Skessuhorn - 29.06.2005, Side 18
18
gBESSU|i©BKl
__ ____ _________MIÐVIKUDAGUR 29. JUNI 2005
Rafeindaþjónusta og handverk undir einu þaki
Þorsteinn B. Sveinssm og Kristín Pétursdóttir reka fyrirtœkin Mareind og Gallerý Línu ásamt hjónunum Halldóri K. Halldórssyni og
Dagbj'órtu Línu Kristjánsdóttur.
í nýlegri grænni byggingu ekki
langt ffá höfninni í Grundarfirði
eru til húsa þjónustufyrirtækið
Mareind og handverksgalleríið
Tína. Innandyra má sjá úrval leir-
og glermuna í öllum regnbogans
litum. Þegar lengra er gengið tek-
ur við skrifstofa Mareindar og þar
fyrir innan er herbergi þar sem allt
er morandi í tækjum, tólum og
tölvum. Það má því segja að það sé
himinn og haf á milli þessara
tveggja fyrirtækja sem deila hér
húsnæði en þrátt fyrir það er ó-
venju heimilislegur bragur á starf-
seminni þar sem tvenn hjón reka
þessi ólíku fyrirtæki.
Á meðan strákarnir sinna raf-
eindaþjónustu sjá stelpurnar um
skrifstofuna og reka galleríið. Þor-
steinn B. Sveinsson og kona hans
Kristín Pétursdóttir greina frá
starfseminni: „Mareind sérhæfir
sig í sölu og viðgerðum á siglinga,-
fjarskipta- og fiskileitarækjum. Svo
erum við sölu- og þjónustuaðilar
fyrir HP og Dell og erum með
ljósritunar- og prentaraþjónustu.
Við sinnum því bæði með sér-
hæfðri þjónustu í siglingatækjun-
um og svo almennari tölvuvið-
gerðum," segir Þorsteinn.
Vinur hans Halldór K. Hall-
dórsson stofnaði Mareind og hóf
starfsemina í Grundarfirði ásamt
konu sinni Dagbjörtu Línu Krist-
jánsdóttur árið 1993 en árið 1999
slógust þau Þorsteinn og Kristín í
hópinn. Þau fluttu þá frá Reykjavík
til Grundarfjarðar. „Það er gott að
búa hérna og staðsetningin vinnur
líka með okkur í fyrirtækinu því
við erum miðsvæðis ef við lítum til
þeirra svæða sem við erum að
þjóna.“ Það getur verið mikill
þeytingur á þeim Halldóri og
Kristín skýtur því inn að þetta sé
stundum harla líkt því að vera sjó-
mannskona. „Aðalþjónustusvæðið
er norðanvert Snæfellsnesið en við
erum að þjónusta skip frá Akureyri
til Njarðvíkur allt eftir því hvar
þau fara í slipp. Þá förum við á
staðinn og gerum það sem gera
þarf. Núna eru þrjú nýsmíðaverk-
efni í gangi í Reykjavík, Hafnar-
fírði og á Akranesi,“ segir Þor-
steinn sem er nýkominn frá Sauð-
árkróki. „Maður er ekki svo lengi á
milli núna, allar vegaframkvæmdir
telja og skipta auðvitað gríðarlegu
máli.“
Þeir Halldór hafa nóg fyrir
stafni á sínu heimasvæði og auk
þess sjá þeir um þjónustu á þessum
sérhæfða búnaði fyrir alla þá sem
flytja hann inn til landsins. „Það
hefur verið mjög ör breyting núna
í skipum síðustu 8 til 10 ár frá því
að vera sérsmíðuð siglingatæki í
það að vera sérhannaður hugbún-
aður í kerfi sem eru oftar en ekki
nettengd saman.“ Þegar fyrirtækið
hóf starfsemi var það í 40 fermetra
húsnæði en hefur nú breitt úr sér í
nýja húsnæðinu sem er 200 fer-
metrar. Aukið rými gefur fleiri
möguleika og þær Kristín og Dag-
björt nýttu sér það.
