Skessuhorn - 22.06.2005, Qupperneq 23
u&C3aunu>.
MIÐVIKUDAGUR 22. JUNI 2005
23
Skagamenn óheppnir
Bikardraumur úti
Skagamenn þurftu svo sannar-
lega á sigri að halda í leiknum á
móti Keflavík síðastliðinn miðviku-
dag. Þetta var 6. leikur Lands-
bankadeildarinnar þetta sumarið
og staða liðsins ekki nógu góð.
Leikurinn byrjaði illa fyrir gestina
frá Keflavík þegar markmaður liðs-
ins, Ómar Jóhannesson, varð fyrir
alvarlegum meiðslum eftir árekstur
við Guðjón Heiðar Sveinsson.
Flytja þurfti Ómar af velli og var
farið með hann á Sjúkrahúsið. Það
blés byrlega fyrir ÍA þegar haldið
var til leikhlés því heimamenn
komust yfir með þrusumarki frá
Hirti Hjartarsyni rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks. Gestur Gylfason, varnar-
maður Keflvíkinga, ætlaði að
hreinsa frá marki en Hjörtur tók
boltann og þrumaði honum upp í
hægra hornið frá vítateig.
Skagamenn voru heldur
óánægðir með dómgæsluna, eins
og reyndar stundum áður, þegar
þeim fannst þeir snuðaðir um víta-
spyrnu eftir að Andri Júlíusson var
felldur af varnarmanni Keflvíkinga
um miðjan hálfleik. Erfitt er að
segja hvort dómarinn eða leik-
menn ÍA hafi haft rétt fyrir sér í því
máli. Skagamenn máttu þó vera
sáttir er þeir gengu til búningsher-
bergja í leikhléi. Liði ÍA var ekkert
breytt í hálfleik enda var liðið að
spila ágætlega. Eftir tæplega tíu
mínútna leik í seinni hálfleik jafnaði
þó lið Keflavíkur leikinn þegar
Guðjón Árni Antoníusson skoraði
eftir sendingu úr hornspyrnu.
Stuttu síðar var Hjörtur ekki langt
frá því að skora sitt annað mark í
leiknum. Þarna uppskar dómari
leiksins enn meiri óánægju hjá
Skagamönnum þegar hann
dæmdi brot á Keflavík eftir að
Hjörtur var sloppinn inn og gerði
mistök með því að bíða ekki og
nota hagnaðarregluna. Gestirnir
frá Keflavík höfðu ekki sungið sitt
síðasta og bættu við öðru marki á
76. mínútu. Það gerði Guðmundur
Steinarsson, fyrirliði Keflvíkinga, á
glæsilegan hátt beint úr auka-
spyrnu sem hann tók rétt fyrir utan
teig. Bjarki í markinu var reyndar
óheppinn því hann var ekki langt
frá því að verja þennan bolta.
Allt í allt var leikurinn ágætlega
spilaður og er hægt að segja að
úrslitin gefi ekki rétta mynd af
leiknum þar sem Skagamenn
þóttu betri aðilinn í leiknum. Það
eru þó mörkin sem telja og voru
Skagamenn ekki nógu duglegir að
nýta færin sem þeir fengu. Þetta er
jafnframt í fyrsta skipti í 11 ár sem
ÍA tapar fyrir Keflavík á heimavelli.
Næsti leikur liðsins fer fram í Hafn-
arfirði annað kvöld (fimmtudag),
þegar ÍA sækir FH heim og hefst
sá leikur klukkan 20.
GG/ Ljósm: Hilmar.
Dómarinn í aðalhlutverki
Síðastliðinn fimmtudag, 16. júní
áttust við á Ólafsvíkurvelli Víking-
ur og Haukar. Það var sumar-
blíða, logn og sólskin og því hef-
ur dómari leiksins líklega fengið
sólsting.
Það var Ijóst strax í upphafi að
heimamenn myndu selja sig dýrt
til að hljóta þau þrjú stig sem í
boði voru. Þeir áttu nokkra góðar
sóknir fyrra hluta hálfleiksins,
Slavisa átti gott skot, Campell
slapp nærri í gegn en bjargað var
í horn og Helgi átti hörkuskot yfir
eftir hornspyrnuna. En Haukar
komust betur inn í leikinn og
fengu dauðafæri á 18. mín. og
skoruðu svo fyrsta markið úr víti á
fertugustu mínútu en Víkingar
jöfnuðu aðeins tveimur mínútum
síðar þegar að Haukarnir skoruðu
sjálfsmark.
