Skessuhorn - 20.04.2005, Qupperneq 18
18
MIÐVIKUDAGUR 20. APRIL 2005
^uCssunuK.
Segjumjá við sameinin. gu 23. a prtl
Það var fyrst árið 1994 sem við
Borgfirðingar hófiom okkar samein-
ingarferli sveitarfélaga þegar Borg-
arbyggð varð til úr Borgarnesbæ,
Hraunhreppi, Norðurárdal og
Starfholtstungum. Síðan varð það
1998 að Alftaneshreppur, Borgar-
hreppur og Þverárhlíð bættust í
þann hóp. Það varð einnig árið 1998
að Andakíll, Lundarreykjadalur,
Reykholtsdalur og Hálsasveit sam-
einuðust og til varð sveitarfélagið
Borgarfjarðarsveit. Sveitarfélögum á
þessu svæði hefur því fækkað um 9 á
þessum 11 árum.
Og nú þann 23. apríl 2005 kjósum
við íbúar Borgarfjarðarsveitar,
Skorradalshrepps, Hvítársíðu-
hrepps, Borgarbyggðar og Kol-
beinsstaðahrepps um sameiningu
þessara sveitarfélaga í eitt rúmlega
3500 manna sveitarfélag. Það er sú
sameining og sú mynd sem mjög
margir hafa séð sem ffamtíðarmark-
mið á þessu svæði. Undirbúningur
þessa hefur nú staðið í rúm tvö ár og
hefur algerlega verið unnin á for-
sendum og að ffumkvæði þessara
fimm sveitarstjórna. Ég vil þakka
þessu sveitarstjómarfólki ffumkvæði
þeirra og ffamsýni.
En til hvers að sameina þessi
sveitarfélög? Svör við þessari spurn-
ingu era margvísleg og m.a. þessi:
1. Til þess að gera svæðið sterkari
skipulagslega heild.
2. Til þess að allir íbúar svæðisins
geti búið hér við enn öflugri félags-
lega þjónustu.
3. Til þess að gera svæðið öflugra
atvinnusvæði.
4. Til þess að gera það hæfara til
að sinna sameiginlegri þjónustuþörf
alls svæðisins.
5. Til þess að styrkja enn ffekar og
auka það skólastarf sem fyrir er á
svæðinu.
6. Til þess að auka verulega þjón-
ustu við eldri borgara.
7. Til þess að geta t.d. þjónustað
háskólana á svæðinu enn betur.
8. Til þess að vera betur í stakk
búin til að taka við verkefnum ffá
ríkinu.
9. Til þess að geta enn betur varð-
veitt þetta fallegasta svæði landsins.
10. Til þess að gera gott hérað enn
betra.
Ég hef hér að ffaman talið upp
nokkur mál sem ég tel að við leysum
miklu betur í sameinuðu sveitarfé-
lagi en þeim fimm sem við búum nú
í og sjálfsagt væri hægt að nefna
mörg til viðbótar.
Mér hefur fúndist fróðlegt og
skemmtilegt að fylgjast með mikilli
uppbyggingu sem víða á sér stað á
landsbyggðinni, þótt einnig sé hægt
að finna dæmi um það gagnstæða.
En hvar er mesti uppgangurinn?
Byggðin er tmdantekningalaust fyrst
og ffemst að blómstra þar sem veru-
leg sameining sveitarfélaga hefur átt
sér stað, eins og t.d. á Austur-Hér-
aði, í Fjarðarbyggð, á Höfh og í Ar-
borg. Ég held að það sé ekki tilviljun
að uppgangurinn er fyrst og fremst
að eiga sér stað þar sem sameining
hefur átt sér stað. Það leysist úr læð-
ingi kraffur og styrkur samfélagsins
þegar menn fara að vinna sem ein
heild.
Því segi ég hiklaust að það er von
mín og ósk að við berum gæfu tál að
segja JÁ við þessum sameiningará-
formum 23. apríl n.k. Með því verð-
um við ein sterk heild, sem verður
langtum sterkari til að taka við
margvíslegum sameiginlegum verk-
efnum til hagsbóta fyrir allt svæðið.
Við glötum engum tældfærum og
það er ekkert að óttast varðandi
sameiningu. En við stóraukum
möguleika okkar og verðum miklu
bemr í stakk búin til að búa hér til
fyrirmyndar sveitarfélag.
Sveinn G. Hálfdánarson,
form. Verkalýösfélags Borgamess
Margt mætti beturfara
Á síðasta fundi Bæjarstjórnar
Akraness, þriðjudaginn 12. apríl sl.
fluttu bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins þrjár tilllögur.
Fyrsta tillagan fjallaði um að fela
forstöðumanni skipulags- og um-
hverfissviðs, ásamt viðkomandi
nefnd, að finna til framtíðar pláss
fyrir allan þann uppgröft sem fell-
ur til vegna nýbygginga og annarra
framkvæmda sem eru fyrirsjáan-
legar á Akranesi í framtíðinni. Til-
lagan var svona í heild sinni:
„Bæjarstjórn Akraness felur
sviðsstjóra tækni- og umhverfis-
sviðs í samráði við skipulags- og
umhverfisnefnd að koma með til-
lögu til bæjarstjórnar Akraness fyr-
ir sumarfrí bæjarstjórnar 2005, um
það á hvern hátt megi losna við eða
koma fyrir svo vel fari uppgreftri
þeim sem fyrirsjáanlegur er á
næsm árum, m.a. vegna nýbygg-
inga.“
Önnur tillagan fjallaði um að
banna umferð ökutækja á malar-
vegi fyrir neðan skógræktina og
inn að þjóðvegi. Tillagan var svona
í heild sinni:
„Bæjarstjórn Akraness samþykk-
ir að beina því til skipulags- og
umhverfisnefndar að veginum sem
liggur með skógræktinni og tengist
Akrafjallsvegi, vegur nr. 51, verði
lokað nú þegar fyrir umferð vél-
knúinna ökutækja frá Akrafjalls-
vegi.“
Báðar þessar tillögur voru sam-
þykkar með öllum greiddum at-
kvæðum, eða 9-0.
