Skessuhorn - 08.06.2000, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
^BiasunuK..
Bætt afkoma
Sparisjóðs Olafsvíkur
Hagnaður Sparisjóðs Ólafsvíkur á
síðasta ári nam 16,3 milljónum
króna samanborið við 6,9 milljóna
króna hagnað árið 1998. Þetta
kom firam á aðalfundi Sparisjóðs-
ins sem haldinn var á Hótel Höfða
þann 9. maí sl.
Arðsemi eigin fjár var 15,2% sam-
anborið við 8,3% arðsemi ársins
1998. Heildareignir sjóðsins voru
752,2 milljónir króna í árslok 1999
og jukust um 180,6 milljónir króna á
árinu, þar af var aukning údána
111,4 milljónir króna eða 24,4% og
námu þau í árslok 567,9 m.kr. Inn-
lán í árslok voru 421,9 m.kr. og höfðu
aukist um 11,3% ffá árinu áður.
Eigið fé Sparisjóðs Ólafsvíkur nam
123,8 milljónum króna í lok ársins
1999 og hafði aukist um 22,4 m.kr. á
árinu. Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem
reiknað er samkvæmt ákvæðum laga
um viðsldptabanka og sparisjóði er
22,8% en samkvæmt lögunum má
hlutfallið lægst vera 8%.
Stjóm Sparisjóðs Ólafsvíkur var öll
endurkjörin á fundinum en hana
skipa Helgi Kristjánsson, Snorri
Böðvarsson og Bergmundur Ög-
mundsson kjömir af stofnfjáraðilum
og Bjöm Amaldsson og Sveinn Þór
Elínbergsson tilnefhdir af bæjar-
stjóm. Sparisjóðsstjóri er Kristján
Hreinsson. GE
Kristján Hreinsson
Borgarafundur
að Lýsuhóli
Fyrir skemmstu var haldinn
borgarafundur að Lýsuhóli í Snæ-
fellsbæ. Til fundarins boðaði Fram-
farafélag Snæfellsbæjar og kom
fram hjá Guðrúnu Bergmann að
tilgangur fundarins væri sá að virkja
metnaðinn í íbúunum í sveitarfé-
laginu og eyða hrepparígnum sem
ríktí á milli svæða. Víða var komið
við en það sem hvað brýnast brann
á fundarmönnum var fækkun
bænda á svæðinu. Artæða þess mun
vera hækkun á verði rojólkurkvóta
en margir bændur eygja möguleika
á því að selja þar sem gott verð gefst
fyrir lítrann í dag. A móti kemur að
verð á mjólkurkvótanum mun vera
það hátt að fáir hafa bolmagn til að
kaupa jörð með kvóta.
Ferðamál voru mikið rædd á
fundinum og menn veltu fyrir sér
möguleika á aukinni þátttöku
bænda í þeirri grein.
Framfarafélagi Snæfellsbæjar var
Fráfundinum að Lýsubóli
skipt upp í þrjú svæði á aðalfundi
þess sem haldinn var 10. apríl s.l.
Svæðin eru: Ólafsvík og Fróðár-
hreppur, Hellissandur og Rif,
Hellnar/Arnarstapi/Breiðavík og
Staðarsveit. Hvert svæði hefur
þriggja manna stjórn en einn úr
hverri stjóm skipa aðalstjórn Fram-
farafélags Snæfellsbæjar. Að sögn er
þetta gert tíl að efla grasrótarvínn-
una á hverju svæði því áherslur geta
verið mismunandi en aðalstjórnin
getur síðan einbeitt sér að stóm
málunum sem snúa að bæjarfélag-
inu sem heild.
EE
Nýtt hótel
opnað í dag
Stór dagur að Laugum í Sælingsdal
I dag, fimmtudaginn 8. júní, vígir
Sturia Böðvarsson samgönguráð-
herra, nýtt hótel að Laugum í
Dalabyggð. Um er að ræða endur-
byggingu gamla heimavistarhús-
næðisins að Laugum. Eigendur
hótelsins em Dalagisting ehf. sem
sveitarfélagið Dalabyggð á um
helmings hlut í ásamt Búnaðar-
sambandi Dalamanna, Byggða-
stofiiun, Flugleiðahótelum hf. og
fleiri aðilum. Flugleiðahótel hf.
hafa tekið hótelið á leigu og mun
sjá um rekstur þess undir merkj-
um Edduhótela.
Undirbúningur að ffamkvæmdum
við byggingu hótelsins hófst á síðasta
ári. Framkvæmdimar hófúst í byrjun
janúar og lýkur skv. áætlun við vígslu
hótelsins. Framkvæmdimar em
fólgnar í endurgerð á 22 herbergjum
með samtals 40 rúmum. Öll herbergi
era með snyrtingum, síma, sjónvarpi
og þeim þægindum sem til staðar em
í 3ja stjömu hótelum. Jafnframt hef-
ur verið útbúin glæsileg móttaka á-
samt 30 manna fullbúnum fúndarsal
þar sem ró og næði verður tíl að
fúnda í fjarska ffá erh þéttbýlisins en
um leið í nánum tengslum við nátt-
úruna.
