Skessuhorn - 29.06.2005, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 29. JUNI 2005
13
Það er skemmtilegur siður að koma saman við hljóðfierið og taka lagið. Standandi eru
á myndinni frá vinstri talið; Friðjón Þórðarson, mágur hans Astvaldur Magnússon og
sonur hans Þorgeir útvarpsmaður. Við hljóðfiærið er Guðbjörg Helga Þórðardóttir, kona
Astvaldar og systir Friðjóns.
Erla, Kristinn Jón 10 ára, Sigurrós 10 ára og Sólrún Sojfiía 3 ára.
Villtir refir skoðaðir
Farin var stórskemmtilega ferð
með Sæmundi sagnamanni og
landverði hjá þjóðgarðinum sl.
sunnudag. Lagt var af stað frá
Malarrifi í átt að greninu.
Hópurinn var alls 17 manns á
öllum aldri, yngst var 7 mánaða
stúlka sem var borin á baki föður
síns. Hópurinn hafði ekki gengið
lengi þegar fyrsta tófan sást. Var
það greinilega læða því hún var
grensmogin en skottið var þó loð-
ið. Hún var líklega í fæðuleit.
Hópurinn læddist nú upp í
hraunið, þögull sem gröfin og
kom sér fyrir bak við hól einn.
Mjög fljótlega birtust þrír yrð-
lingar sem hlupu um og léku sér.
Ekki var farið of nærri greninu
þar sem tófan fælist ef hún finnur
mannaþef of nærri því. Sæmund-
ur var með góðan kíki svo allir
gátu séð yrðlingana í návígi. Sæ-
mundur sagði frá lifnaðarháttum
tófunnar og fleiri fræðandi sögur.
Þetta var einstaklega vel heppnuð
og skemmtileg ferð. Takk fyrir
okkur.
Erla Kristinsdóttir.
Sannir vinir. „Svo marga hefðum við glatt með fallegum söng okkar, að engu líkara v<eri en við vœrum fœddir undir heillastjómu. “
ævinlega eftirsóttur af ýmsum kór-
um, m.a. sem einsöngvari.
Leikbræður í vitund fólks. Þar
kom svo, árið 1977, að útvarps-
maðurinn góðkunni, Svavar Gests,
sem þá starfrækti SG hljómplötur,
kom að máli við þá félaga og
spurði hvort í handraðanum kynnu
að leynast upptökur með söng
þeirra sem gefa mætti út. Þegar að
var gáð reyndust til í safni Ríkisút-
varpsins upptökur af sex lögum og
við frekari leit fúndust upptökur af
átta lögum til viðbótar. Þær komu
frá Helga Einarssyni frá Hróðnýj-
arstöðum í Laxárdal, sem alla tíð
hafði sýnt Leikbræðrum og söng
þeirra mikinn áhuga. Hann var
einn hinna fyrstu sem eignaðist
segulbandstæki -og þegar farið var
að kanna málin frekar reyndist
upptaka hans frá æfingu félaganna
fjögurra í Gúttó haustið 1952 fyr-
irtaksgóð og var sett á plötuna á-
samt hinni upptökunni sem fyrir
lá.
„Satt að segja taldi ég þessa út-
gáíú vera tilgangslausa, að fólk
væri búið að gleyma okkur og plat-
an myndi ekki seljast. Annað átti
þó eftir að koma á daginn," segir
Astvaldur. Platan var gefin út í
þúsund eintökum sem seldust
mjög fljótt, sem og annar viðlíka
stór skammtur sem í kjölfarið kom.
Síðar kom platan út á geisladiski.
Söngbræðralögin góðu
Haustið 1990 gáfu þeir söngfé-
lagarnir úr Leikbræðrum út bókina
Söngbræðralög, þar sem er að
finna nótur fjörutíu raddsettra laga
fyrir kvartettsöng. Flestar voru
raddsetningarnar gerðar af Carli
Billich, en hann lést haustið 1989,
og var útgáfan einmitt hugsuð til
að heiðra minningu hans.
