Skessuhorn - 02.11.2000, Síða 4
FIMMTUDAGUR 2. NOVEMBER 2000
Langstærsti fiskmarkaðurinn
Fiskmarkaður Breiðafjarðar og
Faxamarkaðurinn hafa verið sam-
einaðir. Gengið var frá samningi
um sameiningu fyrirtækjanna 14.
október s.l. og hafa stjórnir beggja
félaganna staðfest þann samning.
Síðan á eftir að halda hluthafa-
fundi í báðum félögum til að stað-
festa gjörninginn endanlega.
Með sameiningu þessara tveggja
fiskmarkaða verður til langstærsti
fiskmarkaður á Islandi. Saman-
lögð markaðshlutdeild hins nýja
félags verður um 37% af seldu
magni á fiskmörkuðum hér á
landi, eða um 37.000 tonn. Áætl-
uð velta félagsins er um fjórir og
hálfur milljarður og nettótekjur
eru áætlaðar um 250 milljónir.
Fiskmarkaður Breiðafjarðar var
fyrir sameininguna stærsti fisk-
markaður landsins og er með
starfsemi við 5 hafnir á Snæfells-
nesi. Faxamarkaðurinn er með
starfsstöðvar £ þremur höfnum, á
Akranesi, í Reykjavík og Sand-
gerði. Þannig verða starfsstöðvar
hins sameinaða félags við átta
hafnir. Flöfuðstöðvar nýja félags-
ins verða í Olafsvík og þar verður
allt skrifstofuhald og bókhald til
húsa. Gert er ráð fyrir að heildar-
starfsmannafjöldi verði 30.
Samningur um sameiningu Fisk-
markaðar Breiðafjarðar hf. og
Faxamarkaðar hf. gerir ráð fyrir
því að núverandi hluthafar í Fisk-
markaði Breiðafjarðar hf. muni
eiga 60% hlutafjár í hinu samein-
aða félagi og núverandi hluthafar
Faxamarkaðar hf. muni eiga 40%
hlutafjárins. Þá er samkomulag
um að stjórn félagsins verði skip-
uð 5 aðalmönnum og tveimur
varamönnum. Tveir aðalmenn
verða tilnefndir af hluthöfum
Aðalstöövar hins nýja hlutafélags verða í húsi Fiskmarkaðar Breiðafjarðar í Ólafsvík.
Faxamarkaðar hf. og þrír af hlut-
höfum Fiskmarkaðar Breiðafjarð-
ar hf. Félögin tilnefna hvort sinn
varamann í stjórn. Stjórnarfor-
F.v. má þekkja þá Stefán Scbeving, Sigurgeir Þorgeirsson og Guðni Agústsson eftir wrídirritun samninganna.
Ríkisbúskapur satneinaður
Samstarf milli Rala og Landbúnaðarháskólans
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra staðfesti síðastliðinn
mánudag tvo samstarfssamn-
inga miIU Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins og Landbúnað-
arháskólans á Hvanneyri.
Fyrri samningurinn sem undir-
ritaður var á Hvanneyri felur í sér
að RALA fær aðstöðu til bútækni-
rannsókna, búvélaprófana og þró-
unarverkefna í peningshúsum og á
túnum og útjörð Landbúnaðarhá-
skólans. Á móti munu sérffæðing-
ar bútæknisviðs RALA taka að sér
kennslu í bútæknigreinum við
Háskólann. I samningnum kemur
einnig frarn að stofnanirnar munu
bjóða fram sameiginlega endur-
menntun á sviði bútækni.
Síðari samningurinn var undir-
ritaður í tilraunafjárhúsum RALA
að Hesti. Hann felur í sér að
RALA og Landbúnaðarháskólinn
munu framvegis standa sameigin-
lega að fjárbúi á tilraunastöinni á
Hesti og leggst þá af sauðfjárbú-
skapur á skólabúinu. Stofnanirnar
munu nýta aðstöðuna á Hesti
sameiginlega til rannsókna,
kennslu og námskeiðahalds.
