Skessuhorn - 20.07.2000, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 20. JULI 2000
^sunu^.
W W W. SKESSUHO
Borgarnesi:
Akranesi:
Borgarbraut 49
Suðurgötu 65, 2. hæð
Sími: (Borgarnes c
Fox: (Borgarnes)
IS
430 2200
430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Islensk upplýsingatækni 430 2200
Framkv.stjóri: Magnús Magnússon 894 8998
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 892 4098
Internetþjónusta: Bjorki Mór Karlsson 899 2298
Blaðomenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310
Auglýsingar: Hjörtur Hjartarson 864 3228
Fjórmál: Sigurbjörg 8. Ólafsdóttir 431 4222
Prófarkalestur: Ásthildur Magnúsdóttir og Mognús Magnússon
Umbrot: Skessuhorn / TölVert
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
vefsmidja@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 250 kr.
430 2200
Af-
skiptur
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Ég hef að undanfömu fundið fyrir ákveðinni tómleikatil-
finningu. Ekki ósvipað manni sem glatar góðum vini eða
kunningja, jafnvel góðkunningja. Það á þó ffáleitt við í
þessu tilfelli þar sem ég á náttúrulega enga vini og kunn-
ingja. Eg er ekki einungis góðkunningi lögreglunnar held-
ur em okkar viðskipti eingöngu á faglegum forsendum.
Þar liggur samt að líkindum hundurinn grafinn. Þegar ég
fer að hugsa um það átta ég mig nefhilega á hvað það er sem
hefur vantað í líf mitt að undanförnu. Ég er ekki lengur
með lögregluna á hælunum.
Það kemur því miður ekki til af góðu. Eg hef ekki verið
neitt skárri en vant er. Astæðan er hinsvegar sú að laganna
verðir hafa fengið ný og spennandi viðfangsefni og snúið
við mér baki af þeim sökum.
Eins og ffam hefur komið í hinu gagnmerka riti Skessu-
horni og öðmm marktækum fjölmiðlum hefur lögreglan í
Borgamesi í nógu að snúast að eltast við aðkomumenn á
meðan við heimamenn emm látnir leika lausum hala.
I héraðið streyma ferðamenn í tugþúsundatali og þótt
flestir komi hingað hjartahreinir og með gljáfægðan geisla-
baug er alltaf einn og einn sem í ógáti missir höndina í and-
litið á einhverjum öðmm eða gleymir eldspítunni í ein-
hverjum sumarbústað. Eg er ekki að kvarta yfir að vel sé
tekið á móti aðkomuglæpamönnum og þeim sýnd full gest-
risni. Vandamálið er að ekki em til peningar til að ráða fleiri
löggur svo að líka sé hægt að passa upp á okkur sem hér
emm fyrir.
Vissulega viðurkenni ég það að flestir glæpamennimir
búa fyrir sunnan. Allir alvöm sakamenn og faglærðir
glæponar velja sér atvinnusvæði þar sem verðmætin em fyr-
ir hendi og öll vinnuaðstaða ákjósanlegri. Það má hinsveg-
ar ekki gleyma því að glæpamenn búa við sömu samgöngur
og flestir aðrir og geta auðveldlega flutt sig úr stað. Ekki síst
þeir sem leggja fyrir síg bílþjófhaði.
Ég örvænti hinsvegar ekki. Ég treysti því að hæstvirtur
dómsmálaráðherra efli og styrki löggæslu á landsbyggðinni.
Ég er þess reyndar fullviss að einmitt þessa stundina liggur
frú Sólveig undir feldi og beitir allri sinni visku, skarp-
skyggni, hyggindum, vísdómi og hugmyndaauðgi í þeim
tilgangi að leysa málið. Ég treysti ffú Sólveigu fullkomlega
í þessu máli því ég veit sem er að varla fékk hún Fálkaorð-
una fyrir ekki neitt.
Margt læt ég yfir mig ganga sem sveitamaður. Eg kem þó
aldrei til með að sætta mig við að þurfa að fara alla leið til
Reykjavíkur og láta handtaka mig.
