Skessuhorn - 29.06.2005, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 29. JUNI 2005
19
Fyrirlestur í Snorrastofu um sel og
afréttarmál þriðjudagskvöldið 5. júlí:
Sel í Romsdal í Noregi
- uppruni og þróun
H-Hús á Snæfellsnesi
Hafdís Berg Gísladóttir.
Á Snæfellsnesi eru rekinn þrjú
hlýleg gistíheimili undir nafhinu
H-Hús og er það Hafdís Berg
Gísladóttir á Rifi sem rekur fyrir-
tækið. Gistiheimilin sem um ræðir
eru staðsett á Arnarstapa, í Olafsvík
og í Stykkishólmi. Vesturvör á Arn-
arstapa er glæsilegt heilsárshús með
svefnplássi fyrir sex manns, stofu,
eldhúsi og baði. I Olafsvík er gisti-
heimili í gömlu, vinalegu báru-
járnshúsi við Ennisbraut 2 og eru í
því fjögur svefniherbergi, stofa,
eldhús og bað. Á áætlun er að bæta
við fleiri herbergjum næsta vor því
Hafdís hefur fest kaup á húsi sem
stendur við hlið gistihússins þar
sem áætlað er að opna m.a. kaffihús
nk. vor. Einnig á hún lítið vinalegt
bárujárnshús við lækinn í Olafsvík
en það hyggst hún endurnýja og
nýta í reksturinn einnig. I Stykkis-
hólmi er síðan Sæhamar. Frá því
húsi er stórbrotið útsýni yfir hafið
og eyjarnar. Þar er að finna svefh-
pláss fyrir sex manns ásamt stofu,
eldhúsi og baði. H-Hús rekur
einnig gististað í Reykjavík og sum-
arhús á Spáni.
Það sem af er sumri hefur verið
vel bókað á flesta staðinu. T.d. í júlí
er fullbókað í húsin f Stykkishólmi,
á Arnarstapa og á Spáni en enn eru
nokkur laus pláss í gistiaðstöðunni í
Ólafsvík.
„Reksturinn gengur vel hjá mér,
enda er ég að bjóða lítil og notaleg
hús til útleigu sem ég reyni að hafa
bæði hlý og notaleg og það er
mottó mitt að fólki líði vel í mínum
húsum og vilji koma aftur,“ sagði
Hafdís Berg í samtali við Skessu-
horn. Hún er ásamt um öðrum
ferðaþjónustaðilum á Vesturlandi
að imdirbúa markaðssókn sem felst
m.a. í þátttöku á VestNorden ferða-
kaupstefhuna sem verður í Kaup-
mannahöfn í september en þar
koma þessir aðilar fram undir ein-
um hatti og hyggjast markaðssetja
landshlutann með heitinu „All
senses".
MM
Snorrastofa verður með opinn
fyrirlestur um seljarannsóknir
þriðjudaginn 5. júlí kl. 20.30 í Bók-
hlöðusal stofhunarinnar. Kristoffer
Dahle, fornleifaffæðingur frá Há-
skólanum í Björgvin, mun fjalla um
rannsóknir sínar í Romsdal í Nor-
egi, en erindið, sem hann flytur á
ensku, er liður í röð Fyrirlestra í
héraði. Dahle er staddur á Islandi
vegna rannsókna á seljum í Borgar-
firði, en sú rannsókn er hluti Reyk-
holtsverkefhisins, en fornleifarann-
sóknir í Reykholti tilheyra einnig
því verkefhi.
Undanfarna áratugi hafa mis-
munandi skoðanir komið ffam um
fyrirkomulag og uppruna selja á
Norðurlöndum. Á sjötta og sjö-
unda áratugnum fullyrti Lars
Reinton að selin hefðu uppruna
sinn að rekja til yngri steinaldar og
tilheyrðu almennri indóevrópskri
arfleifð. Hins vegar hafa nýlegar
rannsóknir sýnt ffam á að fyrir-
komulag selja eigi rætur í búskap-
arháttum snemma á járnöld. Þá
hafa sumir leitt að því rökum að
þessi fornu sel hafi verið af annarri
gerð en þau sem þekkt eru ffá síð-
miðöldum og síðar.
