Skessuhorn - 08.06.2000, Page 5
FIMMTUDAGUR 8. JUNI 2000
5
S2ESSUHOBKI
Bjartsýni er mikil og góð dyggð og gott að
láta ekki hugfallast, þótt eitthvað virðist
bjáta á. Hins vegar getur þetta eins og annað
farið út í öfgar. í sögunni um Birting eftir
Voltaire er persónan Altúnga sem upp-
ástendur, hvað sem á gengur, að við lifum í
hinum besta heimi allra hugsanlegra heima.
Þetta er Pollýönnuleikur í æðsta veldi, og nú
er leiðarahöfundur Morgunblaðsins orðinn
hinn íslenski Altúnga og hin þjóðlega Pollý-
anna. Leiðarinn 31. maí síðastliðinn var ein-
hver hlægilegasta ritsmíð sem lengi hefur
sést; fyrirsögnin var „Þjóðfélag án vanda-
mála“ og þar hrósaði höfundurinn happi yfir
því að við á íslandi skyldum ekki eiga við að
glíma ýmis þau vondu vandamál sem hijá
ýmsar aðrar þjóðir og má það vissulega til
sanns vegar færa. En þegar leiðarahöfundur-
inn fór síðan að hælast um af því að öll okkar
vandamál fyrr á öldinni væru líka leyst, þá
fór heldur betur að slá út í fyrir manninum.
Margt er að vísu satt og rétt um vandamál
sem virtust stór á sínum tíma en hafa nú
annaðhvort eða verið leyst en annað er tómt
þvaður. Til dæmis segir: „Frá því seint á 9.
áratugnum hafa harðar deilur staðið um fisk-
veiðistjómunarkerfið. Ýmislegt bendir til að
tími friðar á þeim vígstöðvum sé í nánd.“
Ýmislegt bendir til!
Það er von að hann nefni ekki hvað það er
sem bendir til íriðar um þessi mál - þvi það
er að minnsta kosti hulið öllum öðram. Og
vaxandi deilur um virkjanir og umhverfis-
mál era afgreiddar þannig að nýjar virkjanir
muni fara í umhverfismat. Þar með séu allar
deilur úr sögunni! Dásamlegast af öllu er
samt hvernig hinn bjartsýni Altúnga Morg-
unblaðsins afgreiðir byggðamálin en við fá-
vísir svartsýnismenn héldum að þar væri við
stóran og vaxandi vanda að glíma, enda
segja allar heimildir að fólksflóttinn frá
landsbyggðinni sé meiri hér en í öðrum sam-
bærilegum löndum. En Altúnga hefur engar
áhyggjur: „Byggðavandinn snýst ekki um
það, hvort leggja eigi áherzlu á að halda
landinu öllu í byggð, heldur hvemig eigi að
gera það.“ Þar með er það vandamál þegar
meirog minna leyst og hægt að komast að
þessari niðurstöðu: „Við erum komin á svip-
að stig og nágrannaþjóðir okkar á Norður-
löndum hafa verið á um skeið, það liggur við
að það sé skortur á ágreiningsefnum.“ Og:
„Þau vandamál, sem við erum að kljást við
frá degi til dags, eru minni máttar.“ Lítilræði
eins og flóttinn af landsbyggðinni, hróplegt
óréttlæti kvótakerfisins, vaxandi misskipt-
ing auðs á íslandi, vaxandi fátækt þeirra sem
minnst mega sín, vaxandi mengun, vaxandi
deilur um umhverfismál, vaxandi eiturlyija-
vandamál meðal unga fólksins - ekkert af
þessu heldur vöku fyrir Altúngu Morgun-
blaðsins. Þetta er til að mynda smáræði mið-
að við að deilur um utanríkisstefnuna skuli
nú vera hljóðnaðar og ekki síður þetta: „í
langan tíma skiptust menn í fylkingar vegna
kalda stríðsins, sem mótaði afstöðu til
manna og málefna, ekki sízt í menningarlíf-
inu. Efnislegt mat á verkum listamanna vék
fyrir pólitísku mati. Sá tími er liðinn og kem-
ur vonandi aldrei aftur.“ Undir þá ósk má
vissulega taka en ætli þetta sé ekki þunga-
miðjan í bjartsýniskasti Moggans. Á sínum
tíma átti ljóðagerð Matthíasar Moggarit-
stjóra undir högg að sækja vegna stjórn-
málaskoðana hans, en nú gengur maður
undir manns hönd að lofa ljóðin og prísa. Og
þar með eru öll vandamál þjóðfélagsins úr
sögunni, eða eru í versta falli „minni háttar".
