Skessuhorn - 08.06.2000, Page 14
14
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
jsUJUtlU..
Gert klártfyrir kajakróðurinn. Mynd: EE
Kajakræðarar á ferð
Menn vissu ekki hvaðan á sig
stóð veðrið þegar hópur kajakræð-
ara gerði sig kláran til að róa á sjó
út í fjörunni undan Stykkishólms-
kirkju fyrir skemmstu. Þegar nánar
var að gáð kom í ljós að hér voru á
ferð 30 meðlimir Sjókajakafélags
Islands ásamt meðlimum Ultima
Thule Expeditions, en Ultima
Thule hafa staðið fyrir kajakferð-
um víða innanlands og erlendis.
Róið var í kringum eyjarnar í
Breiðafirðinum. Flestir úr hópnum
voru alvanir en inn á milli voru ó-
vanir sem gátu valið um styttri
ferðir með leiðsögn. Kajakræðarar
voru heppnir með veður, stillt var
og hlýtt. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem róið er í skipulögðum
hópum frá Stykkishólmi og standa
vonir til að meira verði um slíkt.
EE.
Góður árangur
Skagamanna
Hið árlega ESSO sundmót fór
fram í Jaðarsbakkalaug á Akranesi
dagana 2. - 4.júní. Um 300 þátttak-
endur voru á mótinu. Það var
Keflavík sem fór með sigur af
hólmi að þessu sinni, en IA lenti í
öðru sæti. Margir sundmenn héðan
náðu góðum árangri og var Akur-
Guðgeir Guðmundsson
nesingurinn Guðgeir Guðmunds-
son kosinn sundmaður mótsins.
Hann sigraði í öllum sínum grein-
um og Kolbrún Yr Kristjánsdóttir
gerði sér lítdð fyrir og lék sama leik-
inn.
Einnig komust á verðlaunapall:
Elín M. Leósdóttdr, Anna L. Ar-
mannsdóttir, Jóhann Ragnarsson,
Agúst Júlíusson, Óli Valur Þrastar-
son, Leifur Grétarsson, Hinrik Þ.
Guðbjartsson, Þorbjöm Heiðars-
son, Stefán Atli Olason, Aþena Júl-
íusdóttir, Hulda Halldórsdóttir og
Karitas Jónsdóttir auk þess sem
sveitir IA gerðu það gott og unnu
tvö gull-, ein silfur- og tvenn
bronsverðlaun.
I ár var slegið Islandsmet á mót-
inu þegar Orn Arnarson, sundmað-
urinn knái úr SH, bætti sitt eigið
met í 400 m skriðsundi um sek-
úndu.
SÓK
Hlaupakonur í ham
Hópur kvenna af Akranesi æfir
stíft þessa dagana fyrir hið svokallaða
Brúarhlaup milli Danmerkur og Sví-
þjóðar yfir Eyrarsundið, en það er
haldið í tilefni opnunar nýrrar brúar
og gangna þar á miUi þann 12. júní
næstkomandi. Hlaupið hefst við
munna ganganna í Kastrup, en
göngin eru um fjögurra kílómetra
löng og Hggja um 20 m tmdir sjávar-
máli. Eftir það tekur við 4 km löng
eyja, þá brúin sem er 8 km og loks
hlaupa þátttakendur 5 km í Svíþjóð
eftir að brúnni sleppir. Alls em þetta
rétt rúmlega 21 km eða hálfmaraþon.
Aætlað er að um 90.000 manns muni
taka þátt í hlaupinu og verða 15.000
ræstir á hverri klukkustund.
Að sögn Sigríðar Ragnarsdóttur,
tilvonandi Brúarhlaupara, eru þær tíu
sem ætla sér að hlaupa Brúarhlaupið
ásamt einum fylgifiski. Fyrirtækið
Aqua á Akureyri styrkir þær með því
að leggja til boh og húfur. Sigríður
segir þetta aðallega til gamans gert,
en um tvö ár eru síðan þær skráðu sig
í hlaupið og æfingar hafa staðið yfir
síðan. SÓK
Nokkrir af þátttakendunum í skemmtiskokki. Mynd: SOK
Akraneshlaupið
Akraneshlaupið fór ffam á Akra-
nesi laugardaginn 3.maí síðasthðinn,
en það hefur verið árlegur þáttur í
bæjarlífinu síðasdiðin 8 ár. Að þessu
sinni sáu Ungmennafélagið Skipa-
skagi og Sjálfsbjörg um hlaupið í
sameiningu. Um 250 manns létu skrá
sig í hlaupið og voru þeir á aldrinum
2-76 ára og elsti keppandinn, Þor-
steinn Þorvaldsson, lét sig ekki muna
um að hlaupa hálfrnaraþon (21 km).
Hann var annar tveggja Skagamanna
sem það gerðu, en rúmlega 40 manns
voru skráðir. Af þessum 40 kom Dan-
íel Smári Guðmundsson fyrstur í
mark og er hann því íslandsmeistari í
hálfmaraþoni þetta árið, því hlaupið
var Islandsmót. Boðið var upp á 10
km hjólreiðar og Skagamaðtirinn
Kristinn Einarsson sigraði þar auð-
veldlega. I 10 km hlaupi var aldurs-
flokkaskipting, en fyrstur allra kepp-
enda í mark var Hugi Harðarson,
enda var hann á hraðferð þar sem
næsti áfangastaður var hans eigið
brúðkaup! Margir af yngri kynslóð-
inni nýttu sér þann möguleika að fara
3,5 km á línuskautum og fyrstur
þeirra varð Sveinn Kristjánsson.
Keppendur fengu gott hlaupaveður
og allir fengu þeir bol, verðlaunapen-
ing, veitingar og firítt í Bjamalaug að
hlaupi loknu. Einnig var dregið úr
rásnúmerum einstaklinga og fengu
nokkrir heppnir þátttakendur vinn-
inga. SÓK
• HtM*
tcm.m * tw*wc*,i m I
mmmmáaa&mMMá
Keppendur stinga sér til sunds.
Rúnar Mdr d góðri siglingu og í glæfralegu stökki d mótorkrosshjólinu d Breiðinni
Mótorkross í Snæfellsbæ
Fyrir ári síðan rissaði Rúnar Már
Jóhannsson, sjómaður f Ólafsvík og
vélahjólaáhugamaður, upp hug-
myndir sínar að keppnishring fyrir
mótorkross sem staðsettur skyldi á
Breiðinni skammt utan við Ólafevík-
urenni. Rúnar Már, ásamt félögum
sínum tveimur, þeim Svani
Tómassyni og Tómasi Sigurðssyni,
sem reka verktakafyrirtæki, voru
búnir að velta þessu fyrir sér í tvö ár
og lém loks verða af því þegar þeir
sóttu um hjá bæjarstjóm Snæfellsbæj-
ar. Umsókn þeirra fékk góðar viðtök-
ur hjá bæjarstjóm og affakstur þess
má sjá á 1300 metra langri braut sem
Rúnar már, áhugamenn um mótor-
kross í Snæfellsbæ og bæjarstarfe-
menn hafa útbúið. Fyrsta mótor-
krossmótið á brautinni er fyrirhugað
þann 2. júlí n.k.
“Með tilkomu brautarinnar gefet
gott tækifæri til að endurlífga
BDCON sem var mótorkrossklúbbur
og blása nýju hfi í starfeemina. I
kringum félagsskapinn standa 15-16
manns og nær áhuginn alla leið ffá
sjötugu og niðri í 4 ára, þó vafamál sé
hvort sá yngsti fí strax tækifæri til að
keppa”, segir Rúnar. EE