Skessuhorn - 20.04.2005, Side 22
22
MIÐVIKUDAGUR 20. APRIL 2005
Styrldr frá Sparisjóðnum í Ólafsvík
Fyrir skömmu voru veittir styrk-
ir úr Menningarsjóði Sparisjóðs
Olafsvíkur í kaffisamsæti á Hótel
Olafsvík. Tilgangur sjóðsins, sem
stofnaður var árið 1996, er að veita
styrki til hverskonar framfara- og
menningarmála í Snæfellsbæ.
Styrkirnir, alls um 750.000
krónur fóru að þessu sinni til eftir-
talinna aðila: Lýsuhólsskóla vegna
nýtingar vistvænnar orku, Félags-
miðstöðvarinnar Afdreps vegna
kaupa á hljóðkerfi, Skógræktarfé-
lags Olafsvíkur vegna skógræktar,
Framfarafélags Snæfellsbæjar,
Hellissands og Rifsdeildar vegna
uppsetningar skiltis við Keflavík-
urlendinguna, Framfarafélags
Snæfellsbæjar, Olafsvíkurdeildar
vegna framkvæmda við bekkinn í
Enni, Framfarafélag Snæfellsbæj-
Frá afhendingu styrkja Sparisjóðs Ólafsvíkur.
ar, sunnandeildar vegna merkingar félags Olafsvíkur vegna leikverks-
á gönguleið um Miðgötu í Hellna- ins Klerkar í klípu.
hrauni og stikun hennar og Leik- GE
Góður áranjgur Skagafólks á
Meistaramóti Islands í badminton
Meistarmót íslands í badmint-
on fór fram í TBR-húsinu við
Gnoðarvog fyrir skömmu.
Skessuhorn sagði nýlega frá vel
heppnaðri keppnisferð ung-
menna af Akranesi á ISCA bad-
mintonfestivalið í Danmörku.
Strax og heim var komið þaðan
tók íþróttafólkið þátt í meistara-
mótinu hér heima og stóð sig þar
með prýði en góður árangur
Badmintonfélags Akraness hefur
vakið verðskuldaða athyglisendi
að undanförnu.
Frá Akranesi mættu 25 kepp-
endur á meistaramótið, 17 sem
kepptu í b-flokki, 5 í a - flokki og
3 keppendur í meistaraflokki.
Mjög góður árangur náðist hjá
flestum keppendum, Alls komust
krakkarnir í 11 undanúrslitaleiki
og 5 úrslitaleiki. Akranesstúlkurn-
ar voru mjög öflugar í b-flokki og
skipuðu öll sætin í undanúrslitum
í einliðaieik og í úrslitaleiknum
sigraði Una Harðardóttir Mari-
anne Sigurðardóttur. Sama var
• uppi á teningnum hjá b - flokkn-
um í tvíliðaleik kvenna en þar voru
þrjú pör af Skaganum í undanúr-
slitum en í úrslitaleiknum sigruðu
þær Irena Jónsdóttir og Marianne
Sigurðardóttir Unu Harðardóttur
og Huldu Einarsdóttur. í tvennd-
arleik í b - flokki biðu írena Jóns-
dóttir og Róbert Þór Henn lægri
hlut fyrir gamalreyndu pari úr
TBR, þeim Gunnari Bollasyni og
Stellu Magnúsdóttur. ( a - flokki
var hart barist og náðu tveir
keppendur Skagamanna í úrslit í
þeim flokki og biðu bæði lægri
hlut. Hanna María Guðbjartsdótt-
ir í einliðaleik kvenna og Stefán
Jónsson í einliðaleik karla.
í meistarflokki var á brattann
að sækja enda bestu spilarar
landsins keppinautarnir. Þrír
keppendur voru af Skaganum,
þau Friðrik Veigar Guðjónsson,
Karitas Ósk Ólafsdóttir og
Birgitta Rán Ásgeirsdóttir (Hólm-
steins Þórs var sárt saknað en
hann er handarbrotinn eins og
við höfum áður greint frá). Friðrik
tapaði fyrir Magnúsi Helgasyni í
einliðaleik og í tvíliðaleik ásamt
Ástvaldi Heiðarssyni TBR fyrir ís-
landmeisturunum Brodda og
Helga. Friðrik og Karitas Ósk
töpuðu í tvenndarleik fyrir ís-
landsmeisturum (Skagasyskin-
unum úr TBR) þeim Tinnu og
Magnúsi Helgabörnum. Karitas
Ósk sigraði Halldóru Jóhannes-
dóttur úr TBR í átta liða úrslitum
í einliðaleik í hörku leik eftir upp-
hækkun og oddalotu en tapaði
fyrir íslandsmeistaranum Rögnu
Ingólfsdóttur í undanúrslitum.
