Skessuhorn - 02.05.2003, Side 2
2
FOSTUDAGUR 2. MAI 2003
UHtJJUtlU...
Glæsilegir mótorfákar drógu að
sér hundruö gesta í Borgamesi á
fimmtudag. Mynd:RBG
Velheppnuð
vélhjólasýning
Bifhjólafjélag Borgarfjarðar,
Raftarnir, hélt veglega bifhjóla-
sýningu í íþróttamiðstöðinni í
Borgarnesi á sumardaginn
fyrsta en þetta er annað árið í
röð sem félagið stendur fyrir
viðburði af þessu tagi. Flest
vélhjólauinboð landsins tóku
þátt í sýningunni sem þótti hin
glæsilegasta. Ekki spillti heldur
yfirbragði sýningarinnar að yfir
fimmtíu félagar úr Bifhjóla-
samtökum Lýðveldisins, Snigl-
unum, riðu mótorfákum sínum
upp í Borgarnes og fögnuðu
sumri með leðurklæddum fé-
lögum sínurn í Borgarfirðin-
um.
Sumri
fagnað í
Hólminum
I Stykkishólmi var mikið að
gerast eins og annars staðar á
sumardaginn fyrsta. Hjá leik-
skólanum var opið hús, Lions-
klúbburinn var með kaffisölu,
leirlistasýning var í grunnskól-
anum, golfmót og félagið
Embla var með Vorvöku í
Tónlistarskólanum sem hófst
kvöldið áður.
Dagurinn hófst með opnum
degi hjá Leikskólanum þar sem
afrakstur vetrarstarfsins var
sýndur. Það var af ýmsum toga
eftir aldri, þroska og áhugasviði
barnanna. Þá voru börnin með
söngstundir hvert á sinni deild
og buðu gestum að þiggja veit-
ingar að því loknu. Verkefni
barnanna vöktu mikla og verð-
skuldaða athygli og voru þau að
vonum ánægð með daginn. KJ
Akraneshöfh
Tveir nýjir
kranar
Hafnarstjórn samþykkti á
fundi sínum nýverið að fela yf-
irhafnarverði að ganga frá
pöntun á tveimur krönum auk
þess að kaupa dælustöð fyrir
annan þeirra. Aædaður kostn-
aður við kranana er ríflega 2,6
milljónir. Um er að ræða krana
með um 1 tonn lyftigetu og 7
metra armi. HJH
Fullkomin aðstaða fyrir
ferðamenn við Hraunífossa
Auk annarra mannvirkja við Hraunfossa hefitr verið komið upp veglegu upp-
lýsingaskilti. Mynd: GE
Síðastliðinn þriðjudag voru
formlega teknar í notkun end-
urbætur við áningarstaðinn
Hraunfossa í Borgarfirði.
Framkvæmdir hófust að til-
stuðlan Ferðamálaráðs árið
1995 og var þá byggt nýtt bíla-
stæði við þennan fjölsótta
ferðamannastað. Fyrir um
þremur árum var komið fyrir
hreinlætisaðstöðu og byggður
útsýnispallur við Hraunfoss-
ana. I vor var síðan komið fyr-
ir þjónustuhúsi þar sem verður
greiðasala, minjagripir ofl.
Einnig hafa verið gerðir
göngustígar um svæðið, bíla-
stæði afmörkuð og gerður út-
sýnispallur við Barnafoss.
Framkvæmdirnar voru í hönd-
um Ingólfs Jóhannssonar skrú-
garðyrkjumeistara og Þor-
steins Guðmundssonar véla-
verktaka.
Markmmiðið með fram-
kvæmdunum við hraunfossa
var fyrst og fremst að vernda
umhverfið og auka öryggi
Á degi Umhverfisins, síðast-
liðinn fösmdag, fékk Lýsuhóls-
skóli í Snæfellsbæ afhentan svo-
kallaðan grænfána. Grænfáninn
er fjölþjóðleg umhverfisviður-
kenning og hefur stýrihópur
Grænfánans á Islandi ákveðið að
Lýsuhólsskóli fái heimild til þess
að flagga Grænfánanum næstu
tvö árin. Þetta er viðurkenning
fyrir vinnu skólans að umhverf-
ismálum og að öll skilyrði vegna
fánans hafi verið uppfyllt. Lýsu-
hólsskóli er finunti skólinn hér á
landi sem hlýtur Grænfánann og
annað sveitarfélagið á Vestur-
ferðamanna.Við athöfn við
Hraunfossa á þriðjudag kom
fram að áníðsla landsins hafi
verið það mikil að gróðureyð-
ing á bökkum árinnar hafi ver-
ið kominn á hættustig. Á
þriðjudaginn var einnig undir-
landi á eftir Andakílsskóla í
Borgarfirði.
