Skessuhorn - 13.07.2000, Blaðsíða 13
JkUSUHUkÍ
FIMMTUDAGUR 13. JULI 2000
13
Nýr 18 holur golfvöllur Leynismanna á Akranesi vígður með viðhöfh:
Lengsta brautin og stærsta
sandglompa landsins!
Fjölmenni var viðstatt formlega
vígslu nýs 18 holu golfvallar
Golfklúbbsins Leynis sl. föstu-
dag. Baeði völlur og veðurguðir
skörtuðu sínu fegursta og reynd-
ar var brakandi blíða um helgina
er Ijölmennasta mótið í sögu
klúbbsins, Opna Akranesmótið
sem Síminn styrkti rausnarlega,
fór fram. Þar voru keppendur
um 160 talsins og hafa aldrei ver-
ið fleiri.
Að sögn Hannesar Þorsteinsson-
ar, formanns Golfklúbbsins Leynis,
barst klúbbnum fjöldi góðra gjafa
og heillaóska á þessum tímamótum
en Garðavöllur er eini 18 holu golf-
völlurinn á landinu allt frá Korp-
úlfsstöðum og norður til Akureyrar.
A meðal gesta á föstudag voru Ell-
ert B. Schram, forseti ISI, Frímann
Gunnlaugsson, íyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Golfsambands Is-
lands og Gísli S. Einarsson alþing-
ismaður sem bar klúbbnum jaín-
framt kveðju annarra þingmanna
Vesturlands.
Fjölbreyttur völlur
Hannes sagði Leynismenn ekki
hafa getað verð heppnari með allar
aðstæður um síðusm helgi og að á-
nægja hafi skinið úr hverju andliti.
,Allir þeir sem ég hef heyrt tjá sig
um völlinn hafa lokið á hann lofs-
orði og telja að vel hafi tekist til
með að samræma nýjar og eldri
brautir vallarins í eina heild,” segir
formaðurinn. Garðavöllur státar af
mikilli fjölbreytni í lengd brauta;
nokkrum örstuttum par 3 og par 4
brautum, en þar er líka lengsta
braut landsins, 590 metra par 5 af
aftasta teig. Fjöldi glompa er ein-
kenni vallarins. Þær eru alls 63 tals-
ins, fleiri en á nokkrum öðrum
golfvelli á Islandi! Þar á meðal er
flatarglompa sem er álíka stór og
flötin.
Golfklúbbur Akraness, síðar
Golfklúbburinn Leynir, var stofn-
aður í mars 1965. Völlurinn var þá
langt utan byggðar á Akranesi.
Þeir sem áttu bíl óku þangað eftir
vinnu, aðrir fengu far með þeim eða
hjóluðu. Iþróttin var að slíta barns-
skónum og „völlurinn” ekki nema
tvær brautir á rennisléttu slægju-
landi. Brautirnar urðu síðar sex og
stórum áfanga var náð 1969 er þær
urðu níu talsins. Loks í ár, 31 ári
síðar, er draumurinn orðinn að
veruleika.
Eftír áralanga baráttu fýrir við-
bótarlandi eru brautirnar orðnar
18. Hektararnir, sem völlurinn þek-
ur, eru ekki lengur þrír, heldur
fimmtíu.
Mikil vinna við
landmótun
Hugmyndir að stækkun vallarins
úr 9 í 18 holur komust ekki á flug
fyrr en árið 1988. Hannes Þor-
steinsson, nú formaður klúbbsins,
gerði þá skipulagsteikningu að vell-
inum sem notuð var lítið breytt árið
1994 þegar gengið var til samninga
við Akraneskaupstað um landnýt-
ingu og kostnaðarþátttöku bæjarfé-
lagsins. Arið 1995 bættust nokkrar
nýjar brautír við samhliða því sem
eldri brautír tóku breytingum. Frá
þeim tíma hafa þær verið 11. Um-
skiptin eru því mikil.
Þrátt fyrir að lega Garðavallar sé
að mestu leyti á sléttu landi hefur
mikil vinna verið lögð í að móta
landslag og gera völlinn þannig
bæði meira aðlaðandi yfirferðar og
um leið fjölbreyttari að leika.
Hannes hefur verið viðloðandi
framkvæmdir við völlinn allt frá
stofnun hans eða í 35 ár og þekkir
því manna best þá hugmyndafræði
sem liggur að baki hönnun hans.
Þorsteinn Þorvaldsson tók sig glæsilega út er hann sló upphafshöggið, klæddur aó hætti
kylfinga á sjóunda áratugnum og ai fiálfsögðu með viðeigandi „græjur. “
Hannes Þorsteinsson, formaður Golfklúbbsins Leynis og Guðmundur Páll Jónsson, forseti bæjarstjómar Akraness, klippa ísameiningu á
borða og opna þar með formlega nýja 18 holu golfuöllinn.
