Skessuhorn


Skessuhorn - 13.07.2000, Síða 4

Skessuhorn - 13.07.2000, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 13. JULI 2000 Stoke á Skaganum Islendingaliðið Stoke City er nú í heimsókn á Akranesi, en hópurinn var sóttur til Keflavík- ur í gærkvöldi. I dag er ætlunin að fara með mannskapinn í sjóstangaveiði auk þess sem þeim verður boðið í kvöldmat á Hótel Barbró. A morgun, 14. júlí, mætast svo Stoke City og IA á Akranesvelli klukkan 18:30 og eflaust eiga Skagamenn og aðrir eftir að fjölmenna á þá viðureign. Friðarstund í Stykkishólmi Franciskussystur héldu frið- arstund í kapellunni í Stykkis- hólmi þann 11. júlí síðastliðinn. Klausturregla þeirra ákvað á síðasta ári að árið 2000 yrði nýtt til að hugleiða hina liðnu tíð og sá sönnu frækomi friðar. Regla þeirra systra ákvað að bæna- stundirnar í þeirra héraði, sem nær yfir Belgíu, Holland, Fær- eyjar og Island, yrðu haldnar í vikunni 9.-15. júlí. Friðarstund- in hófst klukkan átta og auk þess að biðja bænir, hlýddu viðstadd- ir á guðspjall, hugleiddu og hlustuðu á tónlist. SÓK Garðastál sameinað Vímeti - Stefán Logi framkvæmdastjóri beggja fyrirtækjanna Miklar sviptingar hafa verið hjá Vímeti í Borgamesi að undanfömu. Þann 19. maí s.l. var gengið frá kaupum Límtrés á Flúðum á tæpum 60% hlutafjár í fyrirtækinu og þann 23. júní keypti Límtré fyrirtækið Garðastál í Hafhafirði. Fyrirhugað er að flytja framleiðslu Garða- stáls í Borgames og sam- eina rekstri Vímets frá og með næstu áramótum. Þessi tvö fyrirtæki hafa ver- ið áberandi stærst í fram- leiðslu stálklæðninga hér á landi og efrir sameininguna telja eigendur og stjóm- endur Vímets að fyrirtækið sé betur í stakk búið að keppa við innflutning. „Alenn sáu að þama gætu orðið gríðarleg samlegðará- hrif,” segir Stefán Logi Har- aldsson framkvæmdastjóri Vímets. “Þetta gengur út á að nýta tdl fullnustu það húsnæði sem við höfum í Borgamesi sem er 4300 fermetrar að flat- armáli og hugsanlega þurfum við að stækka það lítillega. Samlegðaráhrifin felast ekki síst í því að verkefni hjá stoðdeildunum aukast. Rekstur járnsmiðjunnar hefur verið erfiður en þetta gefur okkur betri möguleika á að halda henni gangandi. Þá getum við boð- ið breiðari framleiðslulínu og betri þjónustu. Markmiðið er síðan að við fáum svigrúm til að lækka verð- ið og verðum þar með samkeppnis- hæfari,” segir Stefán. Sameinað um áramót Stefán segir að Garða- stál verði rekið í Garða- bæ með óbreyttu sniði til áramóta að öðm leyti en því að hann er orðinn framkvæmdastjóri beggja fyrirtækjanna. Um áramót verða vélar og tæki væntanlega flutt í Borgarnes en fyrirhug- uð sameining á eftir að fara fyrir hluthafafund Vímets hf. Starfsmönn- um Garðastáls sem em sjö að tölu hafa verið boðin störf hjá Vírneti í Borgarnesi og í Reykja- vík en þar er fyrirhugað að reka söluskrifstofu. Stefán segir eftir að koma í ljós hver fjölgun- in verður á störfum í Vímeti með sameining- unni. “Það er hluti af hagkvæmninni að nýta betur vélar og mannskap en það má reikna með að a.m.k. fimm störf bætist við. Við vonum síðan að sjálfsögðu að áhrif þessara breytinga leiði af sér enn meiri fjölgun,” segir Stefán. Þegar Límtré keypti hlut KB í Vírneri komust fljótt á kreik sögur þess efnis að fyrirtækið yrði flutt úr héraðinu en Stefán segir það aldrei hafa staðið tril. „Alenn höfðu ákveðnar áhyggjur af því að meirihlutaeign í fyrirtæk- inu færðist úr héraðinu en Kaupfé- lagið vandaði sig við að finna kaup- anda að sínum hlut og það hefur komið í ljós að ótti manna var á- stæðulaus. Eigendur Límtrés hafa reynslu af fyrirtækjarekstri á lands- byggðinni og era ekki haldnir þeim komplexum að allt þurfi að gerast í Reykjavík. Ég held líka að það sem gerst hefur eftir