„Billich sagði stundum að radd-
setningar þær sem hann gerði fyrir
kvartettinn ætti ekki að skoða sem
einkaeign okkar Leikbræðra, held-
ur skyldum við ljá þær öðrum sem
kæmu saman til að syngja, sjálfúm
sér og öðrum til ánægju. Einmitt
þess vegna fannst okkur þessi út-
gáfa svo mikilvæg," segir Friðjón,
sem á textana við sjö af þessum
íjörutíu lögum. Astvaldur segir að
það að hafa góðan textasmið hafi
verið stolt Leikbræðra og sömu-
leiðis að hafa í sínum röðum jafn-
góðan söngmann og tenórinn
Gunnar Einarsson. Undir hið síð-
astnefnda tekur sonur Astvaldar,
Þorgeir útvarpsmaður.
„Það heyrist svo vel hjá Leik-
bræðrum að þar syngja saman
menn sem eru sannir vinir í sömu
fjölskyldunni. Það skín alveg í
gegn. I mínum huga er það heldur
engin spurning að Gunnar Einars-
son er besti tenór sem sungið hef-
ur með íslenskum kvartett. Hann
hefur þennan blátæra og títumjóa
tón og er rennisléttur í efstu lín-
unni. Það er unun að hlusta á á-
reynslulausan söng hans,“ segir
Þorgeir um söng Gunnars sem var
Söngur íhaldsins
I aldarfjórðtmg söng Astvaldur
Magnússon með Karlakór Reykja-
víkur. Friðjón Þórðarson starfaði
með kórnum frá 1947 frarn til
1955, að hann fluttist vestur í Dali,
en nú seinni árin hafa þeir báðir
starfað með sönghópi eldri karla-
kórsfélaga sem æfir reglulega.
Torfi Magnússon lést 1990 og
Gunnar Einarsson 1997.
I þvarginu á Alþingi, þar sem
Friðjón átti sæti ffá 1956 til 1959 -
og síðar frá 1967 til 1991, kom
stundum fyrir að lagvissir þing-
menn tóku lagið og komu fram í
þingveislum við undirleik Gunnars
Thoroddsen, seinna forsætisráð-
herra. Fyrsta útgáfan af sönghópi í
þessa veru var kvartett skipaður
sjálfstæðismönnunum Friðjóni,
Jóni Arnasyni, Steinþóri Gestssyni
á Hæli og Ólafi G.
Einarssyni.“Þegar við komum
fram í fyrsta skipti var það án þess
að nokkur vissi. Eg frétti að þegar
við stigum á svið hefði Hannibal
sagt að greinilegt væri að nú væri
Ihaldið að syngja sitt síðasta!
Seinna komu svo ýmsar fleiri út-
gáfúr af kvartettsöng á Alþingi og
meðal söngmanna má nefna Inga
Tryggvason, Björn Fr. Björnsson
sýslumann á Hvolsvelli, Karvel
Pálmason og Helga Seljan.“
Sönggleðin lifir
Arfleifð Leikbræðra lifir, þótt
fimmtíu ár séu liðin frá því kvar-
tettinn söng síðast. Síðastliðna tvo
vetur hafa á mánudagskvöldum í
viku hverri komið saman á heimili
Astvaldar syrúr hans og nokkrir
fleiri úr nánasta frændgarði og tek-
ið lagið. Upphaflega átti þetta að-
eins að vera fjölskyldugaman, en í
vetur gerðist það svo að þessi tvö-
faldi kvartett kom fram nokkrum
sinnum og gerði góða lukku.
„Sönggleðin hefur alltaf lifað í
okkar fjölskyldu og á öllum
mannamótum þykir fólki sjálfsagt
að taka lagið,“ segir Þorgeir Ast-
valdsson, sem er í hópnum ásamt
föður sínum. Aðrir sem hann skipa
eru Pétur og Magnús Astvaldssyni
og Astvaldur Traustason, sonur
Dóru Astvaldsdóttur og frændur
þeirra tveir; Halldór Torfason og
bræðurnir Frosti og Sigurgeir Jó-
hannssynir.
SBS
„Það heyrist svo vel hjá Leikbrœðrum aðþar syngja saman menn sem eru sannir vinir í s'ömu fijölskyldunni. Það skín alveg í gegn, “
segir Þorgeir Astvaldsson.