Jafnt var því í hálfleik en heima-
menn komu sterkir til leiks eftir te-
drykkjuna og það var því verð-
skuldað þegar að Hermann Geir
kom þeim yfir. Hann fékk góða
sendingu inn í teig þar sem að
hann sneri af sér einn varnar-
mann og sendi góða fyrirgjöf á
Campell sem lagði knöttinn í fjær-
hornið. Það þarf ekki vera fast.
Stuttu síðar eða á 60. mín. björg-
uðu Haukar á línu. Síðustu 20
mín. sóttu Haukarnir nokkuð en
vörn Víkinga hélt og þeir sigruðu
2-1. Víkingar hafa þar með hlotið
7 stig í deildinni og eru um miðbik
hennar. Bestir hjá Víkingum voru
Beggi fyrirliði, Campell og Helgi
Reynir. En mest áberandi á vell-
inum var samt dómarinn sem ekki
verður nafngreindur hér af tillits-
semi við hann. En hann gaf
heimamönnum 8 gul spjöld og 1
rautt. Voru heimamenn vægast
sagt afar óánægðir með frammi-
stöðu hans og unnu þeir þó leik-
inn. Hann hlýtur að hafa verið
loftlaus í leikslok.
Var það mál manna í leikslok að
Hans Scheving ætti að snúa sér
að annarskonar blásturshljóðfæri
og láta aðra um dómgæslu. FRF
Héraðsmót í hestaíþróttum
Sigurvegarar í fjórgangi unglinga.
Héraðsmót UMSB í hestaíþróttum fór
fram þann 18. júní sl. að Miðfossum.
Helstu úrslit urðu eftirfarandi:
4-gangur -börn
1. Svandís Lilja Stefánsdóttir, Umf.
Haukar, Demantur frá Skipanesi
5,70
2. Flosi Ólafsson Hmf. Faxi, Berg-
Ijót frá Breiðabólstað5,63
3. Þórdís Fjeldsteð Hmf. Faxi,
Álfrún frá Ölvaldsstöðum IV 4,57
4. Sigrún Rós Helgadóttir Hmf. Faxi,
Þráður frá Stakkhamri 2 4,63
5. Logi Sigurðsson Hmf. Faxi,
Þáttur frá Efri-Þverá 3,65
4-gangur - unglingar
1. Guðbjartur Þór Stefánsson Umf.
Haukar, Máni frá Skipanesi 6,23
2. Ásta Mary Stefánsdóttir
Umf.Haukar, Glymur frá Skipanesi
5,80
3. Valdís Ýr Ólafsdóttir Umf. Haukar,
Ljósm: GSig.
Kolskeggur frá Ósi 5,70
4. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir Hmf.
Skuggi, Léttir frá Húsey 5,17
5. Jón Ottesen Umf. Þrestir, Spönn
frá Ytra-Hólmi 4,73
4 - gangur opinn flokkur
1. Camilla Ripa Hmf. Faxi, Heljar frá
Horni I 6,33
2. Heiða Dís Fjeldsteð, Hmf. Faxi,
Dulnir frá Ölvaldsstöðum IV 6,23
3. -4. Ámundi Sigurðsson, Hmf.
Skuggi Harpa frá Miklagarði 5,93
3.-4. Kristín Snorradóttir, Hmf.
Faxi, Garpur frá Morastöðum 5,93
5. Rasmus Christjansen, Hmf.
Skuggi, Halastjarna frá Egilsstaðabæ
5,90
5-gangur - opinn flokkur
1. Heiða Dís Fjeldsteð, Hmf. Faxi,
Von frá Skálakoti 5,57
2. Ámundi Sigurðsson, Hmf, Skuggi,
Harka frá Miklagarði 5,36
Tölt - barnaflokkur
1. Svandís Lilja Stefánsdóttir, Umf.
Haukar, Demantur frá Skipanesi
6,06
2. Flosi Ólafsson, Hmf. Faxi, Bergljót
frá Breiðabólstað 5,83
3. Logi Sigurðsson, Hmf. Faxi, Þáttur
frá Efri-Þverá 4,61
4. Sigrún Rós Helgadóttir, Hmf, Faxi,
Þráður frá Stakkhamri 2 4,50
Tölt - unglingaflokkur
1. Valdís Ýr Ólafsdóttir, Umf. Haukar,
Kolskeggur frá Ósi 6,44
2. Guðbjartur Þór Stefánsson, Umf.
Haukar, Máni frá Skipanesi 6,33
3. Ásta Mary Stefánsdóttir, Umf.
