Skessuhorn


Skessuhorn - 20.04.2005, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 20.04.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. APRIL 2005 Engey væntanleg í byrjun maí Umferðaróhapp á Mýrum BORGARBYGGÐ: Bandarísk hjón lentu í umferðaróhappi á Snæfellsnesvegi við Amarstapa á Mýrum síðdegis á sunnudag. Hjónin voru að koma að vestan og ók konan bílnum en eigin- maðurinn svaf í framsætinu. Konan missti bílinn út af í beygju móts við Arnarstapa. Bíllinn rann síðan um 90 metra utan vegar þar til hann lenti á moldarbarði og tókst þar á loft og flaug um 45 metra og lenti síðan harkalega en án þess að velta. Farþeginn lenti með höf- uðið í framrúðunni og rotaðist. Var talið að hann hefði hlotið alvarleg háls- og höfúðmeiðsli og var hann fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Ökumaðurinn slapp án teljandi meiðsla. Se Idolstjömur REYKHÓLAR: Mikið verður um að vera í Reykhólasveitinni á sumardaginn fyrsta. Að venju verður haldinn hefðbundinn BarmahHðardagur þar sem íbú- ar hjúkrunar- og dvalarheimil- isins Barmahlíðar á Reykhólum taka á móti gestum. A dag- skránni í Barmahlíð að þessu sinni verða tónleikar kórsins Litlu flugunnar og harm- ónikkufélagsins Nikkólínu. Að Barmahlíðardagskránni lok- inni tekur við tónlistarveisla í nýju íþróttahúsi á Reykhólum þar sem Idolstjörnumar Helgi Þór frá Isafirði og Heiða ffá Hólmavík, sem hafnaði í öðra sæti keppninnar að þessu sinni, munu láta ljós sitt skína. Se Skrópa þrjá tíma á viku FVA: A dögunum voru birtar niðurstöður um árangur nem- enda Fjölbrautaskóla Vestur- lands á síðastfiðinni haustönn. Tölumar eru svipaðar og síð- ustu ár og kemur þar m.a. fram að um helmingur allra nem- enda við skólann féll í a.m.k. einum áfanga. Hinsvegar var mæting nemenda mun slakarí en fyrri ár, eða um 89%. Það jafngildir því að meðaltals nem- andi sé fjarverandi í a.m.k. 3 kennslustundum á viku. Mun skólastjóm vinna að því á næst- unni að koma í veg fyrir svo slaka mætingu á næsta skólaári. -þgb Hagyrðingar í Hólminn STYKKISHÓLMUR: Vor- vaka félagsins EMBLU Stykk- ishólmi verður haldin miðviku- daginn 4. maí nk. klukkan 20.00 í Félagsheimili Stykkis- hólms. Þar mun Gísli Einars- son stjóma hagyrðingakvöldi þar sem ýmsir hagyrðingar víðsvegar af landinu munu leiða saman hesta sína. -?nm Engey RE 1, hið nýja og stóra uppsjávarskip HB Granda, er vænt- anlegt til landsins í byrjun maí en skipið hefur undanfarna mánuði verið í Gdynia í Póllandi. Þar hefur farið ffam mikil vinna við að endur- nýja og yfirfara ýmsan búnað í skip- inu og verkið allt miðað við það að útbúa skipið sem best til uppsjávar- veiða. Til að mynda er allur vinnslubúnaður skipsins nýr með tuttugu lóðréttum ffystitækjum og sjö VMK síldarflökunarvélum. All- ar mannaíbúðir í skipinu era nýjar og starfsmannaðstaðan í skipinu verður ein sú besta sem völ er á í ís- lensku fiskiskipi. HB Grandi festi kaup á skipinu þann 1. október á s.l. ári. Skipið er Síðastliðinn miðvikudag var kveðinn upp í Héraðsdómi Vestur- lands dómur í máli sem Fjóla Bene- diktsdóttir höfðaði gegn Dala- byggð og Lífsvali ehf vegna kaupa á jörðinni Stóra - Skógi í Dalabyggð. Forsaga málsins er á þann veg að í mars 2004 ákváðu Fjóla Bene- diktsdóttir og mágur hennar Hlyn- ur Þór Benediktsson