Skessuhorn - 13.07.2000, Blaðsíða 5
§SiíS»IÖH©BK!
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2000
5
Fyrirsögnin boðar ekki að pistlari
fagni á næstunni einhverjum tíma-
mótum í lífi sínu og verði að heim-
an, eins og sagt er. Eftir síðustu
fréttum að dæma væri hins vegar
ekki svo fráleitt að flytjast af landi
brott tímabundið og græða með því
talsverða ijármuni jafnvel þótt til-
efnið væri ekki þess eðlis að til-
kynnt jrði í fjölmiðlum. Á meðan
gætu Neytendasamtökin og heild-
og smásalar haldið áfram að deila
um hvort verið sé að bera saman
epli og appelsínur í nýlegri verð-
könnun samtakanna eða sambæri-
legri ávexti.
Jafnframt gæfist Samkeppnis-
stofnun og öðrum þar til bærum yf-
irvöldum svigrúm til að ganga í
málið og eyða óvissu almennings,
annað hvort með því að lýsa því yfir
að íslenskir neytendur hefðu verið
gróflega sviknir eða að fullkomlega
eðlilegar skýringar væru á langtum
hærra matvöruverði hér á skerinu.
Þó er ekki frekar en endranær við-
búið að gengið yrði svo hreint til
verks. Næsta örugglega mundu
nýjar deilur kvikna og magnast í
persónulegt skítkast og almenn-
ingur stæði uppi jafn óviss eftir
sem áður.
Fjölmiðlar þyrla upp moldviðri í
kringum mál af þessu tagi og herja
á málsaðila um yfirlýsingar. Upp-
runalegt inntak málsins gleymist
og almenningur smjattar á mál-
hreysti aðila og hefur nokkurt gam-
an af. Auk þess stendur þannig á
núna að íslenska samfélagið leggst í
sinn árlega þriggja mánaða dvala
meðan lýðurinn er í sumarleyfi og
hefur annað þarfara að gera en að
hugsa um matvöruverð og hugsan-
lega óprúttna (stór)kaupmenn.
Almenningur nýtir illa samtaka-
mátt sinn. Einhvern veginn leyfir
þjóðarsálin ekki að menn standi
saman um að gæta sameiginlegra
hagsmuna. Það stendur téðri sál
miklu nær að hafa að orði hið forn-
kveðna ‘Æ, það reddast’ og snúa sér
að skemmtilegri málum en lífs-
björginni.
Menn láta sem sé ýmislegt yfir sig
ganga. Fjörutíu prósenta hækkun á
bensínverði á fáeinum mánuðum
og nærri 30 prósenta hækkun á ið-
gjöldum bifreiðatrygginga í einni
svipan. Slíkar tölur hafa ekki sést
síðan verðbólgan herjaði hér sem
skæðast. Taka ber eftir því að í báð-
um þessum tilvikum er um að ræða
hækkanir sem verða upp á pró-
sentubrot eins og hjá aðilum sem
ættu með réttu að keppa innbyrðis
um hylli viðskiptavinanna. Menn
virðast láta sér það í léttu rúmi
liggja og Samkeppnisstofnun er
ekki nægilega öflug eða virt stofn-
un til að gera neitt í málinu.
Ef íslenskir nejdendur eiga að
gera sér vonir um að komið sé fram
við þá af virðingu er nauðsynlegt að
þeir geri öllum ljóst að þeir láta
ekki bjóða sér hvað sem er. Eins og
er virðist óhugsandi að nokkur
söluaðili geti verðlagt sig út af
markaðnum. Þó má ljóst vera að
víða verður þröngt í búi þegar slík
ósköp gerast.
Nýlegt dæmi í Danmörku ber vott
um önnur viðhorf meðal neytenda.
Brúarmenn á Eyrarsundi höfðu bú-
ist við miklum önnum við að hleypa
forvitnum Dönum og Svíum um
greiðsluhlið nú meðan nýjabrumið
er sem mest. Ferjumenn sem hafa
fram að þessu séð um samgöngur
yfir sundið höfðu allt eins búist við
að þurfa að leggja árar í bát. Kostn-
aður við að aka bíl um brúna er hins
vegar tæplega tvöfaldur samanbor-
ið við siglingu með ferju og ekki er
að spyrja að því að hinir hagsýnu
Danir og Svíar fara frekar með
ferju og spara sér nokkra hundrað-
kalla.
Dani nokkur hugsaði þó ekki um
peninginn heldur sagði sem svo:
Það er ekki hægt að fara úr bílnum
á miðri brúnni til að pissa!
Lars H. Andersen
Ydun Duo frá Danmörku, Lise Lotte Riisager
mezzosópran og Morten Spanggaard gítarleikari
halda tónleika í Stykkishólmskirkju
fimmtudaginn 13. júlí nk. kl. 20:30
A efnisskránni eru verk eftir:
P. E. Lange, Egil Harder, Carl Nilsen, Johann Sebastian
Bach,
og einleiksverk jyrir gitar eftir Manuel de Falla
Aðgangseyrír kr. 500,-
fyrir 14 ára og eldrí
Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju
2000
ÍMJbUNDAR
Kristnihátið í
Borgarfjarðarprófastsdœmi
Æmr
Héraðsmessa við Krosslaug
í Lundarreykjadal,
sunnudaginn íó.júlíkl 14
Við Krosslaug voru vestanmenn skírðir á leið frá
Alþingi árið 1000. Þessa minnuinst við mi með
messu á merkum sögustað.
Prestar prófastsdæmisins þjóna að messunni. Séra
Flóki Kristinsson sóknarprestur á Hvanneyri
predikar. Félagar úr kirkjukómm prófasts-
dæmisins leiða söng. Ungmenni fara fyrir
skrúðfylkingu. Barn verður borið til skírnar.
Við hvetjum Borgfirðiriga og gesli okkar að
koma til guðsþjónustunnar\ eiga sarnan
lofgjörðarstuna og þakka samfylgd kristni
og þjóðar í þúsund dr.
Prófastur