Skessuhorn - 02.11.2000, Blaðsíða 26
26
FIMMTUDAGUR 2. NOVEMBER 2000
SZESSíiHöíEEI
Five Seasons og Kilmanock
Barnaúlpur m/vattbuxum í stærðum
98-176. Verð kl. 8.990-9.900
Nike og Puma barnaúlpur í stærðum 74-128
Stakar skíðabuxur á börn og fuilorðna. Verð frá
3.390,-
Nike dúnútpur
Regatta isotex jakkar í mörgum gerðum
Htýju ultarfrotte nærfötin í öllum stærðum
Skolabraut 28
s 431 2290
Naumt tap hjá
Skallagrími
Skallagrímsmenn biðu lægri hlut gegn KR í jöfhum og spennandi leik
í Borgamesi síðastliðinn fimmtudag. Gestirnir voru betri framan af og
leiddu mestallan fyrri hálfleikinn en Skallarnir spiluðu betur í seinni
hluta leiksins. Urslitin réðust ekki fyrr en á síðustu sekúndunum því
þegar 20 sekúndur vom eftir var staðan 73-73. Þá skoraðu KR ingar tvö
stig en Skallagrímsmenn fengu færi á að jafna þegar Peebles fékk tvö
vítaskot en skoraði aðeins úr öðru.
Tölumar
Nr Nafh Mín HF STO STIG
4 Finnur Jónsson 4 0 1 0
5 Hafþór I Gunnarsson 16 1 0 2
6 Ari Gunnarsson 30 1 1 11
7 Pálmi Þ Sævarsson 19 6 0 4
9 Alexander Ermolinski 32 10 3 12
10 Warren Peebles 40 6 10 21
14 Evgenij Tomilovski 21 3 5 16
15 Sigmar P Egilsson 32 3 3 8
Bridge
Akranes:
Þessar vikurnar er verið að spila fimm kvölda hausttvímenning hjá
Bridgefélagi Akraness. Þrjú bestu kvöldin gilda og staðan að loknu
þriðja kvöldinu er þannig að Guðmundur Olafsson og Hallgrímur
Rögnvaldsson eru efstir með 504 stig, næstir koma Ingi Steinar Gunn-
laugsson og Olafur Grétar Olafsson með 484 stig og í þriðja sæti eru Al-
freð Viktorsson og Stefán Jóhannson með 478 stig. K.K.
Borgarnes og Borgarfjörður:
Vetrarstarf Bridgefélags Borgarness hófst á því að félagið fékk Suður-
nesjamenn í heimsókn um mánaðamótin sept/okt. Spiluð var sveita-
keppni á laugardeginum og sigruðu heimamenn nokkuð örugglega, en
á sunnudeginum var spilaður tvímenningur og voru Suðurnesjamenn
þar í tveimur efstu sætunum.
Aðaltvímenningur félagsins hefst miðvikudaginn 8. nóvember. Nú er
ætlunin að spila hann með félögum í Bridgefélagi Borgafjarðar. Af þeim
sökum verður til skiptis spilað í Logalandi og Félagsbæ. Fyrsta kvöldið
verður í Félagsbæ. Vonandi mæta sem flestir og vill félagið koma því á
ffamfæri að nýir félagar eru alltaf velkomnir. MM
Hópurinn á myndinni gerði góðafertj til Reykjavíkur í síðustu viku þar sem þau kepptu í
badminton í TBR húsinu og sópuðu til sín ellefu gull og silfurverðlaunum. Þjálfari
þeirra Dipu Ghosh sést með þeim á myndinni. SOK