að selja Stóra - Skóg sem hafði verið í eigu þeirra um árabil. Kaupendur vora Ursula og Ralp Doppler en þau höfðu einnig handsalað kaup á Skógskoti sem er aðliggjandi jörð og var í eigu Guðmundar Ólafssonar og Gróu Sigvaldadóttur. Sveitarstjórn Dala- byggðar ákvað hinsvegar á fundi sínum þann 13. apríl 2004 að neyta forkaupsréttar samkvæmt heimld í þágildandi jarðalögum. Þann 16. á- gúst sama ár gerði Dalabyggð síðan kaupsamning við Lífsval ehf um sölu á jörðunum Stóra - Skógi og Skógskoti. I kaupsamningnum um Stóra - Skóg var sett það skilyrði að kaupandi hæfi mjólkurffamleiðslu á jörðunum tveimur sem miðaðist við 400.000 lítra mjólkur á ári. Vélhjólasýning Raftanna, Bif- hjólafjélags Borgarfjarðar, sem haldin hefur verið síðastliðin 3 ár á sumardaginn fyrsta fellur niður í ár. Astæðan er sú að ekki var hægt að halda hana í Iþróttamiðstöðinni í Borgarnesi vegna álags á ný gólf- efhi sem þar era. „Ekki fékkst ann- smíðað á Spáni 1994 og er 105 metra langt og 20 metra breitt. Við þær breytingar sem áður er lýst verða ffystiafköst skipsins um 200 - Samkvæmt samningnum var sveit- arstjórn Dalabyggðar heimilt að fella samninginn úr gildi einhliða yrði ekki staðið við það skilyrði. Þá var kveðið á um að Dalabyggð væri heimilt að krefja kaupanda um 2.800.000 krónur fyrir fjármagns- kostnað vegna kaupa sveitarfélags- ins á jörðinni. Fyrri eiganda, Fjólu var í ffam- haldi boðið að neyta forkaupsréttar á jörðinni á forsendum kaupsamn- ings við Lífsval þar sem hún er einnig eigandi jarðarinnar Alf- heima. Þau sættu sig ekki við fyrr- nefhd skilyrði m.a. vegna þess að þau gætu ekki náð markmiðum um mjólkurframleiðslu á jörðinni Skógskoti enda væri sú jörð ekki í þeirra eigu. Þann 1. nóvember 2004 höfðar Fjóla mál á hendur Dalabyggð og Lífsvali ehf og gerir þær kröfur að forkaupsréttur hennar að jörðinni Stóra - Skógi verði viðurkenndur og ennffemur að viðurkennt verði að skilyrði um mjólkurffamleiðslu á jörðinni verði óskuldbindandi fyrir hana. að húsnæði sem gætd rúmað sýn- ingu sem þessa, þó nokkur fyrirtæki í Borgarnesi hafi boðið húsnæði sitt ffam og sýnt okkur mikinn velvilja. Kunnum við þeim bestu þakkir fyr- ir. Við örvæntum þó ekki því að ári mun verða risin reiðhöll mikil hér í Borgarnesi, sem ættd að geta leyst 250 tonn á sólarhring. Um borð er fiskimjölsverksmiðja með afköst upp á 150 tonn á sólarhring af hrá- eftii. MM Þann 26. nóvember sama ár höfðaði Dalabyggð gagnsök á hendur Fjólu og stefndi Lífsvali ehf til réttargæslu. Þar var þess krafist að Fjóla greiddi það verð fyrir jörðina sem kveðið var á um í kaupsamningnum við Lífsval að viðbættum fjármagnskostnaði og að fyrrnefnt skilyrði um mjólkur- framleiðslu yrði viðurkennt. Mál þessi voru síðar sameinuð og kveð- inn upp í þeim sameiginlegur dómur í síðustu viku sem fyrr seg- ir. Héraðsdómur Vesturlands við- urkenndi forkaupsrétt Fjólu Bene- diktsdóttur að jörðinni Stóra - Skógi samkvæmt kaupsamningn- um við Líifsval en tók ekki tillit til fjármagnskostnaðar. Þá féllst dóm- urinn einnig á að skilyrði um mjólkurframleiðslu væri óskuld- bindandi fyrir hana. Ennffemur var Dalabyggð og Lífsvali gert að greiða tæpar 1300 þúsund krónur í málskostnað. Dómurinn var kveðinn upp af Benedikt Bogasyni, héraðsdómara. GE úr húsnæðisvanda