en frystitogara því þetta nýja
skip komi til með að skapa mikla og
nýja möguleika fyrir útgerðina.
EE
Meiri að-
greiningar þörf
Gert að aðskilja rekstur sumarhótels
frá annarri starfsemi
Samkeppnisráð gaf í liðinni viku
út ákvörðunarorð vegna kvörtun-
ar lögffæðings Hótels Borgamess
um rekstur Landbúnaðarháskól-
ans á Hvanneyri á smnarhóteh.
Kvartandi segir að í krafri opin-
berrar vemdar og Ijármagns bjóði
sumarhótelið upp á verð á gist-
ingu sem aðrir geti ekld boðið.
I ákvörðunarorðum vegna kvört-
unar Hótels Borgarness segir Sam-
keppnisráð m.a.: „Til að taka af all-
an vafa um að rekstur sumarhótels
Landbúnaðarháskólans á Hvann-
eyri sem rekið er í samkeppni við
aðra aðila sé ekki niðurgreiddur af
tekjum af annarri starfsemi Land-
búnaðarháskólans eða fjárframlög-
um til hans mælir Samkeppnisráð,
á grandvelli 2. mgr. 14. gr. sam-
keppnislaga nr. 8/1993, fyrir um
fjárhagslegan aðskilnað milli
rekstrar sumarhótels Landbúnað-
arháskólans á Hvanneyri og ann-
arrar starfsemi Landbúnaðarhá-
skólans.” I fjárhagslegum aðskiln-
aði samkvæmt framansögðu felst að
sumarhótelið skal rekið í sérstakri
efhahagslegri einingu innan Land-
búnaðarháskólans á Hvanneyri.
Reikningshald einingarinnar skal
vera sjálfstætt og reikningsskil gerð
í samræmi við meginreglur laga um
ársreikninga. Reikningsskil eining-
arinnar skulu liggja fyrir opinber-
lega með sambærilegum hætti og
almennt gerist. Þegar fjárhagslegur
aðskilnaður á sér stað skal gera
stofhefnahagsreikning. Þær eignir
sem Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri leggur sumarhótelinu
til skulu yfirfærðar á markaðsverði
ef þess er kostur, annars á endur-
kaupsverði að ffádregnum hæfileg-
um afskriftum. Einnig segir í á-
kvörðunarorðunum að skuldir
sumarhótelsins við Landbúnaðar-
háskólann á Hvanneyri skulu bera
markaðsvexti en óheimilt er að
sumarhótelið skuldi Landbúnaðar-
háskólanum á Hvanneyri annað en
lán vegna yfirtöku eigna í upphafi
og lán vegna eðlilegra viðskipta. Ef
sumarhótelið nýtir sér yfirstjórn,
stoðdeildir, fasteignir, tölvuvinnslu
eða annað sameiginlega með Land-
búnaðarháskólanum á Hvanneyri
skal greiða fyrir það eins og um
viðskipti milli óskyldra aðila væri
að ræða. Ef markaðsverð liggur
ekki fyrir skal miða við kostnaðar-
verð að viðbættri hæfilegri álagn-
ingu. Landbúnaðarháskólanum er
gert samkvæmt úrskurði Sam-
keppnisráðs að láta fara fram fjár-
hagslegan aðskilnað samkvæmt
framansögðu eigi síðar en 1. janúar
árið 2001. MM
Póstþjónusta í dreifbýli
Pósfyassar færðir
frá húsunum
Um síðustu mánaðarmót hóf ís-
landspóstur að dreifa pósti daglega
á póstsvæði 311 sem er dreifbýli
Borgarfjarðar norðan Skarðsheiðar
og Mýrasýslu. Undanskilið er þó
Reykholtsdalur og hluti Flókadals
sem hafa póstnúmer 320. íbúar á
svæðinu hafa tekið þessari auknu
þjónustu fagnandi en margir hafa
þó gert athugasemd við bréf sem
sent var til kynningar á breytingun-
um. Þar kemur fram að póstkassar
skuli staðsettir við þjóðveginn þar
sem heimreiðar eru ekki lengri en
500 metrar en víða á svæðinu eru
kassarnir heima á hlaði. Séu þær
lengri skal póstkassinn staðsettur
500 metra frá heimili.
