Skessuhorn - 08.06.2000, Page 9
•xutlsaums.- j
FIMMTUDAGUR 8. JUNI 2000
9
Frá afhjúpun verksins á Hellissandi.
Minnisvarði um
sj ómannskonur
A sjómannadaginn var afhjúpað á
Hellissandi listaverkið Beðið í von
eftir Grím Marinó Steindórsson.
Verkið er sett upp í minningu sjó-
mannskvenna fyrri tíma sem biðu á
bakkanum milli vonar og ótta um
hvort bændur þeirra, synir og vinir
skiluðu sér að landi úr greipum
Ægis.
Verkið stendur upp af Brekkna-
lendingunni á Hellissandi þar sem
Þorvaldarbúð stóð áður en þaðan
var áður fylgst með bátum á leið í
land.
Það voru brottfluttir Sandarar
undir forystu Arnars Sigurðssonar
sem ásamt heimamönnum stóðu
fyrir því að minnismerkið var sett
upp. Það voru síðan starfsmenn
Snæfellsbæjar með Hafstein Haf-
liðason í broddi fylkingar sem mót-
uðu umhverfi verksins en verkið og
allur umbúnaður þess er hinn
smekklegasti. GE
Markaleysi
ÍA - ÍBV: 0:0
Rúmlega 900 manns voru mætt-
ir á Akranesvöll til að fylgjast með
viðureign IA og IBV, sem fram fór
þriðjudaginn 6. júní. Skagamenn
byrjuðu leikinn af miklum krafti,
náðu strax góðri pressu á Eyja-
menn sem endaði með því að brot-
ið var á Kára Steini Reynissyni og
fengu Skagamenn vítaspyrnu sem
Sturlaugur Haraldsson tók, en
markvörður Eyjamanna, Birkir
Kristinsson, varði meistaralega.
Hálfdán Gíslason átti skot í þver-
slá undir lok fyrri hálfleiks en
hafði ekki heppnina með sér. Jafn-
ræði var með liðunum í seinni
hálfleik og hefðu bæði liðin hæg-
lega getað skorað, en markverðir
liðanna komu í veg fyrir það með
mjög góðri markvörslu. Andri
Karvelsson var valinn maður leiks-
ins af IA vinum og var vel að því
kominn, en Olafur Þór Gunnars-
son átti einnig góðan leik í marki
Skagamanna. Þess má í lokin geta
að þjálfarinn, Olafur Þórðarson
tók sjálfur þátt í seinni hálfleikn-
um en það dugði ekki til í þetta
skiptið.
SÓK
Söguskilti aflijúp-
uð á Akranesi
Þrjú söguskilti voru afhjúpuð á
Akranesi á Sjómannadaginn. Skilt-
in eru staðsett við þrjá sögufræga
staði, Steinsvör, Breið og Lamb-
húsasund. Skiltin eru kostuð af
Haraldi Böðvarssyni hf., kaup-
mönnum og Akraneshöfn og fjall-
ar texti þeirra um útgerð á Akra-
nesi, sögu Breiðarinnar og upphaf
verslunar á Akranesi. Textinn ætti
að vera allflestum skiljanlegur því
hann er á íslensku, ensku og
dönsku. Einnig eru á skiltunum
gamlar myndir frá viðkomandi
stöðum. Skiltin eru mjög glæsileg í
alla staði auk þess sem þau era
fræðandi um þessa stóru þætti í
sögu Akraness.
Söguskiltið sem stendur á Breiöinni
Vesturland 200o
Mcsturla«d
Ferðablaðið Vesturland 2000 er nú komið út. Þa6 hefur að geyma
ýmsar gagnleaar upplýsingar um ferðaþjónustu og tengda starfsemi
fyrir ferðafólk ó Vesturlandi í sumar. Meðal efnis er Djónustuskró,
viöburðir í sumar og fróóleiksmolar um landið, fó k og sögu.
Blaðið er í A5 broti, prentað í fjórlit.
Blaðinu hefur nú verið dreift til ýmissa verslana og þjónustuaðila
tíl endurgjaldslausrar afhendingar til ferðafólks. Þeir
þjónustuaðilar sem vilja fó blaðið til dreifingar geta haft
samband við útgófudeild Skessuhorns í síma 430 2200.
Útgefendur þakka góðan stuðning við framtakið og vona að blað
jDetta komi til með að nýtast greininni sem best.
Skessuhorn ehf.
Sími 430 2200, fax 430 2201 .