Landslag án hliðstæðu
Það orð hefur farið af Garðavelli
að hann sé flatur og lítið landslag í
honum. „Eg þekki þennan söng vel
og hann átti rétt á sér á meðan völl-
urinn var aðeins 9 holur. En með
viðbótarbrautunum 1995 varð strax
mikil breyting. Og nú þegar völlur-
inn er orðinn fullmótaður 18 holu
völlur býður hann upp á landslag og
umhverfi sem ekki á sér hliðstæðu
hérlendis,” segir Hannes.
Fyrstu þrjár brautirnar njóta ná-
lægðar við þykkt og mikið skógar-
svæði (já, það eru tré á Akranesi!)
og 3. brautin hlýtur að gera sterkt
tilkall til titilsins „fallegasta par 3
hola á landinu”. A brautum 5, 6, og
7, sem allar eru nýjar, hefur gríðar-
leg vinna verið lögð í landmótun
auk þess sem landslag frá náttúr-
unnar hendi er þar skemmtilegt.
T.d. liggur sjötta brautin, sem er
studd “„budda”, á milli stórrar
manngerðar tjarnar og hás hamra-
beltis. Sjöunda brautin, sem er 590
metrar ffá aftasta teig, nýtur aukin-
heldur þeirrar sérstöðu að vera
lengsta braut landsins og þótt víðar
væri leitað.
Til þess að vega upp skort á
landslagi á gömlu brautunum var sú
stefna fljótt tekin að hanna fjölda
glompa. Þeirri stefnu var haldið á-
fram á viðbótarbrautunum og nú
státar Garðavöllur ekki aðeins af
stærstu glompu á golfvelli á Islandi,
heldur eru þær fleiri en á nokkrum
öðrum velli á landinu, 63 alls!
„Við nýframkvæmdirnar höfum
við lagt áherslu á hólamyndun og
vatnshalla á brautum og í brautar-
jöðrum,” segir Hannes og heldur á-
fram: „Við höfum lækkað karga-
svæðin svo allnokkur hæðarmunur
er á vellinum, sem skyggir á yfirsýn
ef menn eru ekki á réttum stöðum á
brautunum. Verulegt gróðursetn-
ingarátak er í gangi og glompurnar,
landslagið og gróðurinn leggst á
eitt við að gera völlinn afar fjöl-
breyttan og fallegan en ekki síst
skemmtilegan viðfangs fyrir kylf-
inga.”
Unglingar sækja í golfið
Nú á 35 ára afmælisári Golf-
klúbbsins Leynis er Garðavöllur
ekki lengur langt utan byggðar.
Vesturjaðar vallarins liggur þétt
með einbýlishúsabyggð og hefur
nálægðin ekki valdið neinum vand-
ræðum, þvert á móti. Það er einmitt
þessi nálægð byggðar sem er lykill-
inn að vaxandi ásókn unglinga í
golfíþróttina á Akranesi. Asókn sem
þegar hefur getið af sér tvo Islands-
meistara karla, Islandsmeistara í
sveitakeppni pilta í fyrra og fjölda
yngri efnilegri kylfinga sem bíða
þess eins að röðin komi að þeim.
Akranes hefur fest sig rækilega í
sessi á landakorti íslenskra kylfinga
og státar nú af 18 holu velli sem
gefur bestu völlum landsins ekkert
eftir.
-SSv.
Smellhitti boltann í
upphafshöoginu
Það var við hæfi að Þorsteinn
Þorvaldsson ætti fyrsta formlega
teighöggið á hinum nýja og glæsi-
lega 18 holu velli Leynismanna er
hann var vígður sl. föstudag að
viðstöddu fjölmenni. I tilefni dags-
ins klæddi Þorsteinn, sem hefur
verið eins og rauður þráður í gegn-
um alla sögu klúbbsins, sig upp eins
og menn gerðu árið 1965. Klæddist
tweed-jakka og hatti og var með
gúmmí “skóhlífar“ með gödduni
undir skónum. Til upphafshöggsins
notaði hann að sjálfsögðu kylfu frá
árinu 1965, sem hann fékk að láni
frá Eiríki bróður sínum. Kylfan var
úr John Letters Parbuster-setti,
sem allir kylfingar áttu á þeim tíma.
Fyrir tilviljun fannst golfbolti frá
1965 í einum skurðanna á vellinum,
af gerðinni Penfold Ace. Hann var
að sjálfsögðu notaður.
Ekki þarf að fjölyrða um árang-
urinn með allan þennan búnað að
vopni. Þorsteinn smellhitti boltann
og sýndi að þrátt fýrir að vera 35
árum eldri er hann enn með allt á
hreinu þegar golfleikur er annars
vegar!
SSv.