“Eg tel þetta vera lítilsvirðingu
við dreifbýlið. Engum dytti í hug
að bjóða íbúum þéttbýlis upp á að
labba 500 metra að póstkassanum
sínum,” segir Ólafur Guðmunds-
son byggingafulltrúi í Hrossholti á
Snæfellsnesi. “Eg fæ mjög mikinn
póst vegna míns embættis og alls
konar póst sem ekki kemst í póst-
kassann og ég hef ekki fengið að
vita hvort það verður skilið eftir
500 metra frá bænum þar sem það
er í hættu,” segir Ólafur.
Þór Reynisson stöðvarstjóri ís-
landspósts á Akranesi sagði að ekki
væri ætlunin að fara með neinu of-
forsi í þessu máli. “Það sem um er
að ræða er að fylgja samræmdum
reglum sem gilda fýrir allt landið.
Aðstæður verða skoðaðar á hverj-
um stað fyrir sig og póstkassinn
staðsettur í samráði við íbúana,”
segir Þór. Hann sagði að áfram yrði
farið með póstkröfur og ábyrgðar-
bréf heim að dyram.
GE
Nýr aðstoðar-
rektor
Nýlega samþykkti Skóla-
nefnd Samvinnuháskólans til-
lögu rektors um ráðningu á
Bjarna Jónssyni lektor í stöðu
aðstoðarrektors háskólans. Víf-
ill Karlsson núverandi aðstoð-
arrektor mun að eigin ósk
hverfa að kennslustörfum og
rannsóknum auk þess að taka
við starfi sérfræðings hjá At-
vinnuráðgjöf Vesturlands eins
og greint er frá á öðrum stað í
Skessuhorni í dag.
Til skólans hafa nú verið
ráðnir tveir hagfræðingar frá 1.
ágúst nk. Þetta era þeir Magnús
Arni Magnússon og Þorbergur
Þórsson. Magnús Árni hefur í
vor kennt við fjarnámsdeild BS
deildar skólans. Hann stundar
nú doktorsnám í Cambridge á
Englandi. Þorbergur hefur ný-
lokið meistaragráðu í hagfræði
en er helst þekktur fyrir störf
sín að þýðingum, m.a. á Bláu
bók Wittgensteins og Auðlegð
þjóðanna eftir Adam Smith.
MM
Þriðjungur
fílar Björk
Þátttaka í netkosningu
Skessuhornsveflarins fer vax-
andi og í síðustu viku tóku 185
lesendur þátt í kosningunni.
Spumingin var stutt og hnit-
miðuð: „Fílarðu Björk?“
Tæpur þriðjungur eða 61
kjósandi svaraði já, en 124 svör-
uðu neitandi, þannig að þeir
sem ekki „fíla“ listakonuna
svona prívat og persónulega era
helmingi fleiri en hinir þótt
vafalaust gleðjist flestir yfir vel-
gengni hennar.
Ný könnun er þegar hafin á
Skessuhomsvefnum og stendur
hún yfir ff am á næsta þriðjudag.
Spurt er hvort verslanir á Vest-
urlandi séu samkeppnisfærar
við höfuðborgarsvæðið.
Skessuhorn hvetur alla til að
taka þátt í kosningunnni, hún er
öllum opin en þó er ekki hægt
að kjósa tvisvar röð.
Nýr
leikskólastjóri
Sigríður Gréta Þorsteins-
dóttir leikskólakennari hefur
verið ráðin leikskólastjóri leik-
skólans í Olafsvík. Þar hefur
ekki verið starfandi faglærður
leikskólakennari um nokkurn
tíma. Fráfarandi forstöðumaður
leikskólans Guðrún Karlsdóttir
þroskaþjálfi verður aðstoðar-
leikskólastjóri. GE
Vegafram-
kvæmdir
Vegaffamkvæmdir eru nýlega
hafnar á milli Arnarstapa og
Hellna. Um er að ræða rúmlega
þriggja b'lómetra kafla sem
verður tilbúinn með bundnu
slitlagi í haust. Það er verktaka-
fyrirtækið Stafnafell sem annast
verkið. GE
Hitaveitu-
frágangur
Um þessar muncilr er Borgar-
verk að lagfæra götur í Stykkis-
hólmsbæj þar sem grafið hefur
verið fyrir nýju hitaveitunni.
Gert er ráð fyrir að í fyrri um-
ferð verði skurðum lokað og
síðán verði lögð klæðnig yfir
viðkomandi götur. Þegar hafa
210 hús tengst hitaveitunni í
Stykkishólmi og er gert ráð fyr-
ir að 3 80 til 400 hús verði tengd
að lokurn. EE