Einnig er þess getið að stofnan-
irnar geti nýtt aðstöðu á Hvann-
eyri til rannsókna ef það þyki
henta. Þá flyst verkleg kennsla í
sauðfjárrækt á vegum Landbúnað-
arháskólans að Hesti.
BORGARBYGGÐ
Hitaveita Borgarness
ATVINNA
Hitaveita Borgamess óskar að ráða aðstoðarverkstjóra á veitusviði
Menntunarkröfur: Sveinspróf í pípulögnum eða vélvirkjun
Laun em samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélags Borgarbyggðar
Upplýsingar um starfið veitir verkstjóri veitunnar Guðmundur Brynjúlfsson
Umsóknarfrestur er til 20. nóv. n.k.
Hitaveita Borgarness
Sólbakka 15
310 Borgarnesi
Sími 437-1675
tölvupóstfang: gbr@aknet.is
maður skal tilnefndur af hluthöf-
um Faxamarkaðar og fram-
kvæmdastjóri sameinaðs félags
verður Tryggvi Leifur Ottarsson.
Félögin verða sameinuð
frá 1. júlí 2000 og mun
samruninn verða byggð-
ur á árshlutauppgjörum
félaganna frá
30.06.2000. Gjarnan er
látið að því liggja við
sameiningu fyrirtækja að
erfiðleikar séu undir-
liggjandi ástæður en þau
árshlutauppgjör sem
lögð voru til grundvallar
sýna hagnað hjá Fisk-
markaði Breiðafjarðar
upp á um 11,3 milljónir
og upp á um 10,4 millj-
ónir hjá Faxamarkaði.
“Helstu ástæður samein-
ingarinnar eru sparnaður
í yfirstjórn auk þess sem
sameinaður efnahags-
reikningur beggja félaga er mun
sterkari en þeir voru í sitt hvoru
lagi. Hér er nefnilega verið að
sameina tvö sterk félög með heil-
brigðan efnahag og verið að gera
MyndIH
úr því eitt enn sterkara. Þessi ráð-
stöfun ætti líka að styrkja tilveru-
rétt félagsins á Verðbréfaþingi Is-
lands, en Fiskmarkaður Breiða-
Tryggvi Leifiir Óttarsson framkvtemdastjóri á skrif-
stofiu sinni í Ólafsvík. Mynd IH
fjarðar hf. er eini fiskmarkaðurinn
sem er skráður á verðbréfaþing,”
segir Tryggvi Leifur Ottarsson
framkvæmdastjóri hins nýja fé-
lags. IH
Nýfæddir Vesdendingar
eru boðnir velkomnir í
heiminn um leið
og nýbökuðum foreldrum
eru feerðar hamingjuóskir.
24. október kl 07:38-Meybam-
Þyngd:4310-Lengd:54 cm,. Foreldrar:
Bryndis Þórarinsdóttir og Halldór
Geir Þorgeirsson, Akranesi. Ljósmóð-
ir: Lára Dóra Oddsdóttir.
24. október kl 08:40-Meybam-
Þyngd:3960-Lengd:52 cm. Foreldrar:
Katrín Gísladóttir og Sigurbjöm
Magnússon, Minni-Borg. Ljósmóðir:
Anna Bjömsdóttir.
23. október kl 20:32-Meybam-
Þyngd:4140-Lengd:53 cm. Foreldrar:
Salvör Pétursdóttir og Snæbjöm Ott-
arsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Soffía
G. Þórðardóttir.
30. október kl 10:51-Meybam-
Þyngd:3030-Lengd:49 cm. Foreldrar:
Kristín Bima Gísladóttir og Elí Þór
Þórisson, Akranesi. Ljósmóðir: Helga
R. Höskuldsdótti?: (Með á mynd er
stóra systir,; Aníta Sif).