Þriðja tillaga okkar Sjálfstæðis-
manna fjallaði um að lækka leik-
skólagjöld á Akranesi ffá og með 1.
maí n.k. um 15%. Tillagan var
svona í heild sinni:
hvort og þá hvernig ætti að lækka
aldur þeirra sem njóta leikskól-
anna.“
Þessari tillögu óskaði meirihluti
bæjarstjórnar eftir að vísa til bæjar-
ráðs til frekari umfjöllunar. Það er
að öllu leyti eðlilegur framgangs-
máti þar sem meirihluti bæjar-
„Bæjarstjórn Akraness samþykk-
ir að lækka frá og með 1. maí 2005
leikskólagjöld á leikskólum Akra-
neskaupstaðar um 15%. Frekari
lækkun eða niðurfelling á leik-
skólagjöldum verði teknar upp við
afgreiðslu eða vinnslu við fjárhags-
áætlun Akraneskaupstaðar fyrir
árið 2006. Einnig verði skoðað þá
stjórnar var að sjá þessa tillögu í
fyrsta skipti. Lækkun leikskóla-
gjalda er líka mjög stórt mál sem
mörg sveitarfélög eru að skoða og
sýnist sitt hverjum. Tillögunni var
því vísað til bæjarráðs 9-0.
Á þessum sama bæjarstjórnar-
fundi var borinn upp tillaga um
uppbyggingu fyrir aldraða. Annars
vegar við Dvalarheimilið Höfða og
hins vegar á hugsanlegum bygging-
areit sem afmarkaðist af svæðinu
við bókasafnið við Heiðarbraut og
verslun Málningarbúðarinnar við
Kirkjubraut og pósthúslóðinni.
Þessi tillaga fjallar um ákaflega
viðamikinn málaflokk sem á aðeins
eftir að stækka á komandi árum og
áratugum.
Eðlilega óskuðum við Sjálfstæð-
ismenn eftir því að þessari tillögu
yrði vísað til ffekari umfjöllunar í
bæjarráði þar sem við værum að sjá
hana í fyrsta skipti. Því var hins
vegar hafhað af meirihlutanum í
bæjarstjóminni í atkvæðagreiðslu.
Ótrúlegt en satt ef lidð er til þess að
seinna á fundinum var okkar tillögu
um mun minna mál vísað í bæjar-
ráð. Sem betur fer er það sjaldan
sem meirihluti sveitarstjórnar beitir
sér á þennan hátt sem hér var gert,
hvort sem er hér á Akranesi eða
annars staðar. í raun er það óskilj-
anlegt að meirihluti sem gefur sig
út fyrir vera jafhaðar- og samvinnu-
menn skuli standa að svona yfir-
gangi við afgreiðslu einnar tillögu.
Ég leyfi mér að segja að þeir hafi
beitt minnihlutann ofbeldi, sem
því miður hefur áður komið fyrir,
þó oftast sé gott samstarf í bæjar-
stjórn og bæjarráði, sem betur fer.
Eina skýringin sem ég hef á á-
kvörðun þessari er sú að daginn
fyrir umræddan bæjarstjórnarfund
skrifaði fyrrverandi formaður
Framsóknarfélags Akraness, Björn
S. Lárusson, á vef Akraneskaup-
staðar um fyrirhugaða ráðningu á
forstöðumanni Dvalarheimilisins
Höfða. Þar skrifar hann m.a.:
„Það er annars umhugsunarvert að
hér á Akranesi erum við með allt
niður um okkur í málefnum aldr-
aðra og ekki einskær tilviljun að
það eru sjálfstæðismenn sem fara
með meirihluta í stjórn Höfða“.
Það vita allir sem til þekkja að
stjórn Höfða hefur ekkert með
öldrunarmál Akraneskaupstaðar að
gera. Það er sveitarfélagið Akranes
sem ber þá ábyrgð alla. Dvalar-
heimilið Höfði er sjálfseignar-
stofnun sem vinnur samkvæmt á-
kveðnum samþykktum og hefur
reyndar yfirráð yfir ákveðnu tak-
mörkuðu byggingarlandi við
heimilið. Því væri nær fyrir fyrr-
verandi formann Framsóknarfé-
lagsins hér á Akranesi að snúa sín-
um skrifum að Akraneskaupstað og
meirihlutanum.
Vegna stóryrða fyrrverandi for-
manns Framsóknarfélagsins í garð
okkar Sjálfstæðismanna er rétt að
geta þess að fulltrúar okkar Sjálf-
stæðismanna á Akranesi í stjórn
Höfða hafa flutt tillögur um bygg-
ingaframkvæmdir á svæðinu. Ann-
ars vegar um byggingu fyrir heila-
bilaða, sem var samþykkt að skoða,
og einnig um byggingu sjálfseigna-
íbúða. Ekki náðist samstaða um þá
tillögu í stjórn Höfða.
Að lokum óska ég Vestlending-
um öllum gleðilegs sumars og
þakka fyrir veturinn.
Gunnar Sigurösson,
Bœjarfulltrúi Sjálfstœöisflokksins á
Akranesi.