Umhverfisnefnd Lýsuhóls-
skóla veitti Grænfánanum við-
töku við fjölmenna athöfn á
föstudaginn. Boðið var upp á
fjölbreytta dagskrá þar sem
meðal annars var kynnt starf
nemenda í umhverfisfræðslu í
sumar. Meðal annars sýndu
nemendur endurvinnslu úr
pappír en það sem án efa vakti
mesta athygli voru virkjunar-
framkvæmdir í bæjarlæknum á
Lýsuhóli. Eitt af verkefnum
vetrarins í umhverfisfræðslu var
ritað samkomulag milli Ferða-
málaráðs og Borgarfjarðar-
sveitar þar sem sveitarfélagið
tekur að sér allt viðhald á þeim
mannvirkjum sem Ferðamála-
ráð hefur látið koma fyrir á
svæðinu. GE
bygging stíflu í læknum og
fengu nemendur síðan að
spreyta sig á að reikna út hversu
mikla raforku væri hægt að
framleiða ef stíflan yrði virkjuð.
Þá smíðuðu þeir vatnshrút sem
hægt er að nota til að dæla vami
á leikvöllinn við skólann. Full-
trúar Landverndar, mennta-
málaráðuneytisins og umhverf-
isnefndar Alþingis voru við-
staddir athöfnina í Lýsuhóls-
skóla á föstudag og vöktu fjöl-
breytt og frumleg umhverfis-
verkefni nemenda verðskuldaða
athygli gestanna. GE
Vesturland
2003
Ferðabæklingurinn Vestur-
land 2003 kernur út um þessi
mánaðarmót apríl/maí og er
með svipuðu sniði og undanfar-
in ár. Þar koma ffarn helstu at-
riði hvers svæðis á Vesturlandi,
fróðleikur, sögur, afþreying og
fleira í þeim dúr. Bæklingurinn
verður kynntur á Ferðatorgi
2003 sem haldið verður í Vetr-
argarði Smáralindar 2.-4. maí
næstkomandi. En á Ferðatorgi
2003 geta fyrirtæki og einstak-
lingar komið og kynnt sér þá
valmöguleika sem boðið er
uppá á Islandi.
Bæklingurimt verður borinn
út til eigenda sumarhúsa á
Vesturlandi auk þess sem hann
verður á bensínstöðvum, upp-
lýsinga- og kynningarmið-
stöðvum og öðrum almenn-
ingsstöðum um allt land.
Atkvæðin
taliní
Borgamesi
Uin tuttugu manns munu
sinna því verki að telja atkvæð-
in í NV-kjördæmi í komandi
Alþingiskosningum og rnunu
þau gera það í íþróttahúsinu í
Borgarnesi. Að sögn Gísla
Kjartanssonar, formanns yfir-
kjörstjórnar, má búast við að
talningin taki lengri tíma en
áður. „Það er miklu meiri vinna
í kringum þetta en verið hefur
vegna stækkunnar umdæmis-
ins. Meiningin er að flogið
verði með atkvæðin frá Vest-
fjörðum en annars verða þau
keyrð frá öðrum stöðum. Það
má alveg búast við því að við
verðum eitthvað lengur fram-
eftir en venjulega.“ Gísli sagði
að talningi hæfist klukkan 18 á
kjördag og fljótlega eftir að
kjörstöðum lokaði mætti
vænta þess að fyrstu tölur yrðu
lesnar. HJH
Flutningar
UKV
Upplýsinga- og kynningar-
miðstöð Vesturlands eða UKV
er þessa dagana að flytja starf-
semi sína frá Brúartorgi og yfir
í Hymuna. UKV annast fjöl-
breytta þjónustu við ferða-
menn og ferðaþjónustuaðila.
Þar verða til sölu minjagripir
og handverk sem framleitt er á
Vesturlandi, bækur, póstkort,
landakort og fleira. Þar er hægt
að fá upplýsingabæklinga frá
ferðaþjónustuaðilum á Vestur-
landi og aðra helstu bæklinga
frá öðrum landshlutum. Bæk-
lingana er hægt að nálgast á
opnunartíma Hyrnunnar. pjr
Hluti nemenda úr Lýsuhólsskóla með Grænfánann eftirsótta. A innfelldu myndinni má sjá vatnshrútinn og stífluna
Lýsuhólsskóli hlýtur Grænfánann
Virkjunarframkvæmdir hluti af umhverfisnáminu