Gísli Einarsson, lögum samkvœmt.
Fjörtíuþúsund gestir
Þann 16. júlí var ár liðiSfrá opnun sundlaugarinnar í Stykkishólmi en sundlaugin var
formlega opnuð á Dirnskum dögum íjýrra. Afyrsta árinu hafa 40 þúsutid gestir heim-
sótt laugina og verður það að teljast góð aðsókn. Að sögn Kristínar Benediktsdóttur sund-
laugarvarðar er mikil ánægja með aðstöðuna bœði hjá heimafólki og ferðamönnum.
Rennibrautin hefur sérstaklega mikið aðdráttarafl enda sú nœstlengsta á landinu. EA
Fækkar um finuntán
íbúum á Vesturlandi fækkaði um svæðisins. Af einstökum sveitarfé-
15 fyrstu 6 mánuði þessa árs, skv. lögum fjölgar íbúum á Akranesi, í
upplýsingum frá Hagstofu Islands. Borgarbyggð, Snæfellsbæ, Eyja- og
Sem hlutfall er þetta óveruleg Miklaholtshreppi og Hvalfjarðar-
fækkun og besti árangur lands- strandarhreppi. Mest fækkun íbúa
byggðarinnar í hinni stöðugu bar- er hins vegar í Eyrarsveit, Stykkis-
áttu við fólksflótta til höfuðborgar- hólmi og Dalabyggð. MM
Aðfluttir: Burtfluttir: Samtals:
Vesturland 462 477 -15
Hvalfjarðarstrandarhreppur 12 6 6
Skilmannahreppur 10 11 -1
Innri-Akraneshreppur 11 10 1
Akranes 181 151 30
Leirár- og Melahreppur 2 11 -9
Borgarfjarðarsveit 9 13 -4
Skorradalshreppur - 3 -3
Hvítársíðuhreppur - 2 -2
Borgarbyggð 88 70 18
Kolbeinsstaðahreppur 1 1 -
Eyja- og Miklaholtshreppur 8 1 7
Snæfellsbær 88 77 11
Eyrarsveit 23 48 -25
Helgafellssveit 1 1 -
Stykkishólmur 22 45 -23
Dalabyggð 6 23 -17
Saurbæjarhreppur - 4 -4
VLFA ályktar
um verðlagsmál
Fundur í stjóm Verkalýðsfélags
Akraness sem haldinn var þann
12. júlí s.I. telur að þær hækkanir
á verðlagi sem átt hafa sér stað að
undanfömu séu með öllu óásætt-
anlegar. Einkum átelur stjómin
þær hækkanir sem orðið hafa á
bensíni og bifreiðatryggingum. I
ályktun stjómarinnar er bent á
það greinilega verðsamráð sem á
sér stað í þessum tveimur grein-
um og setur stjómin allan fyrir-
vara við hina svokölluðu frjálsu
verðmyndun sem sögð er vera við
líði á Islandi.
Stjórnin hvetur íslensk stjórn-
völd til þess að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að tryggja eðlilega
frjálsa verðmyndun og afnema
hvers konar verndarálögur. Slíkar
álögur em til þess eins fallnar að
halda uppi verðlagi á nauðsynjavör-
um landsmanna.
Þá átelur stjómin stjórnvöld fyr-
ir þær ráðstafanir sem er m.a. að
finna í fjárlögum íslenska ríkisins
þar sem t.a.m. lyfjakostnaði er velt
af ríkinu yfir á sjúklinga. Stjómin
telur með öllu óþolandi að þeir sem
síst skyldu séu einir lámir bera
sparnaðarráðstafanir ríkissjóðs.
Stjómin tekur undir með þeim
aðilum sem látið hafa í ljós það álit
að með þeim hækkunum sem orðið
hafa, séu forsendur kjarasamnínga
brostnar. MM
Birgir fer noröur
Birgir Guðmundsson umdæmis-
stjóri Vegagerðar ríkisins á Vest-
urlandi hefur sagt starfi sínu
lausu firá 1. október n.k. Hann
mun taka við sambærilegu starfi
hjá Vegagerðinni á Norðurlandi
eystra frá sama tíma.