okkar. Við von- um því bara að bæjaryfirvöld hraði sem mest byggingu reiðhallarinnar þannig að ekki þurfa að fella oftar niður hina glæsilegu vélhjólasýn- ingu okkar,“ segir Jakob Guð- mundsson, yfirraffur í samtali við Skessuhom. MM Grjótskemmdir á bílum BORGARFJÖRÐUR: Síðast- liðinn laugardag gekk djúp lægð yfir landið með tdlheyrandi roki, m.a. undir Hafiiarfjalli. Við Grjóteyri fauk malbik af Htlum kafla vegarins. I hnútum mældist veðurhæðín 43-47 m/sek á sjálf- virkum veðurmæli við Hafhar- fjall þegar mest gekk á. Vegfar- endur sem Ieið átm um veginn fyrir hádegi þennan dag lenm nokkrir í grjótregni en það getur myndast þegar skrúfuvindur þyrlar upp lausu grjóti og sandi. Nokkrir bílar sem fyrir grjótinu lenm skemmdust nokkuð. Meðal annars var einn nýlegur fólksbíll með ónýtt lakk allan hringinn efrir grjótkast og er tjón eigand- ans nokkur hundruð þúsund krónur. Tryggingar bæta ekki tjón af þessum völdum jafrivel þótt bílar hafi kaskótryggingu. -mm Viðræður um húsmæðra- skólann BORGARFJÖRÐUR: Viðræð- m standa yfir milli skóla- og rekstramefndar Varmalandsskóla í Borgarfirði og Héraðsnefridar Borgarfjarðar vegna Húsmæðra- skólahússins á Varmalandi. Borg- arbyggð keypti fyrir tveimur árum hlut ríkisins í húsinu til að nýta það fyrir Varmalandsskóla en útaf stendur hlutur héraðs- nefndar Borgarfjarðar sem er 12,5%. Vilji er fyrir því að Borg- arbyggð eignist einnig þann hlut ef um semst en ekki hefur náðst niðurstaða um verð. -ge Böm með heil- bdgðar tennur AKRANES: Nýverið stóð Lýð- heilsustöð fyrir sérstakri tann- heilsuskoðun meðal nemenda í 7. og 10. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi, en skófinn lenti í sér- stöku úrtaki Lýðheilsustöðvar vegna þessa verkefiús. f skólann komu tannlæknar og skoðuðu og tóku myndir af nemendum og mátu skemmdir og þá staði sem viðkvæmir eru fyrir tann- skemmdum. Tannlæknarnir voru svo ánægðir með tannheilsu bamanna að þeir óskuðu fundar með þeím sem fylgjast með tann- heilsu grunnskólabama á Akra- nesi til að fá nánari upplýsingar um hvemig sé staðið að þessum málum hér. Tannheilsa bam- anna var með því besta sem þess- ir læknar höfðu séð. -mm Sumarhús við Bjarkarlund REYKHÓLAR: Reykhólasveit hefrir látið deiliskipuleggja níu lóðir fyrir sumarhús á svæðinu við Hótel Bjarkarlund. Búist er við mikilli efrirspum enda svæð- ið annálað fyrir náttúrufegurð og smtt í veiði í Berufjarðarvatni. -ge Dalabyggð tapar forkaupsréttannáli Frá vélhjólasýningu Raftanna íjyrra. Raftar sleppa sýningunni þetta árið SKESSUHORN WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla mibvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þri&judögum. Auglýsendum er berit á ab panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Bla&iö er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarver& er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 alu virka daga Útgefandi: Skessuhorn ehf, - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðama&ur: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.ís Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. 696 7139 iris@skessuhorn.is Umbrot: Gu&rún Björk Fri&riksd. 4371677 gudrun@skessuhorn.is Prentun: ísafoldarprentsmiðja

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.