Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2005, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 29.06.2005, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 29. JUNI 2005 SMgSSUIiöBH Fyrirmyndar stígagerð á Akranesi Nýlega lauk malbikun vand- aðs göngustígs frá íþróttasvæð- inu á Akranesi, upp í gegnum Grundahverfi, meðfram hinu nýja Flatahverfi og að Safha- svæðinu. Það er sérstök ástæða til að vekja athygli á þessari framkvæmd. Oft er að tengingar fýrir gangandi, fólk í hjólastól eða á reiðhjóli, verða útundan við skipulag hverfa. Hér er hins- vegar myndarlega að verki stað- ið. Þegar frágangi er að fullu lokið með lýsingu, búið að koma fýrir bekkjum, listaverkum, blómum, runnum, trjám og gos- brunnum er hér um að ræða fýr- irmyndarframkvæmd og öðrum til eftirbreytni. ÓG Ttl minnís Við minnum á Fjórbungsmót Vesturlands á Kaldármelum næstu fjóra daga. Þar verða kynbótasýningar, gæðinga- keppni í öllum greinum, opin töltkeppni í öllum aldursflokk- um, opin stóðhestakeppni, kvöldvökur, dansleikir o.fl. Hljómsveitin Papar spila á laug- ardagskvöld og hljómsveit Geir- mundar Valtýssonar á föstu- dagskvöld. CcoJ Vechjrherfw Næstu daga verður subaustlæg átt með vætu á fimmtudag og föstudag, en fremur hlýtt í vebri. Á laugardag er gert ráð fyrir hægvibri og björtu veðri meb köflum. Á sunnudag gengur hinsvegar í norðaustan- átt með nokkurri hættu á rign- ingu. Áfram vætusamt í upphafi næstu viku og fremur svalt. Spijrniru} viRi^nnar Vib spurðum á Skessuhorn- svefnum: „Á ab hækka sektír vib umferöarlagabrotum?" Naumur meirihluti var hliðholl- ur því, eba 52%. 9,6% tóku ekki afstöbu en „Nei, þær eru nógu háar," svöruðu 38,4%. í næstu viku spyrjum við: „Hvað langar þig mest til að verða?" Svaraðu skýrt og skorínort og án allra undanbragða á fréttavefnum: wvm.skessuhorn. is Vestlencjinjw viRi^nnar Að þessu sinni tilnefnum við Vestlendinga víkunnar fyrir- fram: Þab eru allir þeir sem ætla ab leggjast í feröalög um kom- andi helgi og ætla að verba til fyrirmyndar í umferbinni. Búast má við mikilli umferð um lands- hlutann, enda fjölmennar sam- komur, t.d. f Ólafsvík, á Kaldár- melum og víbar og því full þörf á ab sýna aögæslu og varúð í umferðinni innan um alla höf- uðborgarbúana sem margir hverjir eru óvanir því að aka úti á landi. Góða ferð! Vinna við að mála Stapaey, gamla Harald Böðvarssm, var stöðvuð í síðustu viku þegar talsvert mikill málningarúði hafði horist á htís og bíla við Krókatún. Vindpokin við höfnina sést illa, þvíþegar myndin var tekin, sk&mmu eftir að framkvamdir vuru stöðvaðar við málun skipsins, var stefna pokans beintfrá höfninni og á húsið þar sem myndin er tekin. Málningarúði á hús og bíla í síðustu viku varð að stöðva framkvæmdir við málun skips í höfninni við Krókalón á Akranesi. Vindátt stóð þá beint á íbúðarhús og bíla við Krókatún og voru íbúar við götuna margir hverjir afar óhressir með að enn og aftur skuli það hafa gerst að verktakar sem vinna við skipamálun á þessum stað taki ekki tílfit til aðstæðna. „Það er óþolandi að nú þriðja árið í röð skuli það gerast að málningarúði berist hingað til okkar og setjist á hús og bíla,“ segir óánægður íbúi við götuna í samtali við