Að unga fólkið sé í sívaxandi hættu að ánetj-
ast lífshættulegum eiturlyfjum er smáræði
miðað við þá dásemd að þau geta nú í
vímunni lesið ljóð Matthíasar án þess að ótt-
ast að vinstrimenn gefi þeim illt auga. Litlu
verður Vöggur feginn, segir þar. Það er svo
gaman hjá mér og ég er svo vel heppnaður
tappi, þar með hlýtur að vera æðislegt hjá öll-
um. Þetta væri náttúrlega fyrst og fremst
fyndið ef álíka „bjartsýni" og „lífsgleði"
stjórnarherranna 1 landinu, ekki síst Davíðs
Oddssonar, virðist ætla að leiða til að við fljót-
um sofandi að feigðarósi nýrra og stórra
vandamála sem því miður sýna okkur fram
að við lifum aldeilis ekki ennþá í hinum
besta heimi allra heima ...
Illugi Jökulsson
ATVINNA - ATVINNA
| |
Vegna framkvæmda við verslunarmiðstöbina
Smáralind í Kópavogi viljum
við ráða vana trésmiði eða
byggingarverktaka til starfa
I
Upplýsingar í síma 544 4120
I á skrifstofutíma
5
i
s
I
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp við
lögreglustöðina í Borgarnesi,
föstudaginn 16. júní 2000, kl. 17:00,
hafi þær ekki verið áður afturkallaðar
EK-085 TI-899 GX-457 GL-367
GR-940 IA-420 PF-912
Einnig verður boðið upp mikið magn af
notuðum skrifstofuhúsgögnum og ymsir
óskilamunir, svo sem reiðhjól. Auk þess
verður boðinn upp ýmiskonar varningur
t.d. 100 kg. af sykri og ýmsar tollvörur,
t.d. fólksbifreið, varahlutir í mjólkurstöð,
varahlutir í mulningsvél og margt fleira.
5. júní 2000
Sýslumaðurinn í Borgamesi
ISTAK
Verkfræðiþjónusta Akraness ehf. fyrir hönd
Hótels Hellissands ehf. óskar eftir tilboðum í verkið:
YTRI FRÁGANGUR, LAGNIR OG
INNRIFRAGANGUR
tilheyrandi hótelbyggingar félagsins að
Klettsbúð 9, 360 Hellissandi
Hótelbyggingin er tvær hæðir auk þakrýmis. 1. hæð er 430 m2,
2. hæð er 438 m2. Heildarrúmmál er 3.138 m3.
Burðarvirki 1. og 2. hæðar verða risin 1. ágúst n.k.
Helstu verkþættir eru:
Ytri frágangur: purðarvirki þaks og ytri klæðningar þaks
Isetning glugga og hurða
Bycjging skyggna og skjólveggja
Stalstigar utanhúss
Lagnir: Fráveitulagnir innanhúss
Vatnslagnir innanhúss
Hitalagnir og ofnar
i Loftræsting og tilh. vélbúnaður
Hreinlætistæki
5 Raflagnir, raftöflur og lýsing
o
*
| Innri frágangur: Múrverk
i Léttir innveggir
s Málun
Niðurhengd loft
Gólfefni
Innihurðir og innréttingar
Búnaður
Verktími er frá 1. ágúst 2000 til 15. mars 2001.
Útboðsgögn verða afhent frá og með mánudeginum 5. júní 2000
á Verkfræðiþjónustu Akraness ehf. gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 27. júní 2000, kl. 14.00 á
Verkfræðþjónustu Akraness ehf. Kirkjubraut 56, 300 Akranes,
sími 430 3600, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.