Skessuhorn - 02.11.2000, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 2. NOVEMBER 2000
•j&CSSUtlU*..
Það var nóg að gera í sandkassanum hjá þeim Amilu og Sverri Stevari á Leikskólanum i Ólafsvík
Skemmd-
arverk
Skemmdarverk voru unnin
á þremur bílum í Rifi að-
fararnótt 21. okt. Skemmd-
arvargarnir fóru um með
lakkúðabrúsa og úðuðu lakki
á bílana bæði að utan og inn-
an. Þar sem bílarnir voru
ekki kaskótryggðir bæta
tryggingarnar eigendum ekki
tjón þeirra. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglu telst málið
upplýst.
IH
TÆKIFÆRIN
ERU VÍÐA
- en það erekki alltaf auðvelt
að koma auga á þau
Fjárvarsla Landsbréfa
[Alþióðleg fjárfestingaþjónusta]
■ VlRK EIGNASTÝRING
■ Fjárfestingar UM ALLAN HEIM
■ Persónuleg þjónusta
■ Reglulegir fundir
■ Greinargóð yfirlit
■ Hagstæð viðskiptakjör
Fjárvarsla Landsbréfa miðar að því að
VEITA VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM ALÞJÓÐLEGA
FJÁRFESTINGARÞJÓNUSTU sem byggir á
SÉRÞEKKINGU OG REYNSLU STARFSMANNA AF
EIGNASTÝRINGU OG FJÁRMÁLAMÖRKUÐUM.
Eru þínir fjármunir
í RÉTTUM HÖNDUM?
Hafðu
SAMBAND VIÐ
Landsbréf
Vesturlands
Gengi
hlutabréfa
hrynur
Gengi hlutabréfa Islenska járn-
blendifélagsins hefur lækkað um
40,5% þegar litið er til síðustu daga.
Síðastliðinn föstudag urðu ein við-
skipti með bréf félagsins á Verð-
bréfaþingi Islands á genginu 0,75 og
er það 37,5% lægra gengi en skráð
lokagengi ffá deginum áður.
KK.
Afinæli
í Brekku-
bæjarskóla
Nú stendur fyrir dyrum 50 ára af-
mæli Brekkubæjarskóla á Akranesi
þann 19. nóvember. “Þetta verður
heilmikil uppákoma,” segir Ingvar
Ingvarsson aðstoðarskólastjóri.
‘Verið er að smíða dagskrá en af-
mælið ber upp á sunnudag og mein-
ingin er að halda upp á þetta á þeim
degi. Hugmyndin er að brjóta upp
hefðbundið skólastarf í vikunni
áður. Taka heila fjóra daga í þetta og
gera eitthvað skemmtilegt í tilefhi af
þessu hálfrar aldar afmæli skólans.
Við verðum með sýningu á sunnu-
deginum þar sem við göngum með-
al annars í skrúðgöngu ffá gamla
skólanum þar sem Vátryggingafélag
Islands er til húsa núna eins og var
gert fýrir einum 50 árum síðan. Vð
erum að vonast tdl að fá einstaklinga
sem voru í gamla skólanum og
gengu í þeirri skrúðgöngu til þess að
slást í hð með okkur núna og ganga
með okkur.” Bæjarráð hefur þegar
samþykkt að veita skólanum
300.000 króna framlag vegna hátíð-
arhaldanna. SOK
Sam-
keppni
um nafn
Samþykkt hefur verið að sam-
keppni fari fram meðal almennings
um nöfh á götur í hinu nýja Flata-
hverfi á Akranesi. Bæjarráð fól
bygginga- og skipulagsfulltrúa að
gera tillögu að framkvæmd máls-
ins. SÓK
Þriggja
kóra
tónleikar
Þann 4. nóvember kl. 16:00 verða
haldnir tónleikar í Reykholtskirkju.
Að þeim tónleikum standa sameigin-
lega Skagfirska söngsveitin, Söng-
sveit Hveragerðis og Kveldúlfskór-
inn í Borgamesi. Þetta er í þriðja sinn
á jafhmörgum árum sem kóramir
halda sameiginlega tónleika. Fyrir
tveim árum voru tónleikamir haldn-
ir í Hveragerði í boði Söngsveitar
Hveragerðis, á síðasta ári vom þeir
haldnir í Bústaðakirkju í boði Skag-
firsku söngsveitarinnar og nú er
komið að Borgnesingum að bjóða
þeim í Borgarfjarðarhérað og syngja
í Reykholti. A efhisskrá tónleikanna
verða hefðbundin kórverk eftir ís-
lenska og erlenda höfunda. Stjóm-
endur era: Björgvin Þ. Valdimarsson,
Margrét S. Stefánsdóttdr og Ewa
Tosik-Warszawiak. MM