Skessu- hom. Ibúi þessi segir að verktakinn hafi sent mannskap til að hreinsa hjá sér bílinn en það hafi verið bjarnargreiði. „Það var svo illa staðið að verki að bíllinn er allur rispaður eftir aðfarirnar. Það er með ólíkindum að jafhvel þó að vindpoki hafi verið settur upp við höfhina til að sýna ríkjandi vindátt þá koma bara nýir verktakar sem virðast ekkert tillit taka til aðstæðna og úða málningu jafhvel þó vindur sé þónokkuð mikill og standi beint á húsin hér við götuna.“ MM Heita vatnið í Grundarfirði: Akvörðun um áframhald borana tekin síðar á árinu Ákveðið verður um framhald borunar við Berserkseyri seinna á þessu ári. Búið er að bora um 540 metra niður en bormenn lentu í vandræðum þegar bora átti neðar. Hús í Grundarfirði era nú kynt með rafmagni og er áætlað að húshitun- arkostnaður lækki um allt að 45% þegar hægt verður að nýta heita vatnið. Björg Ágústsdóttir, bæjar- stjóri segir að það komi ekki til greina að hætta við framkvæmdir þó að hlé hafi verið gert á borunum: „Nú á næstu mánuðum verðtu- farið í rannsóknarvinnu á vatninu og dæluprófanir gerðar í holtmni sem búið er að bora. Þær prófanir sýna okkur vonandi meira um hegðtm vatnsins, til dæmis sjóblöndun og annað. Það er búið að finna nóg af vatni þama fyrir þarfir bæjarins, sem er býsna gott, og í raun gætum við hætt að bora núna.“ Sérfræðing- ar hafa þó bent á að heillavænlegra sé að bora lengra. „Við höfum því um þrennt að velja; að hætta að bora og láta þetta duga, halda áffam að bora þessa holu eða þá að byrja á nýrri. Áffamhaldið verður ákveðið effir ffekari rannsóknir, en við von- um að þetta seinki ekki fram- kvæmdum því það era gffurlegir hagsmunir í húfi.“ GG Oþarflega mildð „vegafé“ Sigurbjörgjónsdóttir, íbúi í einu af nýlegum íbúðarhúsum í Grand- arlandi í Skorradal hefur snúið sér til fjölmiðla með umkvörtun um lausagöngu búfjár, einkum sauðfjár í Skorradal. Segist hún vera búin að reyna allar aðrar leiðir án ár- angurs og enn sé sauðfé að skemma fýrir sér trjágróður við hús sitt. „Eg hef leitað til oddvit- ans, bóndans sem virðist eiga mest af því sauðfé sem um ræðir og Vegagerðarinnar en allir þessir að- ilar vísa hver á annan þó öllum finnist þó hið versta mál að kind- urnar nái ítrekað að eyðileggja gróður hér við húsvegginn hjá mér og valdi stórhættu í umferðinni um dalinn." Hún segir mikla slysa- hættu vera af lausagöngu sauðfjár á og við þjóðveginn enda sé umferð um Skorradal mikil á þessum tíma árs. „Það er virkilega leiðinlegt að almenningur þurfi að gjalda fyrir trassaskap bænda eða Vegagerðar- innar, hverjum sem um er að kenna, að fé sé á beit við þjóðveg- ina, jafnvel í stóram hópum svo vikum skiptir án þess að nokkuð sé að gert. Eg vona að ekki þurfi stór- slys til að eitthvað gerist í girðing- armálum hér í Skorradal," sagði Sigurbjörg. Aðspurður tók Davíð Pétursson, oddviti á Grand undir áhyggjur Sigurbjargar og sagði að á a.m.k. tveimur jörðum í dalnum væri girðingum við þjóðveginn ábóta- í Skorradal vant og því kæmist fé óhindrað á veginn. „Það er bæði eðlilegt og skylt að Vegagerðin girði fjárheld- ar girðingar til að fé komist ekki á vegina og valdi hættu. Ég mun hafa samband við umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Vesturlandi