Gallerí Tína
„Þegar við fluttum vestur þá
tókum við Dagbjört okkur saman.
Þetta var búið að vera áhugamál
hjá okkur báðum lengi og vorum
við búnar að fara á ótal námskeið.
Við byrjuðum í trölladeiginu eins
og svo margir en fórum svo út í að
gera fjölbreytta gjafavöru og nytja-
hluti úr steinleir. Húsnæðið er gott
því við getum verið með vinnuað-
stöðu fyrir galleríið hérna líka.“
Stöllurnar eru nýbúnar að koma
sér upp glerbræðsluofni en eru
búnar að vera lengi með leirofh.
Kristín sýnir mér falleg handmál-
uð glös sem þær hafa verið að gera
tilraunir með. „Þetta er svona það
sem manni finnst mest spennandi
núna þessa dagana, en það er af því
að við erum nýbúnar að fá gler-
bræðsluofninn og það er skemmti-
legt að prófa sig áfram. En það er
sama hvað maður prófar, ég leita
yfirleitt aftur í gamla góða leir-
inn.“
Þær gera mikið að verðlauna-
gripum fyrir mót, til dæmis fyrir
Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur og
Sjósnæ í Olafsvík. „Oft eru móts-
haldarar að leita að gripum sem
eru þá aðeins óhefðbundnari og
öðruvísi að gefa fyrir góða frammi-
stöðu en þennan týpíska bikar.“
Annað sem fangar athygli blaða-
manns eru forláta leirstyttur. „-
Þetta eru sérhannaðar fermingar-
styttur. Við vitum ekki til þess að
neinn annar sé að gera þetta. Það
er semsagt hægt að kaupa svona
styttu og við setjum nafn ferming-
arbarnsins á hana. Við reynum að
vera öðruvísi og viljum ekki fylgja
straumnum í þessu. Það er því
miður oft þannig að margir eru að
gera sömu hlutina.“ Auk þess að
gera fallega muni úr gler og leir þá
sjá þær Kristín og Dagbjört um al-
menn skrifstofustörf og bókhald
fyrir Mareind. „Þetta er injiig
þægilegt en auðvitað vantar mann
frekar tíma en hitt. Handverkið er
meira áhugamál núna en takmark-
ið er að geta unnið við það alfar-
ið.“ GG
Frá Ólafsvtk.
Hér má sjá nokkra hressa starfsmenn Trésmiöju Guðmundar Friðrikssonar ehf. í grunni
einhýlishúss við Fellasneið sem nú eru að hefjast framkv<cmdir við. Húsið stendur viðjað-
ar skógrœktarsvœðisins.
Vantar verkamenn
Samkvæmt nýjustu tölum frá
Svæðisvinnumiðlun Vesturlands er
nánast ekkert atvinnuleysi á Snæ-
fellsnesi. I byggingariðnaðinn virð-
ist vanta starfsmenn og getur það
jafhvel verið að hamla byggingu
nýs húsnæðis á svæðinu. Við Öl-
kelduveg í Grundarfirði er verið að
byggja upp nýtt hverfi en að sögn
Bjargar Agústsdóttur bæjarstjóra
gengur það hægt. „Við vorum bara
með nokkrar lóðir til úthlutunar
fyrir einbýlishús og raðhús og það
er búið að sækja um þær flestar.
Efdrspurnin er meiri en ffamboð-
ið. Verktakamir eiga erfitt með að
kaupa upp lóðir og byggja á þeim
því þeir hafa einfaldlega nóg á sinni
könnu.“
Það er sama hvert htið er, alls-
staðar er verið að byggja. Trésmiðja
Guðmundar Friðrikssonar ehf.,
sem er stærsta verktakafyrirtækið á
svæðinu, hefur lokið við byggingu á
nýjum leikskólum í Stykkishólmi
og Ólafsvík og til stendur að byggja
við leikskólann í Grundarfirði.