eignabreytinguna sýni að það er ekki vilji til að flytja fyrirtækið úr héraðinu heldur þvert á móti að bæta við það,” segir Stef- án. Máttu vera bjartsýnni Aðspurður um hvort sveitarfélag- ið sé í stakk búið að taka við frekari þenslu í atvinnulífinu segist Stefán vona að svo sé. “Menn hefðu mátt vera bjartsýnni þegar Hvalfjarðar- göngin vom í bígerð. Ahrifin em að gera vart við sig og möguleikar Borgarness era mjög miklir. Hér er gott að reka fyrirtæki og gott að búa og ég er sannfærður um að héraðið á bjarta ffamtíð ef menn bera gæfu til að bregðast við nýjum aðstæð- um,” segir Stefán að lokum. GE Vegabætur á Snæfellsnesi Traffiká Eiríksstöðum Fjölmargir ferðamenn hafa lagt leið sína að Eiríksstöðum í Haukadal eftir að starfsemi hófst þar þann 24. júní sl. Bær- inn verður hinsvegar ekki opn- aður formlega fyrr en helgina 10.-12. ágúst á hátíð Leife Ei- ríkssonar. GE köfuðtorgarsvæðiá. i Mikil vinna. 1 Upplýsingar í símum 8Q8 1078 og 8Ó4 0Ó53 Vesturland í sókn! Óskað eftir á söluskrá: Eignarlöndum, fyrirtækjum, kvóta- og krókaleyfisbátum sem og öðrum íbúðum og húseignum. i Aukin eftrspurn - aukin j sala! 5 f Nánari upplýsingar gefur s Knútur í síma 899 1813 x ■ 'U'Húsvangur IFasteignasala Starfsmenn Klæðningar ehf. vinna nú af fullum krafri við vega- bætur á Olafsvíkurvegi og Utnes- vegi á Snæfellsnesi. Vegurinn frá Öxl að Stóra Kambi verður klárað- ur nú í haust en áætluð verklok á Enn eykst þátttaka í netkosningu Skessuhorns og nýtt met féll í lið- inni viku þegar 321 lesandi kaus á vefhum. Spurt var hvort auka ætti hámarkshraða í 110 kílómetra á klukkustund þar sem aðstæður leyfa. E.t.v. hefur gott tíðarfar áhrif á niðurstöðuna en réttir tveir þriðju hlutar þátttakenda, eða 214 manns studdu aukinn hraða. Helmingi færri, eða 107, vora á rnóti. Ölafsvíkurvegi eru ekki fyrr en í september 2001. Vegurinn upp á Fróðárheiði úr Staðarsveit verður færður lítillega og stefht er að því að strax á komandi hausti verði um- ferð beint um nýja vegastæðið. Að 1 þessari viku snýst kosningin aft- ur um umferðarmál. Nú er spurt hvora lesendur telji fremur bera sök á hækkun iðgjalda biffeiða- trygginga; tryggingafélögin eða tjónvalda í umferðinni. Könnun hófs á þriðjudag og stendur yfir í viku. Skessuhorn hvetur alla sem skoðun hafa á málinu til að taka þátt í kosningunni, hún er öllum opin. BMK sögn starfsmanna Klæðningar ehf. gengur verkið ágætlega og sam- kvæmt áætlun. í samtali blaða- manns við Birgi Guðmundsson umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Vesturlandi era óvenju miklar vega- bætur í gangi á Snæfellsnesi en auk þeirra verkefha sem Klæðning ehf. hefur með höndum standa yfir framkvæmdir við nýjan veg yfir Vatnaheiði, við veginn frá Amar- stapa að Hellnum auk framkvæmda við Búlandshöfða. Kostnaðaráætl- anir fyrir þau verkefni sem í gangi era í vegagerð og vegabótum á Snæfellsnesi hljóða samanlagt upp á um það bil 970 miljónir. EA Nýfæddir Vestlendmgar eru boðnir velkomnir í heiminn um leið og nýbökuðum for- eldrum eru færðar hamingjuósldr. 04.júlí kl 1):)6-Meybarv- Þyngd:3940-Lengd:52 cm-Foreldrar: Hjördís Bjömsdóttir og Ingtmundur Sigmundsson, Akranesi. Ljósmóðir:Bima Þóra Gunnarsdóttir. 04.júlí kl 15:40-Meybam-Þyngd: 4425-Lengd:55 cm-Foreldrar: Stein- unn Ólafsdóttir og SigurSur Sveinn Sverrisson, Akranesi. Ljósmóðir: Helga Höskuldsdóttir. 2.júlí kl 18:28-Meybam-Þyngd:4410- Lengd: 55 cm-Foreldrar: Berglind Vésteinsdóttir og Finnbogi Harðarson, Búðardal. Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir. Glaðbeittir í vegavinnu á Olafsvtkurvegi. Frá vinstri: Ingólfur Gíslason vörubílsstjóri og Kristján Pétursson búkollustjóri. Hraðinn of lítill!

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.