og fara fram á að bragarbót verði sem fyrst gerð á veggirðingum í daln- um þar sem þess er þörf. Vanda- málið felst m.a. í því að rafgirðing- ar sem þarna era halda ekki fé og hafa jafnvel stundum verið án straums og á það læra kindurnar fljótt. Umkvartanir þessa íbúa eru þess eðlis að ástæða er til að taka fullt tillit til þeirra," sagði Davíð í samtali við Skessuhorn. MM Stálu hálfu húsi DAI.IR: Það má með sanni segja að fátt sé þjófum heilagt. Síðast- liðinn sunnudag uppgötvaðist að búið var að stela úr sumarbústað sem er í Tunguskógi í Sælingsdal öllum 12 gluggum hússins og útidyrahurðinni einnig. Húsið er nýlegt en ekki þó fullfrágengið. Að sögn lögreglunnar í Búðardal, sem fer með rannsókn málsins, era engar vísbendingar um hverjir vora að verki, en rann- sókn stendur yfir. Hluti glugg- anna sem um ræðir vora í stærð- inni 1,15*1,25 m að stærð, með tvöföldu gleri, en 5 þeirra voru minni. Þeir hafa því verið þungir og í þeim talsverð fyrirferð. Lög- reglan biður þá sem veitt geta upplýsingar um þennan óvenju- Iega hússtuld að láta vita. -mm Tveir nýir bátar í flotann GRUNDARFJÖRÐUR: í hð- inni viku kom í fyrsta sldpti til heimahafnar í Grandarfirði bát- urinn Jakob Einar SH 101. Bát- urinn er í eigu Sigurjóns Fannars Jakobssonar. Fyrr í sumar bættist báturinn Sproti SH 51 einnig í flotann. Hann er í eigu Freys Jónssonar. Jakob Einar og Sproti era báðir gerðir út á kuð- ungsveiðar. Aflinn er verkaður hjá Sægarpi ehf í Grundarfirði. -mm Búist við fjölmemii á Irska daga AKRANES: Undirbúningur fyrir Irsku dagana á Akranesi stendur nú sem hæst, enda ein- ungis rúm vika til stefnu. Reikn- að er með því að enn fleiri gestir sæki Skagann heim en á síðasta ári en þá mættu um 10 þúsund manns á hátíðina. Að sögn Sig- rúnar O Kristjánsdóttur, starfe- manns markaðsskrifstofu Akra- neskaupstaðar era enn laus nokk- ur pláss í markaðstjaldi írskra daga. Þeir sem áhuga hafa era hvattir til þess að skrá síg sem fyrst á www.irskirdagar.is en það er ný heimasíða Irskra daga sem opnaði fyrir skömmu. „Heima- síðan hefur vakið mikla lukku og umferðin um hana er talsverð. Undanfarna daga hefur verið hlekkur á hana inni á mbl.is og hefur gestunum fjölgað mikið í kjölfarið,“ segir Sigrún Osk. -mm Vilja sameina slötkvilið SV-homið: Víðtækur vilji er fyr- ir því að sameina slökkvifiðin á Suðvesturlandi að því er Jón Við- ar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðís- ins segir í viðtali við Síökkvihðs- manninn, blað Landssambands Slökkviliðs-og sjúkraflutninga- manna sem er nýkomið út. Jón Viðar segir í viðtah við blaðið að hann sjái ekkert því til fyrirstöðu að slökkvihðin á höfuðborgar- svæðinu, þ.e. á Akranesi, Reykja- nesi, Keflavíkurflugvelh og í Ár- nessýslu sameinist. Ársfundur Landsambands Slökkvihðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti ályktun í apríl síðasthðnum þess eftús að hvatt yrði til sameining- ar slökkviliða og stækkunar á þjónustusvæðum þeirra. Vern- harð Guðnason, formaður Land- sambandsins segir að með sam- einingu slökkviliðanna á Suð- vesturlandi verði reksmrinn hag- kvæmari og þjónustan betri. -mm

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.