Birgitta Rán og Karitas Ósk töp-
uðu í undanúrslitum í tvíliðaleik
fyrir íslandsmeisturunum í tvíliða
þeim Rögnu og Söru sem eru í
30. sæti heimslistans.
Á þessu sést að helst þarf ís-
landsmeistara til til að slá út
badmintonfólk hér af Skaganum,
en allavega verðu gaman að
fylgjast með þessum efnileg spil-
urum næstu árin og hver veit
nema að íslandsmeistaratitill í
meistaraflokki komi á Akranes
innan ekki langs tíma.
Evrópumeistaramót
í Hollandi
Að lokum má geta þess að
Karitas Ósk Ólafsdóttir ÍA fór til
Hollands um páskana og keppti
þar á Evrópumeistaramóti ung-
linga, en hún skipaði unglinga-
landslið íslands ásamt þremur
öðrum keppendum sem öll voru
úr TBR. Var þetta mjög sterkt
mót og allt hið glæsilegasta.
Keppendur voru frá alls um 20
þjóðlöndum. íslendingarnir unnu
einn leik á mótinu, en það var
tvenndarleikur hjá Karitas Ósk
og Bjarka Hlífari Stefánssyni
sem unnu Slóvana í oddalotu
eftir spennandi leik, en þau töp-
uðu síðan fyrir Rússum sem
komust í undanúrslit mótsins. Að
móti loknu var spilaður lands-
leikur við Noreg sem einnig átti
keppendur á mótinu. Sá leikur
vannst 3-2. Karitas Ósk vann
einliðaleik og tvíliðaleik kvenna
með Snjólaugu en hún vann
einnig tvenndarlek með Atla Jó-
hannessyni. Atli tapaði einliða-
leik og einnig tvíliðaleik karla
með Bjarka Stefánssyni.
MM
imasl
n mcins c*í thí mtm
ITÍNW l«R£.
OQLBV]
d i c i r Ai
MILLION DOLLAR 8AOV
Million Dollar Baby
Fimmtudaginn
21. apríl
kl. 20:00
Ahugasamir Grundfirðingar fylgjast með.
Kynntu heimsóknaþjón-
ustu Rauða krossins
Heimsóknarvinir úr Rauða kross
deildinni á Akranesi brugðu sér í
liðinni viku vestur í Grundarfjörð
og leiðbeindu þar þeim heima-
mönnum sem vilja taka að sér
heimsóknir til fólks sem ekki hefur
tök á að fara út vegna veikinda eða
af öðrum ástæðum. Á Akranesi hef-
ur þessi starfsemi verið öflug hin
síðari ár og verið þakklát þjónusta
við ýmsa aðila sem gjarnan vilja
þiggja heimsóknir og fá samveru og
félagsskap frá öðru góðu fólki.
MM /Ljósmyndir: Sverrir
Þaufrœddu Grundfirðinga um reynsluna afheimsóknafjónustu á Akranesi.
Sigurvegaramir á Akranesi.
Stóra upplestrar-
keppnin á
Lokaathöfn Stóru upplestrar-
keppninnar á Akranesi fór fram í
Vinaminni mánudaginn 18. apríl sl.
í sjöunda sinn. Bestu lesarar úr 7.
bekk grunnskólanna á Akranesi
lásu brot úr sögu Guðrúnar Helga-
dóttur, „Öðruvísi dagar“, ljóð eftir
Jóhannes úr Kötlum og ljóð að eig-
in vali. í fyrsta sæti varð Karólína
Hrönn Hilmarsdóttir 7. ÞÓ í
Brekkubæjarskóla, í öðru sæti varð
Dagný Björk Egilsdóttir 7. VH í
Grundaskóla og í þriðja sæti Aðal-
Skaganum
björg Þorkelsdóttir 7. SS í Brekku-
bæjarskóla. Dómnefnd skipuðu
Auður Sigurðardóttir, Guðfinna
Rúnarsdóttir, Ingibjörg Frímanns-
dóttir og Skúli Ragnar Skúlason.
Við þetta tækifæri afhenti Krist-
ján Kristjánsson báðum skólum
bæjarins bekkjarsett af bókinni
Heljarþröm en það er bókaútgáfa
hans Uppheimar sem gefur bókina
út. Jafnffamt fengu allir þátttak-
endur upplestrarkeppninnar bóka-
gjöf frá forlaginu. MM
Kristján í Uppheimum afhendir skólastjórunum bókargjöfma.