Kristoffer Dahle byggir hluta rit-
gerðar sinnar til meistaraprófs við
Háskólann í Bergen á fornleifa-
fræðilegri rannsókn sem hann
ffamkvæmdi í Romsdal á norðvest-
urströnd Noregs. Eitt markmið-
anna með rannsókinni var að rekja
uppruna og þrótm á fyrirkomulagi
selja á svæðinu. Ekkert seljanna
voru þekkt fyrir að hafa forsöguleg-
an uppruna. Þess ber einnig að geta
að skipulag þessara afrétta hefur
byggst á ákveðnum reglum um
notkunar- og eignarrétt. Dahle
mun í fyrirlestri sínum kynna
bráðabirgðaniðurstöður þessara
rannsókna sinna.
Fyrirlestur Kjristoffers Dahle
verður sem fyrr segir fluttur þriðju-
dagskvöldið 5. júlí kl. 20.30. Að
loknum fyrirlestrinum verður boð-
ið upp á veitingar en síðan gefst
gestum tækifæri til að ræða efiii
fyrirlestrarins. Aðgangseyrir er 500
kr. og eru allir velkomnir!
(fréttatilkynning)
Sturlu Böðvarssvni sameönmráðherra er ekki alls vamað
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra gerir að umtalsefhi í síð-
asta tölublaði Skessuhorns þingsá-
lyktunartillögu um ferðamál sem
Alþingi samþykkti sl. vor. I þessa
tillögu er vitnað í Norðurstjörn-
unni, blað Vinstri- grænna sem
dreift var fyrir skömmu.
Það er alveg hárrétt hjá ráðherr-
anum að hann lagði þessa ágætu
tillögu ffam og hlaut hún góðar
undirtektir þingsins sem sam-
þykkti hana samljóða.
Og mér finnst alveg rétt hjá ráð-
herranum að birta þingsályktunar-
tillöguna alla í blaðinu því hún er
ágæt. Sem betur fer er fæstum alls
varnað og þingmenn Vinstri
grænna hældu ráðherra fyrir vinn-
una við þingsályktunartillöguna og
þær áherslur sem koma þar fram.
Eins og lesendur sjá gengur hún í
berhögg við umhverfisspjöll og
stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar.
Orð og athafnir
fari saman
I þingsályktunartillögunni er
lögð áhersla á nokkur grunnmark-
mið sem eru nýmæli í opinberri
stefhu um ferðmál sem ástæða er
til að halda á lofti:
„1. Náttúra Islands, sterk byggð,
menning þjóðarinnar og fag-
mennska verði ráðandi þættir í
þróun íslenskra ferðamála.
2. Tryggð verði samkeppnis-
hæfni ferðaþjónustunnar sem
stuðli að hámarks afrakstri í grein-
inni.
3. Álagi vegna ferðaþjónustu
verði jafnað á landið og íbúa þess
og verði innan þolmarka í sam-
ræmi við niðurstöður rannsókna.
4. Imynd Islands sem ferða-
mannastaðar verði byggð upp og
varin.
Ennfremur verði unnið að eft-
irfarandi markmiðum:
1. Ferðaþjónustunni verði sköp-
uð rekstrarskilyrði sambærileg við
rekstrarskilyrði í samkeppnislönd-
unum.
2. Island verði í forsystu í um-
hverfisvænni ferðaþjónustu.
3. Fylgt verði eftir uppbyggingu
þjóðgarða með því að stuðla að
ferðaþjónustu sem samþættir úti-
vist og náttúruvernd.
4. Ábyrgð ferðamanna og fyrir-
tækja í ferðaþjónustu verði aukin í
umhverfismálum. “
Skýr stefha Vinstri-
grænna í ferðamálum
Þjóðin þekkir stefnu Vinstri
grænna í uppbyggingi ferðaþjón-
ustu. Þingmenn Vinstri grænna
lögðu fram á þessu þingi sem áður
tillögur í atvinnu- og ferðamálum
þar sem lögð er áhersla á náttúru
Islands í vistvænni og sjálfbærri
ferðaþjónustu. Vitnað er til einnar
slíkrar tillögu í Norðurstjörnunni,
þar sem lagt er til alvöru stórátak í
náttúru- og menningartengdri
ferðaþjónustu í Norðvesturkjör-
dæmi. Itarlega var fjallað um þá
tillögu í Skessuhorninu snemma sl.
vetur, en hún fékk mjög góðar
undirtektir. Var hún einskonar
stefnumörkun Vinstri grænna í
ferðamálum fyrir kjördæmið.
Tillögur stjórnarandstæðinga ná
sjaldnast fram að ganga á þingi og
því fögnum við góðum málum sem
við getum stutt í tillögum ein-
stakra ráðherra.
