Skessuhorn - 20.07.2000, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 29. tbl. 3. árg. 20. júlí 2000 Kr. 250 í lausasölu
Ertu að tapa stórfé
út um gluggana?
Fáðu góð ráð hjá okkur og
lækkaðu hitareikninginn!
Sími 54 54 300
Smiðjuvegi 7,
Kópavogi
fax 54 54 301
www.gler.is
Fæðing
við Langá
Honum lá heldur betur á að kom-
ast í heiminn 15 marka drengnum
sem fæddist í sjúkrabíl ffá Olafevík
s.l. föstudag. Verið var að flytja van-
færa konu ffá Rifi áleiðis á Sjúkrahús
Akraness þegar bamið sagði stopp;
ut vil ek!
Hermann Birgisson var bílstjóri
sjúkrabílsins í þessari ferð: “Við urð-
um að stöðva bílinn við Langá á
Mýrum því bamið var ákveðið í að
ekki yrði lengri bið áður en það
kæmi í heiminn. Með okkur í bíln-
um var faðir bamsins og Fanný Berit
Sveinbjörnsdóttir ljósmóðir. Hún
lenti þama í að taka á móti sínu
fyrsta bami eftír að hún lauk ljós-
móðumámi og famaðist það alveg
prýðilega. Þetta er einnig í fyrsta
skipti sem ég lendi í svipaðri aðstöðu
eftír að ég byrjaði sem sjúkraflutn-
ingamaður. Barnið kom þarna í
heiminn í vegarkantinum og síðan
dóluðum við bara áffam áleiðis á
Akranes. Móður og bami heilsast á-
gætlega og við emm reynslunni rík-
ari”, sagði Hermann Birgisson í
samtali við Skessuhom. MM
Utboð á feriu-
leið Baldurs
Útboð á ferjuleiðinni milli Stykk-
ishólms, Flateyjar og Brjánslækjar
verður auglýst á evrópska efna-
hagssvæðinu á sunnudaginn kem-
ur. Ferjuleiðin verður boðin út til
þriggja ára með möguleika á
ffamlengingu samnings í tvö ár.
Að sögn Gunnars Gunnarssonar
ffamkvæmdastjóra stjómsýslusviðs
Vegagerðarinnar greiddi ríkið á síð-
astliðnu ári um 50 milljónir króna
með rekstri Breiðafjarðarferjunnar
Baldurs ehf. og þykir því einsýnt að
þessi rekstur geti ekki gengið án
stuðnings hins opinbera. Að sögn
Gunnars er ekkert sem mælir gegn
því að Breiðafjarðarferjan Baldur
ehf., rekstraraðih Baldurs, bjóði í
ferjuleiðina, þrátt fyrir að ríkið eigi
skipið og um 80% í rekstrarfyrirtæki
þess. Að sögn Gunnars er til athug-
unar hjá Vegagerðinni að leita samn-
inga við Breiðafjarðarferjuna Baldur
ehf. um leigu á aðstöðu ferjunnar í
Stykkishólmi og á Brjánslæk, þrátt
fýrir að slíkt sé ekki nauðsynlegt þar
sem þær eignir tengist ekki beint að-
komu ferjunnar. MM
Mannbjörg
við Bjargtanga
Mannbjörg varð þegar vélbátur-
inn Æskan SH-342 sökk um sex
sjómílur suðaustur af Bjargtöngum
s.l. laugardag. Báturinn var á leið
ffá Grindavík tíl Patreksfjarðar þar
sem gera átti hann út til dragnóta-
veiða. Leki kom að bámum og
nokkm síðar varð hann vélarvana.
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-
LIF fór á staðinn og reynt var að
dæla úr bátnum en allt kom fýrir
ekki. Hvalaskoðunarbáturinn
Brimrún frá Olafsvík og Kaldbakur
EA-1 komu einnig á slysstað. Skip-
verjar vora fluttir með þyrlunni til
Reykjavíkur og varð þeim ekki
meint af volkinu.
EA
Síðastliðinn sunnudagfór fram allsérstœð messa við Krosslaug í Lundatreykjadal. Þar varþess minnst að við laugina voru vestan-
menn skírðir á leið sinni frá Alþingi árið 1000. Allir prestar Borgarfjarðarprófastsdœmis þjónuðu við messuna auk hinna öldnu
kempa þeirra Sr. Björm Jónssonar fyrrum sóknarprests á Akranesi og Sr. Ama Pálssonar á Borg. Nýr sóknarprestur á Hvanneyri,
Sr. Flóki Kristinsson predikaði og kórfólk úr kirkjukórum prófastsíkemisins söng. Við athöfnina skírði Sr. Bjöm Jónsson bam úr Borg-
amesi við laugina og var það bæði táknrœn og viðeigandi athöfn til að minnast þúsund ára kristni og um leið skímar forfeðra vorra
árið 1000. Mytid MM
Yirti ekki hæðarmörk
Loka varð Hvalfjarðargöngunum
í rúma klukkustund sl. þriðjudag
þegar vöruflutningabíll festist í
göngunum að sunnanverðu. Bíl-
stjórinn virti ekki hæðarmörk og ók
inn í göngin þar til hann sat fastur.
Töluverð biðröð bíla myndaðist
við báða gangaenda því stöðva
þurfti umferð meðan “tappinn” var
losaður. Bíllinn var með vinnuskúr
og krana á pallinum og rakst hvort
tveggja upp í hæðarmarkaslár og
loftræstirör í þaki ganganna. Lög-
regla var kölluð út og yfirheyrði
hún bílstjórann sem þverbraut með
athæfi sínu gildandi umferðarregl-
ur. Umferð komst aftur í eðlilegt
horf þegar búið var að losa bílinn,
um hálfri annarri stund eftír að
hann festist.
MM