Aðspurður um ástæðu flumings-
ins sagði Birgir að það væri kominn
tími til að breyta til eftír 25 ár á
sama vinnustað. “Það er tímabært
að hleypa nýjum manni að því með
nýju blóði koma nýir straumar. Auk
þess er hluti ástæðunnar að ég á
stóran hluta minnar fjölskyldu fyrir
norðan og vissulega togar það í,”
sagði Birgir.
Starf umdæmisstjóra á Vestur-
landi hefur ekki enn verið auglýst
laust til innsóknar. MM
Óhefðbundin
guðsþjónusta
I kvöld, fimmtudag kl. 21,
verður haldin guðsþjónusta
með óhefðbundnu sniði í Olafs-
vík. Ef veður leyfir mun hún
fara fram í Sjómannagarðinum í
Olafsvík en annars í kirkjunni.
Rnattspyrnumenn úr HSH
munu lesa ritningarlestra og
boðið verður upp á hressingu á
eftir. Að sögn séra Oskars Haf-
steins Oskarssonar sóknarprests
verður með guðsþjónustunni
reynt að höfða sérstaklega til
ferðamanna og í almennri
kirkjubæn verður beðið sérstak-
lega fyrir þeim. Kirkjukór
Olafsvíkur mun leiða sönginn
en sálmalög verða valin þannig
að sem flestir geti tekið undir.
EA
Ógætilegur
akstur
Sigurður A. Sigurðsson ffá
Reykjavík hafði samband við
Skessuhom nú á dögunum og
sagði farir sínar ekki sléttar.
Hann var nú nýverið ásamt öðm
fólki í hestaferð um Borgarfjörð
og Snæfellsnes ineð rekstur.
Sunnudaginn 9. júlí lá leiðin eft-
ir reiðvegi milli Snorrastaða og
Grímsstaða þegar reksturinn
mætti manni á vélknúnu tor-
færuhjóli. Okumaður hjólsins
keyrði á fullum hraða inn í rekst-
urinn og síðan burt. Stóðið fæld-
ist og fjórir hestar týndust. Einn
reiðmannanna datt af baki og
mesta mildi var að ekld urðu slys
á fólld. Nú hafa tveir hestanna
fundist en tveir em enn ófundn-
ir. Þeir hestar sem enn em týnd-
ir em verðmætir reiðhestar og
búið er að keyra um allt svæðið í
leit að þeim. Tafði þetta ferðina
um tvo daga. Búið er að láta lög-
reglu vita af þessum atburði.
Sigurður telur að hegðun öku-
manns torfæruhjólsins hafi verið
forkastanleg og viU koma því á
ffamfæri til ökumanna að þeir
sýni hestamönnum og öðm
ferðafólld tillitssemi. EA
Ný bílastæði
við Einarsbúð?
Þann 13. júb' tók bæjarráð
fyrir bréf bygginga- og skipu-
lagsfulltrúa þar sem hann gerði
grein fyrir viðræðum sínum við
fulltrúa Verslunar Einars Olafs-
sonar. Bæjarráð tók jákvætt í er-
indi verslunarinnar um úthlut-
un á baklóð Amardals undir
bflastæði og fól bygginga- og
skipulagsfulltrúa að vinna áfram
að málinu. Eflaust yrðu margir
ánægðir ef málið næði ffam að
ganga og bílastæðum myndi
fjölga, því fjarri fer að þau sem
fyrir em séu nógu mörg.
SÓK
Öryggismál í
Grundaskóla
Á síðasta bæjarráðsfundi á
Akranesi var tekið fyrir bréf
bygginganefhdar varðandi um-
ferðaröryggismál barna í ná-
grenni Grundaskóla, en eins og
ffam kom í Skessuhomi sendi
foreldraráð Gmndaskóla bæjar-
yfirvöldum bréf þar sem farið
var ffam á að umferðaröryggi
bamanna yrði tekið til skoðun-
ar og úrbætur gerðar. Bæjarráð
fjallaði um málið og vísaði því
tíl fjárhagsáætlunar ársins 2001.