Stefna ráðherra í ferðamálum og
stóriðjustefhan fara alls ekki saman
Hitt er svo öllum ljóst og kom
greinilega ffam í umræðum í þing-
inu að eitt meginmarkmiða tillög-
unnar um ferðamál er í hróplegu
ósamræmi við stefnu ríkisstjórnar-
innar í stóriðju- og virkjanamálum.
Er furðulegt ef ráðherra ferðamála
skellir skollaeyrum við þeirri
hörðu gangrýni sem nú kemur frá
flestum greinum atvinnulífsins og
þá ekki síst ferðaþjónustunni á
hina blindu stóriðjustefhu. Þar er
bent á að stóriðjustefnan keyrir
upp gengi krónunnar og skerðir
verulega samkeppnisstöðu ferða-
þjónustunnar svo hriktir í. Einnig
vara samtök ferðaþjónustunnar við
neikvæðum áhrifum stórvirkjanna
og umhverfisspjalla. Orð og at-
hafhir þurfa að fylgjast að hjá ráð-
herra ferðamála sem öðrum.
Hér fara eftir sýnishorn af á-
lyktunum og skrifum, sem sam-
gönguráðherra hlýtur að hafa
fylgst með og getur ekki lokað eyr-
um fyrir. En þær styðja með af-
dráttarlausum hætti áherslur
Vinstri grænna:
Stóriðjustefhan og
skert framlög til ferða-
mála taka sinn toll
2. júní 2005, Af fréttavef Sam-
taka ferðþjónustunnar:
„Fækkun erlendra ferðamanna
Samkvæmt tölum sem birtust í
gær á vef Ferðamálaráðs er 5,6%
fækkun erlendra ferðamanna 5
fyrstu mánuði ársins, en engar
upplýsingar höfðu verið birtar frá
áramótum. Samdráttur er á flest-
um helstu svæðum en mest er
fækkunin frá Svíþjóð og Noregi.
Það er þó 1-3% aukning frá
Bandaríkjunum, Danmörku og
Þýskalandi. Þetta eru mikil um-
skipti eftir tvö ár með mikilli aukn-
ingu. Það er ljóst að hátt gengi fs-
lensku krónunnar er að leika
ferðaþjónustuna grátt eins og aðr-
ar gjaldeyrisskapandi atvinnu-
greinar og rýrir samkeppnishæfhi.
Þar að auki var dregið mjög úr
ffamlagi ríkisins til markaðssetn-
ingar í ár og vöruðu SAF við því og
sögðu lífsnauðsynlegt að verja
greinina á meðan gengi krónunnar
væri svona hátt og hún yrði best
varin með því að auka markaðs-
sókn. Erfitt er að spá um sumarið
þar sem bókanir eru að koma seint
inn, en þessar tölur auka mönnum
ekki bjartsýni.“
„VARAÐ VIÐ VIRKJANA-
FRAMKVÆMDUM í SKAGA-
FIRÐI
Ályktun stjórnar Samtaka ferða-
þjónustunnar. Til fjölmiðla 6.
október 2004
Samtök ferðaþjónustunnar vara
alvarlega við þeirri tillögu sem
fram hefur komið og er til breyt-
ingar á þriðju tillögu að aðalskipu-
lagi Skagafjarðar 2004-2016. Til-
laga þessi var kynnt á fundi sveitar-
stjórnar Skagafjarðar þann 24.
september sl.
Samtökin benda á að efling
ferðaþjónustu hefur verið eitt
meginmarkmið stjórnvalda á und-
anförnum árum. Áframhaldandi
vöxtur er best tryggður með öfl-
ugri þjónustu og fjölbreyttri afþr-
eyingu. Góð afþreying er lykilat-
riði í að laða ferðamenn til lands-
ins. Jökulár Skagafjarðar eru afar
vinsæl afþreying bæði meðal er-
lendra og innlendra ferðamanna
enda einhverjar þær bestu og fjöl-
breyttustu til fljótasiglinga í Evr-
ópu.
Einnig hefur umtalsverð at-
vinnustarfsemi byggst upp í kring-
um fljótasiglingarnar sem skapað
hafa tekjur í byggðarlaginu. Það
er því undarlegt að fórna dýrmætu
svæði án þess að fram hafi komið
hvers kyns atvinnuuppbyggingu
virkjanirnar komi til með að hafa í
för með sér.
Með samþykkt þessarar breyt-
ingar er verið að stofna áframhald-
andi uppbyggingu í ferðaþjónustu
í voða auk þess sem ímynd Skaga-
fjarðar sem áfangastaðar ferða-
manna mun bíða álitshnekki.“
Jón Bjamason,
þ ingmaður Vinstri- granna
í Norðvesturkjördœmi.