Skessuhorn - 20.07.2000, Blaðsíða 11
í.iiss»unoEK
FIMMTUDAGUR 20. JULI 2000
11
Landgræðslufélaginu við
Skarðsheiði var síðastliðinn
fimmtudag afhentar 6 milljónir
króna frá Umhverfissjóði versl-
unarinnar til uppgræðslu og
landbóta undir Hafharfjalli.
Þetta er í annað sinn sem Um-
hverfissjóðurinn styrkir Hafnar-
skógaverkefnið.
Markmið skjólbeltaræktunar-
innar eru að bæta landkosti á svæð-
inu til mannvistar, búskapar, úti-
vistar, að skýla þjóðveginum fyrir
veðri og vindum sem og að vernda
og auka gróður á svæðinu. Skjól-
beltaræktunin er hluti af Haffiar-
skógaverkefninu sem hófst á síð-
asta ári og Markaðsráð Borgfirð-
inga hafði forgöngu um. Verkefnið
hefur farið vel af stað og eru allir
hlutaðeigandi mjög áhugasamir
um það. Nú þegar er hafin upp-
græðsla á um 150 hekturum örfoka
lands og má gera ráð fyrir að álíka
flatarmál bætist við á þessu ári.
Landgræðslufélag Skarðsheiðar
var stofnað síðastliðið vor af ábú-
endum 16 jarða við Hafharfjall.
Landgræðslufélagið hefur annast
framkvæmdir undir Hafnarfjalli en
aðilar ffá Landgræðslunni, Búnað-
arsamtökum Vesturlands og Skóg-
rækt ríkisins koma að verkinu sem
faglegir ráðgjafar.
Bjarni Finnsson formaður um-
hverfissjóðsins afhenti Baldvini
Björnssyni formanni Land-
græðslufélagsins styrkinn að við-
stöddum fulltrúum frá Land-
græðslu ríkisins, bændum og öðr-
um gestum. Þennan sama dag var
byrjað að stinga niður stiklingum í
þriggja kílómetra langt skjólbelti
meðffam þjóðvegi 1 ffá Olveri til
Fiskilækjar. Unglingar í Vmnu-
skólanum sunnan Skarðsheiðar sjá
um plöntun í skjólbeltin.
EA
Spretta í
meðallagi
og góð hey
Spretta á Vesturlandi það sem af
er sumri er í meðallagi að sögn
Guðmundar Sigurðssonar hjá
Búnaðarsamtökum Vesturlands.
Guðmundur segir tún hafa
komið vel undan vetri og að
hvergi séu sjáanlegar skemmdir
á þeim.
Bændur byrjuðu snemma að slá
og eru margir þegar búnir með
fyrri slátt. “En auðvitað er þetta
misjafht, sumir eru ekki byrjaðir,
eins og gengur, sérstaklega sauð-
fjárbændur, því féð gekk ffaman af
sumri á túnum. Þeir sem byrjuðu
tímanlega fengu kannski ekki mik-
ið gras í fyrstu en heyin urðu mjög
góð,” segir Guðmundur. Spretta
síðustu dagana hefur verið mjög
góð og því lítur vel út með háar-
sprettu. MM
Straumfirði
Lax og silungsveiði
Veiðileyfi seld á staðnum
Uppl. x síma
437 1138 og
437 1827
Sveinn Runólfison landgrœðslustjóri og Bjami Finnssm foirmaður Umhverfisjóðs
verslunarinnar stungu niður nokkrum stiklingum í skjólbeltið undir Hafnarfjalli.
Hópur úr Vinnuskólanum sunnan Skarðsheiðar: F.v. Herdt's Haraldsdóttir, Magnús Olafsson flokks-
stjóri, María Lúísa Kristjánsdóttir verkstjóri, Sandra Andreudóttir, Vilhjálmur Karl Haraldssm, Guð-
mundur Þór Guðmundsson og Ingibjörg Sigmundsdóttir.
HEKLASöluumboð • Sólbakka 2 • Borgarnesi -Sfmi 437 2100 SÖluumboð
Nú ertækifæri til að skoða og reynsluaka nýjum Mitsubishi Pajero,
ótrúlega vel búnum jeppa sem markar tímamót hvað varðar tækni og búnað.
Nýr Mitsubishi Pajero
og nýr Skoda Fabia
Sýnum einnig nýja bíla frá Volkswagen, Mitsubishi, Skoda og Galloper.
HEKLA
- íforystu á nýrri öld!
Komdu og reynsluaktu sérlega vel búnum nýjum Skoda Fabia
-og þú gætir verið á ieiðinni til Prag í haust!
Verið velkomin
laugardaginn 22. júlí.
8 Essóshálann á Hellissantli frá 10 -12
Söluskála Olís i ðlafsvíh frá 12.30-15.00
luskála Essó á Grundaríirði fra 15.30 -18.
Sunnudaginn 23-júlí
Við Verslun Gunnars Tryggvasonar i
Stykkishólmi frá 12-15
fið Söluskála Essó í Búðardal frá 16 -18
_