Byggingingin er alls um 750 fer-
metrar. Aætlaður kostnaður við verk-
ið er um 70 milljónir króna sem fjár-
magnaður er með eigin fé að stærst-
um hluta. Þá hefur Ferðamálasjóður
veitt 25 milljóna króna lán til ffam-
kvæmdanna. A Laugum em fýrir um
23 herbergi þannig að samtals tekur
hótelið um 100 manns í gistingu auk
svefnpokagistingar. Þá er á staðnum
fullbúið íþróttahús með tækjasal,
útisundlaug og heitum pottum.
Hótelstjóri verður Þurý Bára Birg-
isdóttir en yfirkokkur Þráinn Lárus-
son. Matargerðin að Laugum verður
á þjóðlegum nótum, en við matseld-
ina verður notað íslenskt hráefiú,
m.a. heimafengnar kryddtegundir
auk fjölbreyttra osta ffá Mjólkursam-
laginu í Búðardal.
MM
Umsvifhjá
Atvinnuráðgjöf
í vikunni var gengið frá ráðningu
Vífils Karlssonar sem sérfræðings
hjá Atvinnuráðgjöf Vesturlands.
Vífill fer í fúllt starf hjá Atvinnu-
ráðgjöfinni en mun áfram sinna
stundakennslu við Samvinnuhá-
skólann á Bifröst þar sem hann hef-
ur undanfarin ár starfað sem lektor
auk þess að vera aðstoðarrektor
skólans s.I. ár. Ólafur Sveinsson
forstöðumaður Atvinnuráðgjafar
Vesturlands segir að með þessu
samkomulagi sé markvisst verið að
efla tengsl Samvinnuháskólans og
Atvinnuráðgjafarinnar.
Auk ráðningar Vífils hefur verið
samið við Ingu Huld Sigurðardótt-
ur um starf ráðgjafa í ferðaþjón-
usm með aðsetri í Gmndarfirði.
Ráðning hennar er til áramóta eða
á meðan Sigríður Hrönn Theo-
dórsdóttir vinnur að sérverkefni
fyrir Dalabyggð sem byggist á efl-
ingu búsetuskilyrða í Dalasýslu.
Auk þeirra vinnur Asthildur
Sturludóttir nú fyrir Atvinnuráð-
gjöfina að fjögurra mánaða sér-
verkefni í Stykkishólmi sem er út-
tekt á því hvernig hægt er að nýta
heita vatnið til heilsutengdrar
þjónustu.
MM
ATVINNA - ATVINNA
Handlaginn maður, vanur pípulögnum
óskast til starfa.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst
Vatnsverk / Guðjón Árnason
437 1235 892 4416 896 3142
_______________________________
Bílstjórar!
- afleysingar-
Olíudreifing ehf. leitar að meiraprófsbílstjórum
til sumarafleysinga í Borgarnesi og á Akranesi
Nánari upplýsingar veitir
Þorsteinn Guðmundsson í síma 550-9933
Nýfæddir
Vesdendingar eru
boðnir velkoninir í
heiminn um leið og
nýbökuðum for-
eldrum eru færðar
hamingjuóskir.
29. maí kl. 18:43 - Sveinbam -
Þyngd: 3370 - Lengd: 50 cm.
Foreldrar: Inga Hólmfríður Gunnars-
dóttir og Jónas Þorkelsson, Borgamesi.
Ljósnmir: Lóa Kristinsdóttir.
30. maí kl. 09:50 - Sveinbam -
Þyngd: 4405 - Lengi. 57 cm.
Foreldrar: Laufey Logadóttir og
Franklín S. Ævarsson, Akranesi.
Ljósmóðir: Anna E. Jónsdóttir. Með á
myndinni eru systur sveinsins þær
Hafdís og Aníta.
3275 - Lengd: 50 cm. Foreldrar:
Andrea Huld Jóelsdóttir og Þorsteinn
lngi Vignisson, Akranesi. Ljósmóðir:
Anna Bjömsdóttir.
12. maí kl. 13:09 - Meybam - Þyngd:
2875 - Lengd: 48,5 cm. Foreldrar:
Hulda Hrönn Sigurðardóttir og Pétur
Pétursson, Geirshlíð, Flókadal.
Ljósmóðir: Guðlaug Pálsdóttir, Land-
spítala.
28. maí kl. 09:10 - Sveinbam -
Þyngd: 4545 - Lengd: 56 cm. For-
eldrar: Freyja Guðjónsdóttir og Guðni
Rafn Asgeirsson, Borgamesi.
Ljósmóðir: Anna E. Jónsdóttir.