Haukar, Glymur frá Skipanesi 5,67
4. Sigurborg Hanna Sigurðardóttir,
Hmf. Faxi, Glaumur frá Oddsstöðum I
5,50
5. Sólveig Ósk Guðmundsdóttir, Hmf.
Faxi, Hríma frá Ölvaldsstöðum IV
5,28
Tölt - opinn flokkur
1. Súsanna Ólafsdóttir, Garpur frá
Torfastöðum II 7,17
2. Jón Ó. Guðmundsson, Fákur frá
Feti 6,78
3. Silvía Rut Gísladóttir, írena frá
Oddhóli 6,56
4. Haukur Bjarnason, Hmf. Faxi, Bliki
frá Skáney 6,22
5. Gunnar Halldórsson Hmf. Faxi,
Kiljan frá Þverholtum 5,83
Sunnudaginn 19. júní var norð-
vestan kaldi sem heilsaði mönn-
um er Breiðablik kom í heimsókn
til Ólafsvíkur og freistuðu þess að
slá Víkinga út úr bikarnum - og
það tókst því miður.
En Víkingar gáfu það ekki eftir
baráttulaust þrátt fyrir að lenda
undir strax á þriðju mínútu með
klaufalegu sjálfsmarki (hvenær
eru sjálfsmörk ekki klaufaleg)?
Einar markvörður missti þá horn-
spyrnu yfir sig og knötturinn
hrökk af Slavisa í markið. Á 33.
mín. tók Steve Mackay auka-
spyrnu og sendi knöttinn á fjær-
stöng þar sem Hermann Geir tók
boltann viðstöðulaust glæsilega á
lofti og klippti hann með vinstri
fæti óverjandi í hornið. Stór-
glæsilegt mark og þetta var orð-
inn leikur að nýju. Stuttu seinna
fékk Hermann dauðafæri af svip-
uðu færi en skallaði rétt framhjá.
1-1 í hálfleik og baráttan hélt á-
fram þar til á 75. mín. að Mackay
fékk sitt annað gula spjald og þar
með rautt. Fimm mínútum síðar
kom hinn Ólsaraættaði varamað-
ur, Ellert Hreinsson inn á í lið Blika
og skoraði með sinni fyrstu snert-
ingu. í næstu sókn áttu heima-
menn góða sókn sem endaði
með því að Hermann skallaði
naumlega framhjá. Niðurstaðan
því 1-2 tap. Bestir í jöfnu og bar-
áttuglöðu liði heimamanna voru
Vilhjálmur Vilhjálmsson, Craig
Campell og téður Hermann Geir
Þórsson. FRF
Garðplöntusalan er opin
10:00-19:00 alla daga
Sumarblóm - kálplöntur - kryddplöntur - fjölær blóm, tré og runnar
Síminn 892-5667
broste
Njótum
STILLHOLT116-18 • AKRANESI
SÍMI431 3333 • modei.ak®simnet,is
Fyrirlestur í
héraði í Snorrastofu
ðturrvasrtpfa
Fluttur verður fyrirlestur um
stöðu fornleifarannsókna í Reykholti
í Snorrastofu þriðjudaginn 28. júní kl. 20.30.
i Fyrirlesari verður Guðrún Sveinbjamardóttir,
fomleifafræðingur.
Aðgangseyrir er 500 kr. og er boðið upp á veitingar.
Jónsmessuganga
£ á Klakkinn
HSH stendur fyrir fjölskyldugöngu á Klakkinn í
Eyrarsveit fimmtudaginn 23. júní nk. kl. 22:00.
Gengið verður frá Bárarfossi.
Þessi ganga er hluti af verkefni sem UMFI stendur fyrir íár og
nefnist,,Fjölskyldan á fjallið”. Göngustjóri verður Hallur Pálsson
bóndi á Naustum íFyrarsveit
Klakkur í Eyrarsveit; Austanmegin fjarðarins. Klakkurinn er
hæstur um 380 metrar en ofan í hann vestanvert er skál með
| tjörn. Þjóðsagan segir að á Klakkstjörn fljóti upp óskasteinar
i ájónsmessunótt. Skemmtilegt er að ganga fram á
| Klakkshausinn sem er í vestur lengst mót Grundarfirði og horfa
\ þaðan út á Breiðafjörð. Ganga á Klakk er í meðalagi erfið.
Tekur hátt íþrjá klukkutíma með gáðri viðdvöl.
\______r..i'",gn___________________________/