Skessuhorn - 08.06.2000, Blaðsíða 10
J
10
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
jóðfegt (jom
Sauðaþjófar
Heilir og sælir lesendur góðir, til sjávar og sveita
Nýlega bárust fréttir að því að sauðaþjófar væru að störfum á
Suðumesjum. Þessu ber að fagna. Fomar atvinnugreinar
þjóðlegar hafa átt undir högg að sækja allt frá upphafi iðnhylting-
ar og það er löngu orðið tímabært að spyma við fótum.
Á gullöld sauðaþjófnaðar mátti greinin tvímælalaust teljast til |
undirstöðuatvinnuvegar og var hún stunduð um land allt, hvergi i
þó eins ákaft og norðanlands. Svo stórtækir vom Húnvetningar i
í þessum efnum að verðmæti jarða var jafnan metið eftir því hve •
vel þær lágu við sauðaþjófnaði og enn þann dag í dag rekja hún- j
vetnskir ættir sínar eftir dómabókum. Rétt er að taka fram að ■
þetta segi ég Húnvetningum til hróss.
Ekki mun hann þó vera húnvetnskur, en norðlenskur þó, gj
gamli húsgangurinn:
Fjallakauðaforinginn
fantur nauðagrófur
er nú dauður afi minn
Oddur sauðaþjófur
Svo stoltir voru afkomendur Odds þessa af afrekum afa síns að
H þeir fundu sig knúna til að snara hendunni yfir á dönsku til að
gorta af þeim gamla í eyru danskra yfirvalda og kaupmanna:
Bjerges-J<t:de firer rar
fanten r<td med kniven
er nu d<td min bedstefar
Odd, den s<tde tyven.
Sauðaþjófar fyrri tíma vom þó eiginlega tvær stéttir; lægra ;
settir vom almennir sauðaþjófar en sýnu virðulegri vom þó úti- j
legumenn sem höfðust við utan mannabyggða. Ekki er svo að j
skilja að menn hafi unað störfum þeirra neitt betur, þeir voru ein-i
faldlega slóttugri og hættulegri. Það var meiri ástæða til að óttast 1
þá og öllum ótta fýlgir alltaf viss virðing.
Til að samtímamenn átti sig á samhenginu má líkja þessu við j
störf rakkara dagsins í dag. Enginn kann að meta störf þeirra en í
þeir skiptast þó í tvær stéttir. Lægra settir em héraðsdómsrukk- j
arar en sýnu virðulegri eru þó hæstaréttarrukkarar, enda bæði j
slóttugri og hættulegri.
Samanburðurinn nær þó aðeins til almenningsálits en ekki i
þjóðfélagsstöðu því almennir sauðaþjófar fortíðar störfuðu við!
mun hættulegra viðskiptaumhverfi en héraðsdómsrukkarar gera j
nú. Ef uppvíst varð um iðju þeirra máttu þeir búast við handtök- j
um og illri meðferð, og öldum saman vom sauðaþjófar brenni- j
merktir á enni. Oft vom það unglingspiltar sem í því lentu. i
Þannig tryggði samfélagið að þeir ættu þess aldrei kost að verða |
heiðvirðir bændur. Þeir áttu engra kosta völ annarra en að halda í
áfram sauðaþjófnaði, betli og brannmigum ævilangt. Enda varð j
sú raunin á að þegar hinum grimmilegu refsingum var hætt varð ;
mikil fækkun í sauðaþjófastétt.
Okkur kann að þykja grimmd liðinna yfirvalda óskiljanleg en i
ef hver og einn skoðar sitt innsta eðli þá kemur í ljós hvaða eðlis- !
lægu skýringar liggja að baki. Ég er þess fullviss að meðal lesenda ;
em þeir ófáir sem teldu það til hóta að merkja stöðumælaverði með j
þessum hætti svo fórnarlömb þeirra gætu bundist samtökum um •
að veita þeim enga þjónustu. Lesendur sem afgreiðslustörfum i
sinna skilja örugglega hinn fullkomna sigur sem fælist í því að!
geta sagt: „jú jú, við eigum þetta til, en því miður, við afgreiðum j
ekki stöðumælaverði, lögfræðinga eða sauðaþjófa".
Verið kært kvödd á fiórða Þórsdegi í Skerplu. 1
Bjarki Már Kartssou
sjálfskipaöur þjódháttafræömgur /j
-•a^S,
Uppslátturinn á þaki Hraðfrystihúss Hellissands.
s
A toppnum
Fyrir tæpum mánuði síðan var
hafist handa við að slá upp fyrir 150
fermetra skrifstofuhúsnæði Hrað-
frystihúss Hellissands. Húsið mun
þó ekki verða reist á jörðu niðri,
heldur er slegið upp fyrir því á þaki
Hraðfrystihússins. Að sögn bygg-
ingameistarans, Jónasar Kristófers-
sonar ffá Rifi, er gert ráð fyrir því
að klára skrifstofuhúsnæðið að utan
í júni. Hvað varðar verklok, þá er
stefht að því að klára fyrir næsm
vertíð. Skrifstofuhúsnæðið mun
verða skipt upp í tvær skrifstofur og
fundarherbergi.
EE
Nýi afgreiðslusalur Búnaðarbankans í Stykkishólmi.
