Skessuhorn - 02.11.2000, Blaðsíða 7
»n£9sunu>..
FIMMTUDAGUR 2. NOVEMBER 2000
7
Hafa farið illa með
peninga sveitarfélaganna
Segir Kristján Sveinsson bæjarfulltrúi á Akranesi og
fagnar breytingum á SSV
“Ég er ánægður með þessar
breytingar, enda voru þær löngu
tímabærar,” segir Kristján
Sveinsson bæjarfulltrúi Akra-
neslistans á Akranesi um þá á-
kvörðun sem tekin var um breyt-
ingar á SSV á aðalfundi samtak-
anna um síðustu helgi. Kristján
hefur verið í hópi þeirra sem
hvað harðast hafa gagnrýnt sam-
tökin og talið að skilvirkni þeirra
væri ekki í samræmi við útlagðan
kostnað.
“Þegar ég fór að starfa að sveitar-
stjórnarmálum hér á Akranesi kom
ég fljótlega með tillögu um endur-
skoðun á starfsemi SSV og aðild
Skagamanna að þessum samtökum.
Mér þykir samtökin hafa farið illa
með peningana og það hefur engu
mátt breyta í takt við nýja tíma. Það
er mín skoðun að sveitarfélögin
geti sjálf nýtt betur þá peninga sem
farið hafa í þetta apparat. Þessvegna
er ég ánægður með að það skuli
hafa verið samþykkt að draga úr
umfangi og kostnaði. Það var krafa
af minni hálfu að sveitarfélögin
þyrftu ekki sjálf að leggja pening í
reksturinn heldur fengju greitt til
baka af þeim fjármunum sem koma
úr jöfnunarsjóði. Það næst að vísu
ekki í gegn á næsta fjárhagsári en
það er stefnt að því eftir ár og ég er
sáttur við það. Við erum að ná því
fram sem ég hef verið að berjast
fyrir og ég held að flestir séu því
sammála að það hafi þurft að taka
til í þessum rekstri,” segir Kristján.
Treysti Gunnari
Á tímabili var rætt um að Skaga-
menn myndu snúa sér suður á bóg-
inn varðandi samstarf við önnur
sveitarfélög og Kristján segir það
enn koma til greina í ákveðnum
málaflokkum. “Það getur átt við í
sumum málum að leita samstarfs
við sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu en það þarf ekki að koma í
veg fyrir áframhaldandi samstarf
innan Vesturlands. Það er ástæðu-
laust að njörfa hlutina þannig niður
að allir þurfi að vera saman í öllu. I
sumum tilfellum getur hentað Snæ-
fellingum að standa saman að ein-
hverjum ákveðnum málum o.s.frv.
Það sem skiptir máli er að það sam-
starf byggi á því að allir aðilar hafi
hag af því,” segir Kristján.
Þegar Akurnesingar sögðu sig úr
SSV kom meðal annars fram óá-
nægja með vinnubrögð við kosn-
ingu formanns. Kristján segir að
það skipti sig lidu hver er formaður
heldur að stefnan sé rétt. Ég treysti
Gunnari Sigurðssyni fullkomlega
til að framfylgja stefnu meirihlut-
ans hér á Akranesi í þessu máli,”
segir Kristján að lokum.
GE
“Eg held aðflestir séu sammála um að það þurfti að taka til í þessutn rekstri, ” segir
Kristján Sveinsson hæjarfulhrúi á Akranesi.
Saumastofan
eftir Kjartan Ragnarsson
Nú er komið að því að Ungmennafélagið íslendingur
frumsýni sitt 1 3. verkefni í Brún í Bæjarsveit
Að þessu sinni er það Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson
Frumsýning 3. nóvember 2000 kl: 21:00
2. sýning sunnudaginn 5. nóv. kl: 21:00
3. sýning miðvikudaginn 8. nóv. kl: 21:00
4. sýning föstudaginn 10. nóv. kl: 21:00
5. sýning laudgardaginn 11. nóv. kl: 21:00
6. sýning sunnudaginn 12. nóv. kl: 14:00
Miðapantanir i simum:
437 0147 / 437 0013 / 437 0164
Minnum á heimasíðu okkar. Slóðin er:
http://www.andakill.is/saumastofan
Akraneskaupstaöur
Umræbuvefur
á heimasí&u Akraneskaupstabar
Vakin er athygli á umræðuvef sem kominn
er inn á heimasíðu Akraneskaupstaðar
www.akranes.is
Óskað er eftir ábendingum og athugasemdum
bæjarbúa um það sem betur má fara í bænum
og/eða hvaðeina er varðar bæjarmálin.
Bæjarbúar sem aðrir,
látum tœknina nýtast okkur til góös!
Bæjarritarinn
á Akranesi
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
Nýtt á söluskrá
Brákarbraut 1, Borgarnesi.
Nú verslunarhúsnæði, 68 ferm. á 1. hæð. Skiptist
í stóran parketlagðan sal, parketlagt herbergi,
snyrtingu og eldhús. Hægt að breyta í íbúð.
Þijár hliðar hússins hafa verið klæddar með steni.
Verð: kr. 3.500.000.
Galtanes, Víðidal, V-Húnavatnss.
Einbýlishús 119 ferm. á eignarlóð við þjóðveg
m. 1. Tilvalið sem sumarbústaður en í húsinu
eru 4 svefnherb.
Verð: kr. 5.800.000
Á söluskrá eignir í Borgamesi og nágrenni og
jarðir í Borgarfirði, Strandasýslu og Vestur-
Húnavatnssýslu.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
Ingi Tryggvason hdl.,
Borgarbraut 61
Borgarnesi
s. 437 1700, fars. 860 2181
fax 437 1017
Akranesveita
Laust starf -
hjá Akranesveitu
Akranesveita óskar að ráða rafvirkja til starfa
við rafmagnsdreifikerfi veitunnar. Askilið er
að viðkomandi hafi réttindi til
B-löggildingar.
Nánari upplýsingar um starfið veita
verkstjóri rafveitusviðs og forstöðumaður
tækni- og umhverfissviðs
Akraneskaupstaðar í síma 431 5200.
Umsóknarfrestur er til 9. nóvember n.k.
en umsóknir skal senda til Akranesveitu,
Dalbraut 8 á Akranesi merktar:
"Starfsumsókn - rafveitusvið".
Akranesveita