Skessuhorn


Skessuhorn - 13.07.2000, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 13.07.2000, Blaðsíða 1
Samvinna sveitarfélaga á Snæfellsnesi: Sameiginleg félags- og skólaþjónusta í mars á þessu ári var undirritað samkomulag fjögurra sveitarfé- laga á Snæfellsnesi um rekstur sameiginlegrar félags- og skóla- þjónustu. Að samkomulaginu standa Stykkishólmsbær, Eyrar- sveit, Snæfellsbær og Helgafells- sveit. Hin nýja stofinun hefiir nú tekið tdl starfa og er skrifstofa hennar staðsett í húsnæði Landsbanka Islands á Hell- issandi. Skrifstofan var opnuð með formlegum hætti síðastliðinn fimmtudag að viðstöddu fjölmenni. Margt góðra gesta bar að garði og voru meðal annarra Páll Pétursson félagsmálaráðherra og Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra mættir á Hellissand af þessu tilefiú. Við Fé- lags- og skólaþjónustu Snæfellinga, eins og stofhunin er nefnd, eru til að byrja með þrjú og hálft stöðu- gildi og hafa þau öll verið mönnuð. Sigþrúður Guðmundsdóttir mun veita stofhuninni forstöðu. I ávarpi sínu á samkomunni greindi hún frá því að ffamundan væri mikið starf sem varðar uppbyggingu og þróun starfseminnar. Sigþrúður kveðst á- nægð með starfsfólkið og bjartsýn á samstarfíð. Að sögn Sigþrúðar verður í starfi skrifstofunnar lögð á- hersla á samnýtingu þekkingar, reynslu og úrræða og góð tengsl við íbúa svæðisins. Páll Pémrsson ávarpaði sam- komuna og hvaðst fagna átaki í fé- lags- og skólaþjónustu á Snæfells- nesi. Hann kom í máli sínu inn á mikilvægi þess að verkefnum sem þeim er skrifstofan mun hafa með höndum sé sinnt í héraði. Einnig kom fram í ávarpi Páls að fyrir Al- þingi liggi nú ffumvarp til laga þar sem skerpt sé á skyldum sveitarfé- laga en tilgangur frumvarpsins sé að styrkja sveitarstjórnarstigið og þar með byggðirnar. Einnig sé ljóst að auknum skyldum sveitarfélag- anna fylgi aukin fjárþörf og því sé nú nefnd að störfum sem vinni að endurskoðun tekjustofha sveitarfé- laga. Snorri Þorsteinsson færði Snæ- fellingum kveðjur fyrir hönd Skóla- skrifstofu Vesturlands. I ávarpi sínu lagði hann áherslu á það að í starfi sem því sem stofhunin mun hafa með höndum sé mikilvægt að huga vel að hvers konar forvamarstarfi en ekki beina einungis sjónum að fyrirliggjandi úrlausnarefnum. Einnig benti hann á að vert væri að íhuga hvort slík stofnun væri ekki enn sterkari ef sveitarfélög þau sem að henni standa væru sameinuð. Margir fleiri ávörpuðu samkom- una og komu á framfæri velfarnað- aróskum og virðast menn bjarsýnir á það starf sem framundan er í skóla- og félagsmálum á Snæfells- nesi. EA Starfsvienn stofnunarinnar; SigþníSur Guðmundsdóttir fontöðumaður, Klara Braga- dáttir sálfrœðmgur, Una Jóhannesdóttir skólaráðgjafi og Stefán Jóhann Sigurðsson skrif- stofustjóri. Lyfja opnar á Skaganum í haust Nú hefur verið gengið firá samningum um að Lyfja opni nýtt apótek í Skagaveri á Akranesi. Fram- kvæmdir hafa ekki verið hafhar ennþá, en ætlunin er að opna apótekið á haustmánuðum. Að sögn forstöðumanna Lyfju kemur hið nýja apótek tdl með að verða 150 fermetrar að flatarmáli. Þeir segja markmið sitt fyrst og fremst vera það að bjóða upp á sömu þjónustu og lyfjaverð og er í verslunum Lyfju í Reykjavík og leggja áherslu á að lágt verð hafi verið að- aleinkenni þeirra frá því fyrsta verslun þeirra hafi verið opnuð í Lágmúlanum. Auk þess er ætlunin að bjóða upp á mjög breitt vöruúrval. Fyrsta skrefið segja þeir þó vera að ráða lyfsala til að veita apótekinu forstöðu, auk þess sem finna þurfi lyfjafræðinga og annað starfs- Karen sigraði á Landsmóti hestamanna Karen Líndal Marteinsdóttdr úr hestamannafélaginu Dreyra sigraði í ungmennaflokki á hestinum Manna frá Vestri- Leirárgörðum á Landsmóti hestamanna í Reykjavík sem fram fór um síðustu helgi. Karen hlaut 8,72 í einkunn úr forkeppninni og 8,69 í úrslitun- um. Hún var að vonum ánægð með sigurinn, en þau leiðu mis- tök voru gerð að sá sem varð í öðru sæti, Matthías Barðason, var tilkynntur sigurvegari í stað hennar. Hún segir það þó hafa verið leiðrétt daginn eftir og þau fengin upp á svið þar sem skipst var á bikurum. Ekki létu aðstandendur móts- ins það nægja, heldur fengu þau Matthías og Karen utanlandsferð í sárabætur. Karen sagðist þó ekki enn vita hvert ferðinni væri heit- ið, en sagði að það hefði verið orðað sem svo að miðinn gilti hvert á land sem er innan Evr- ópu. Ekki amalegt það.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.