Mynd: EE
Breyttar aðstæður
kölluðu á breytingar
Nýverið var lokið breytingum
innandyra í Búnaðarbankanum í
Stykkishólmi. Breytingarnar stóðu
yfir í vikutíma og tókst vel til en á
meðan á breytingum stóð var af-
greiðslan færð upp á næstu hæð. Að
sögn Kjartans Páls Einarssonar,
útibússtjóra Búnaðarbankans, var
komin full þörf á að skipta um inn-
réttingar enda þær gömlu búnar að
standa frá stofhun Búnaðarbankans
fýrir 35 árum síðan. EE
Fermingar um
Hvítasunnuna
Hj arðarholtsprestakall
Prestur sr. Óskar Ingi Ingason
Fermingarböm í Hjarðarholtskirkju II. júní 2000 kl. 14:
Kolbrún Jónsdóttir, Lækjarhvammi 9, Búðardal.
Víðir Kári Kristjánsson, Gunnarsbraut 5, Búðardal.
Skúli Hlíðkvist Björnsson, Sunnubraut 14, Búðardal.
Hlynur Páll Guðmundsson, Sámsstöðum II, Laxárdal.
Stafholtsprestakall
Fermingarböm í Stafholtskirkju II. júní 2000 kl. 11.00:
Ásgeir Ingvi Ásgeirsson Varmalandi
Guðmundur Garðar Brynjólfsson Hlöðutúni
Kjartan Guðjónsson Síðumúlaveggjum
Laufey Oddný Jónmundsdóttir Skarðshömrum
Sindri Freyr Steinsson Bifröst
Snorri Þorsteinn Davíðsson Hvassafelli
Steinunn Þuríður Bjarnadóttir Borgarnesi
Hegcjarb&hornib
Stefhubreytinff
Eftirfarandi samtalum talstöð á
að hafá átt sér stað milli bandarísks
herskips og Islendinga úti fyrir
Snæfellsnesi á tímum kalda stríðs-
ins:
Islendingar: Vmsamlegast breyt-
ið stefnu ykkar um 15 gráður í vest-
ur til að forðast árekstur.
Bandaríkjamenn: Við mælum
með að þið breytið stefnu ykkar um
15 gráður í austur dl að forðast á-
rekstur.
Islendingar: Neikvætt. Þið verð-
ið að breyta stefnu ykkar um 15
gráður í vestur til að forðast árekst-
ur.
Bandaríkjamenn: Þetta er skip-
stjóri bandarísks herskips sem talar.
Breytið stefnu ykkar tafarlaust!
Islendingar: Nei, ég endurtek
breytið stefriu ykkar.
Bandaríkjamenn: Þetta er USS
Lincoln, næst stærsta flugmóður-
skip í bandaríska flotanum. í fylgd
okkar eru þrjú herskip, fjórir mnd-
urspillar og fjölmörg aðstoðarskip!
Ég krefst þess að þið breytið stefnu
ykkar um 15 gráður í austur, ég
endurtek 15 gráður í austur til að
forðast árekstur eða við grípum til
viðeigandi aðgerða til að verja skip
okkar!
Islendingar: Þetta er Öndverðar-
nesviti. Við endurtökum...
Píííínulítið
Guðjón, þessi ákaflega fallegi
maður, ákvað að það væri hans hlut-
verk í lífinu að kvænast fallegustu
konu í heimi og eignast með henni
fallegasta bam veraldar.
Hann byrjaði að leita að falleg-
ustu konunni, en eftir langa og
stranga, en árangurslausa leit á höf-
uðborgarsvæðinu lagði hann af stað
vestur á land. Eftir tíðindalaust
ferðalag kom hann í dalverpi eitt
nálægt Borgamesi og þar á bæ ein-
um hitti hann bónda sem átti þrjár
dætur, hver annarri fegurri. Guð-
jón útskýrði fyrir bóndanum á
hvaða ferð hann var og spurði
bóndann hvort hann mætti kvænast
einni af dætmm hans.
Bóndinn sagði „Þær em allar á
höttunum eftir eiginmönnum, svo
þú skalt bara taka þá sem þér líst
best á.“
Guðjón fór út með elstu dóttur-
inni. Daginn eftir spurði bóndinn
hvað honum findist um hana.
„Tjah,“ sagði Guðjón. „Hún er
bara píííínulítið, ekki svo að maður
taki neitt eftir því, kiðfætt.“
Bóndinn kinkaði kolli og bauð
Guðjóni að fara út með annarri
dótturinni, svo Gaui litli bauð mið-
systurinni út.
Daginn eftir spurði bóndinn
hvað Guðjóni findist um hana.
,Ja,“ sagði hann, „Hún er bara
píúínulítið, ekki svo að maður taki
neitt eftir því, rangeygð.“
Bóndinn var sammála því og
bauð Guðjóni að tala við yngstu
dótturina og Guðjón bauð henni
út.
Daginn eftir kom Guðjón hlaup-
andi inn og sagði „Hún er fullkom-
in, hreint út sagt fullkomin! Hún er
fallegasta kona á jarðríki. Hún er sú
sem ég vil kvænast og eignast með
fallegustu börn veraldar!“ Og þau
giftust strax daginn eftir.
Um það bil níu mánuðum síðar
fæddist lítið bam. Guðjón fór á
fæðingardeildina til að sjá fallegasta
barn í heimi, en þá fékk hann að sjá
eitthvað það al-ljótasta og
skakkasta og hræðilegasta barn sem
hægt er að ímynda sér. Guðjón
æddi til tengdaföður síns og spurði
hvemig á þessu stæði, miðað við
hvað foreldramir væru báðir falleg-
ir.
„Tjah,“ sagði bóndinn, „Hún var
bara píííínuh'tið, ekki svo að maður
tæki neitt eftir því, ólétt þegar þú
hittir hana.“!
j j\.
matnstx
L