Einnig er unnið við parhús á Hell-
issandi og í Ólafsvík. Auk umsvifa
minni og stærri verktaka er einnig
mikið um að einstaklingar ráðist í
nýbyggingar fái þeir úthlutað lóð-
um. Að sögn talsmanns Trésmiðju
Guðmundar Friðrikssonar ehf.
vantar alltaf merrn til starfa. Fyrir-
tækið sníði sér stakk efrir vexti í
þeim efnum og taki því ekki að sér
fleiri verkefni en þeir hafi bolmagn
Reykhóladagurinn næsta laugardag
Næstkomandi laugardag, 2. júlí
verður Reykhóladagurinn haldinn
hátíðlegur. A dagskránni kennir
margra grasa en helst ber að nefria
eftirfarandi:
Hlunnindasýningin -
selkjötssmakk
Klukkan 14 - 16 mun Steindór
Haraldsson matreiðslumeistari
kynna matseld hlunninda „eldað á
nútímalegan hátt“ og gefst fólki
tækifæri á að smakka m.a. selkjöt í
nýstárlegum búningi. Hver veit
nema hægt verði að fylgjast með
selverkun? Hlunnindasýningin er
opin frá kl. 10 - 17.
Hoppukastalar
Frítt fyrir yngri börn í
hoppukastala við skólann allan dag-
inn.
Litli markaðurinn
Kl. 13:30 heldur Kvenfélagið
Liljan kökubasar við Hlunninda-
sýninguna, þar sem í boði verða
kleinur, ástarpungar, tebollur,
muffins o.fl.
Gönguferð
með leiðsögn
Klukkan 16 við sundlaugina.
Genginn verður fuglaskoðtmarstíg-
urinn um Langavam, og um þorpið
þar sem fornminjar verða skoðaðar
s.s. Grettislaug hin forna, Biskupa-
brunnur og fleira.
Grillað í Hvanngarða-
brekku (Kvenfélags-
girðingunni)
Klukkan 18 verður sveitarstjór-
inn búinn að kynda kolin og þá
mæta íbúar hreppsins og gestir og
grilla saman og skemmta sér, fram á
rauða nótt. Muna að taka með sér:
allt sem til þarf fyrir góða grill-
veislu, s.s. eitthvað gott á grillið,
borðbúnað, borð og stóla, söngbók
og góða skapið.
Sundlaugin
Grettislaug verður opin frá kl. 10
- 22. Góð tjaldstæði eru á Reykhól-
um og við Bjarkalund og veitinga-
staður og gisting á Hótel Bjarka-
lundi.
('fréttatilkynning)
Vann ritgerðarsamkeppni
um Snorra Sturluson
Útgáfrifélagið Guðrún og norska
menntamálaráðuneytið efndu til
ritgerðasamkeppni um Snorra
Sturluson meðal framhaldsskóla-
nema í Noregi. Sigurvegarinn,
Hanne Hagtvedt Hjelmes, skrifaði
ímyndað viðtal við Snorra og fékk
ferð til Islands í verðlaun. Hún seg-
ir áhuga sinn á Snorra hafa marg-
faldast eftir að hún kom til Islands.
Hanne var nýbúin að læra um Is-
lendingasögumar í skólanum þegar
hún sá ritgerðasamkeppnina aug-
lýsta. Hún hafði þá fengið sams-
konar verkefni í skólanum og ákvað
að senda það inn í keppnina. Hún
segir það hafa komið sér verulega á
óvart þegar henni barst tölvupóstur
með boði í íslenska sendiráðið og
flugmiða fyrir tvo til íslands.
Bókaútgáfan Guðrún, sem í sam-
vinnu við norska menntamálaráðu-
neytið efndi til samkeppninnar,
hefrir gefið út Islendingasögumar á
norrænum mngumálum, þar á
meðal myndskreytta Snorraeddu
og Hávamálin. Útgáfan bauð
Hönnu til landsins en Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra afhenti verðlaunin í sendi-
ráðinu í Ösló.
Hanne hefur dvahð á Islandi síð-
an á fimmmdag og hefur ferðast
um Reykholt og fræðst um fomar
slóðir Snorra Smrlusonar. Hún
segir það hafa komið sér á óvart
hversu miltil völd Snorri í raun
hafði á Islandi.
MM