Skessuhorn - 29.06.2005, Qupperneq 7
^&usunu^i
MIÐVIKUDAGUR 29.JÚNÍ 2005
7
Hér er hluti undirbúningmefndar inni í Salthúsinu sem búið er að breyta í samkomu-
hús. Þetta eru þau Sigurður Ragnar Lúðvíksson, Laufey Helga Amadóttir, Magnús
H'óskuldsson, Sigurður Gíslason og Haraldur Yngvason. A myndina vantarþau Sigur-
laugu Konráðsdóttur, Vagn lngólfsson og Layfeyju Kristmundsdóttur.
Færeyskir dagar
í Ólafsvík
Hinir árlegu Færeysku dagar
verða haldnir í Olafsvík um næstu
helgi, dagana 1. til 3. júh'. Þetta er í
áttunda skiptið sem Olsarar tjalda
öllu til og ætla þetta árið að bjóða
upp á metnaðarfulla skemmtidag-
skrá. Aðstandendur Færeyskra daga
eru þetta árið átta einstaklingar sem
hafa unnið að undirbúningi hátíðar-
innar síðan í janúar á þessu ári.
„Þetta er búið að vera skemmtileg
vinna þó að það sé mikið að gera. Ef
maður er jákvæður þá gengur allt
upp,“ segir Laufey Helga Amadótt-
ir einn skipuleggjandanna. „VTið
erum búin að breyta Salthúsinu í
samkomuhús með sviði og ljósum
og öllu tilheyrandi. Svo höfum við
verið að gera ótal skilti sem koma til
með að merkja allan bæinn.“
I gegnum árin hefur íjöldinn allur
af fólid skemmt sér á Færeyskum
dögum og vonast þau til að þetta
skiptið verði engin undantekning.
„Þau eiga mikið hrós sldlið aðilamir
sem fóm af stað með Færeyska daga
upphaflega,“ segir Laufey, og segir
hópinn núna hafa tekið þetta að sér
þar sem þau vildu halda áffam þessu
starfi og fannst bagalegt ef dagamir
yrðu taldir, ef svo má segja. „Nú
koma á hátíðina um 100 manns ffá
Færeyjum auk innlendra gesta og
við erum tilbúin að taka á móti
miklum fjölda því gistirýmið verður
meira með tilkomu nýrra hóteh'-
búða sem verða tilbúnar fýrir þessa
helgi.“ Það nýmæh verður núna í
tengslum við Færeyska daga að
Olafsvík verður skipt í sjö hverfi og
munu þeim verða gefin færeysk
nöfii. Svo verður að sjálfsögðu í
boði ýmis afþreying og skemmtun
fyrir alla. „Trompið okkar er ball
með I svörtum fötum, en það verð-
ur auðvitað margt annað tun að
vera. Það verða héma um 600 fer-
metrar af sölubásum, söngvara-
keppni, samkvæmisdansar, bryggju-
ball, lyffmgamót og margt fleira.
Það verður sérstaklega mikið í boði
fýrir bömin.“ Nú þegar mesta und-
irbúningsvinnan er að baki fara átt-
menningamir að slaka á og hlakka
til skemmtunarinnar og segjast að
lokum viss um að sólin muni skína á
Olafsvík þessa helgi.
GG
Hótel Hamar opnar á morgun
Hótel Hamar. Gamli golfskálinn á Hamri í baksýn.
Iðnaðarmenn eru enn áfullu við lokafrágang hótelsins. Hér er Stefán Ólafsson, húsa-
smíðameistari á Litlu Brekku að mikka til eina afhurðum herbergisálmunnar.
Fyrstu gestir Hótels Hamars í
Borgarnesi era skráðir inn á morg-
un, fimmtudag en þá er gert ráð
fyrir að ffamkvæmdum verði lokið
við afgreiðslu, matsal, eldhús, fund-
arsal og stærri álmu hótelsins sem í
era 20 herbergi. Seinni herberg-
isálman verður síðan opnuð viku
síðar, eða 7. júlí.
„Reising hússins hófst í byrjun
mars og hefur verkið gengið í alla
staði mjög vel og höfum við verið
heppin með einvalalið iðnaðar-
manna sem nánast allir eru úr
Borgarnesi og nágrenni,“ sagði
Hjörtur Arnason, hóteleigandi í
samtali við Skessuhorn. Þó lítið fari
fýrir hótelinu ffá þjóðveginum séð
er það hið glæsilegasta þegar inn er
komið. Víst er að hér á landi er
ekkert hótel annað sem nánast er
byggt inn á teigi golfvallar en með
staðsemingunni einni saman hefur
hótelið þegar skapað sér talsverða
sérstöðu meðal hótela enda eru
pantanir áhugasamra golfspilara
þegar famar að berast.
MM