Skessuhorn - 08.06.2000, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 8. JUNI 2000
ol^sstitÍÖKM
Klára lærdóminn fyrst
segir Jóhanna Osk Baldvinsdóttir dúx í Olafsvík
Grunnskóla Ólafsvíkur var slitið
með pompi og pragt í Ólafsvíkur-
kirkju í síðustu viku að viðstöddu
fjölmenni. I ræðu skólastjóra,
Sveins Þórs Elinbergssonar, kom
fram að mjög góður árangur hefði
náðst hjá 10. bekk í íslensku. Veitt
voru verðlaun fyrir ffamúrskarandi
árangur í hinum ýmsu fögum og
var Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir þar
fremst í flokki og fékk verðlaun fyr-
ir góðan árangur í íslensku, ensku,
dönsku, og stærðffæði.
,JÚ eflaust er það ekki slæmt“,
segir Jóhanna aðspurð um námsár-
angur sinn. „Eg var með 9,2 í með-
aleinkunn eftir að hafa lokið 10.
bekk“ segir hún. Verðlaunin voru
margvísleg, verðlaunapeningar fyr-
ir ensku, dönsku og stærðfræði og
tvenn bókarverðlaun. Annarsvegar
frá danska sendiráðinu og Lions-
klúbbnum Rán í Ólafsvík auk þess
sem Rótaryklúbbur Ólafsvíkur gaf
annan verðlaunapeninginn og
danska sendiráðið fyrir árangur í
dönsku. „Eg þarf ekki að hafa mik-
ið fyrir lærdómnum, ég reyni að
klára áður en ég geri eitthvað ann-
að.“ Þetta “annað” eru áhugamál
eins og tónlist og leiklist, en Jó-
hanna tók einmitt þátt í uppfærslu á
Þréttándakvöldi eftir Shakespeare
með Leikfélagi Ólafsvíkur í haust.
Hún hyggst einmitt leggja leiklist-
arnám fyrir sig seinna meir. Það
sem tekur við næst hjá Jóhönnu er
hinsvegar nám á nýmálabraut við
Menntaskólann í Hamrahlíð í
haust.
EE
Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir ásamt verðlaunum fyrir góðan námsárangur.
Gámastöð opnuð
í Borgamesi
Stefán Kalmansson bœjarstjóri Borgarbyggðar og Þorsteinn
Eyþórsson framkvæmdastjóri Gámaþjónustu Vesturlands í nýju
gámastöðinni
Síðastliðinn laugardag var formlega opnuð
gámastöð Borgarbyggðar á Sólbakka í Borgar-
nesi. Þar verður tekið á móti sorpi sex daga
vikunnar ffá fyrirtækum og einstaklingum.
Markmiðið er að flokka allt sorp sem kemur í
stöðina og endurvinna það sem hægt er. Samið
hefur verið við Gámaþjónustu Vesmrlands um
rekstur stöðvarinnar.
GE
Að neðan: Fyrsta ruslið í nýju gámastöðina. Olgeir
Helgi Ragnarsson var nuettur á staðinn um leið og stöð-
in var opnuð ogflokkaði sitt rusl af mikilli fagmennsku.
Karlakórinn Heimirfrá Skagafirði var á ferð um Vesturland í síðustu viku og hélt tvenna tónleika, í Félagsheimilinu Klifi í
Ólafsvík fóstudaginn 2. júní og daginn eftir í Stykkishólmskirkju. Fjölmenni var á tónleikunum í Stykkishólmi ogfengu
gestimir góðar viðtökur. Mynd: EE
Bifrestingar á tröppunum framan við Capitolio sem er fyrrverandi þinghús Kubverja í
miðborg Havana.
Bifrestingar á Kúbu
Hópur nýútskrifaðra rekstrar-
ffæðinga ffá Samvinnuháskólanum
tók sér ferð á hendur í tilefni braut-
skráningarinnar. Um var að ræða
12 daga ferð til Kúbu með viðkomu
í Amsterdam. A Kúbu var ýmislegt
haft fyrir stafrii og margt að sjá.
Farið var í ýmsar athyglisverðar
skoðunarferðir t.d. um Havana
höfuðborg landsins. Hópurinn
kom heim föstudaginn síðastliðinn
og eru Biffestingarnir almennt á-
nægðir með ferðina.
EA
Slakt start
í laxinum
Laxveiðitímabilið hófst s.l.
fimmtudagsmorgun með því að
stjómarmenn í Stangveiðifélagi
Reykjavíkur vættu fyrstu flug-
umar í Norðurá. Fyrsti Iax sum-
arsins, 8 punda fisk, veiddi Þór-
dís Bridde fyrir neðan Laxfoss
klukkan 7:30.
Þverá opnaði síðan í kjölfarið s.l.
sunnudag. Veiði fyrstu dagana var
fremur dræm í báðum ánum, en þó
öllu skárri í Norðurá þar sem á há-
degi s.l. þriðjudag höfðu borist á
land 27 laxar. A sama tíma á þriðju-
dag höfðu einungis þrír laxar kom-
ið á land í Þverá. Að sögn starfs-
manns í veiðihúsinu við Helgavatn
höfðu veiðimenn í Þverá séð lítið af
fiski og er þessi opnun með þeim
slakari í ánni. MM
Verður Búðar-
klettur fluttur?
Sparisjóður Mýrasýslu hefur nú
eignast hið gamla og virðulega hús
við Brákarbraut 11 í Borgarnesi þar
sem til nokkurra ára hefur verið
veitinga- og skemmtistaðurinn
Búðarklettur. Miklum fjármunum
var varið til endurbyggingar húss-
ins fyrir nokkrum árum og er það,
miðað við aldur, eitt af glæsilegri
húsum landsins. Engin starfsemi er
í húsinu í dag og verður ekki þar til
hægt verður að selja eða leigja hús-
ið. Hugmyndir eru nú uppi meðal
forráðamanna Sparisjóðsins um að
flytja húsið nær umferðinni og
þjóðvegi eitt. Ef til þess fást tilskil-
in leyfi og hentug lóð má því
allteins búast við að húsið verði
flutt á nýjan grunn áður en langt
um líður. MM
Slæm áhrif á
Tónlistarskólann
Fyrirséð er að upp komi van-
damál hjá Tónlistarskóla Akraness
þegar einsetning grunnskólanna
hefst á næsta ári. Astæðan er sú að í
dag njóta allmargir nemendur
skólans kennslu fyrir hádegi þar
sem þeir sækja grunnskólann eftir
hádegi. Að sögn Lárusar
Sighvatssonar, skólastjóra Tón-
listarskólans, er enn ekki búið að
finna lausn á málinu en verið er að
vinna að tillögum sem unnið
verður úr síðar.
SÓK
Borgar sig
að nota beltin
Nú hefur lögreglan á Akranesi
hafið herferð varðandi notkun ör-
yggisbelta. Að sögn Svans Geirdals,
yfirlögregluþjóns, verða margir
hissa þegar þeir eru sektaðir fyrir
að vera ekki með belti, og virðist
sem fólk geri sér ekki grein fyrir því
að það sé brot á lögum. Sé öryggis-
belti ekki notað nemur sektin 4.000
krónum og sé sérstakur öryggis-
búnaður fyrir barn ekki notaður er
sektin 10.000 krónur. Auk þessa fá
menn einn punkt á ökuferilsskrána.
Svo nú er eins gott að venja sig á að
spenna beltin til þess að vernda
bæði sjálfan sig, börnin og auðvitað
budduna líka.
SÓK