Skessuhorn - 29.06.2005, Page 22
22
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005
SSffiSSUHÖEKI
TOYOTA T TOYOTA
^MQTAROOIN MÓTARÖOIN
TOYOTA
mótarödw
toyota
motaröoin
Vallamietíð slegið
á Garðavelli
Þriðja stigamót Toyota mótar-
aðarinnar „Ostamótið“ fór fram á
Garðavelli um helgina. Veðrið
gerði keppendum og mótshöldur-
um erfitt fyrir og þurfti að hætta
við keppni vegna votviðris á laug-
ardeginum. Upphaflega átti að
leika 54 holur en þar sem keppni
var felld niður eftir einn hring
fyrri daginn voru aðeins leiknar 36
holur. A sunnudeginum viðraði
mun betur og hélt keppni áfram.
Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR
sigraði í kvennaflokki og setti jafn-
framt vallarmet en hún lék á 70
höggum eða 2 höggum undir pari,
samtals á 151 höggi. Þetta er í
annað skiptið í röð sem hún sigrar
á stigamóti. I 2. sæti í kvennaflokki
var Nína Björk Geirsdóttir úr GK
og í 3. sæti var Helena Árnadóttir
úr GA. I karlaflokki sigraði Auð-
unn Einarsson úr GK á einu
höggi, en þetta er í fyrsta sinn sem
hann sigrar á stigamóti. Auðunn
lék síðari hringinn á 76 höggum
eða 4 höggum yfir pari en þann
fyrri á 72 höggum. Sigurpáll Geir
Sveinsson úr GKJ kom fast á hæla
honum í annað sætið og í 3. sæti
var Björgvin Sigurbergsson úr GK
á 7 höggum yfir pari. Þrír kepp-
endur úr Golfklúbbnum Leyni
tóku þátt í Ostamótinu, þau Stefán
Orri Olafsson, Kristvin Bjarnason
og Valdís Þóra Jónsdóttir. Stefán
Orri varð í 8. sæti á 156 höggum,
Kristvin í því 17. með 160 högg og
Valdís Þóra náði 9. sæti í kvenna-
flokki á 196 höggum. GG
Sjóstangveiðimót á Skaganum
Sjóstangveiðifélag Akraness
(Sjóskip) hélt dagana 17. og 18.
júní sl. mót í sjóstangveiði á Akra-
nesi og var mótið liður í Islands-
meistaramótinu. Alls tóku 11 bátar
þátt og 39 keppendur. Aflahæsti
heimamaður var Gunnar Leifur
Stefánsson og aflahæsta heima-
konan Hildur Eðvarðsdóttir. Afl-
inn á mótinu var alls um 8,5 tonn.
Aflahæsti maður mótsins var Þor-
steinn Jóhannesson frá Siglufirði
(Steini verkur) og aflahæsta kona
mótsins var Sigfríður Valdimars-
dóttir frá Arskógssandi. Aflahæsti
Kristbjöm Rafhssonfrá Grundarfirdi og Friðrik Magnússonfrá Akranesi varu saman í
sjóferð.
skipsstjórinn var Böðvar þriðja. Mótinu lauk með mikilli
Jóhannesson, Jóhann skemmtun í Miðgarði í Innri
Hreggsviðsson í öðru og Akraneshreppi.
Jón Sigurðsson í því MM/ Ljósm. Eiríkur Kristófersson.
Síldin AK-88 að koma að landi.
Slappað af á hafrarbakkanum eftir að alls 8,5 tmn affiski voru komin á land.
Kristján
Fjölmenni kom og fagnaði með
Kristjáni F Axelssyni bónda í
Bakkakoti þegar hann hélt upp á 60
árin í afmælishófi sl. föstudag í
Munaðarnesi. Auk hefðbundinna
landbúnaðarstarfa hefur Kristján
komið víða við í félags- og menn-
ingarmálum. Hann sat lengi í stjóm
Kaupfélags Borgfirðinga, er for-
maður Veiðifélags Þverár og fjall-
kóngur ár eftir ár auk þess að vera
virkur félagi í Bridsfélagi Borgar-
fjarðar svo eitthvað sé nefnt. Svo er
sagt að kindurnar þekki hann með
nafni og öfugt! Tengdasonur Krist-
jáns, Sindri Sigurgeirsson, var
veislustjóri og stýrði samkomunni
af alkunnri snilld og gamansemi.
Söngmenn miklir era í fjölskyldu-
og vinahópnum og fljótlega fylltist
salurinn af söng. Gerður var góður
í Bakkakoti sextugur
rómur að skemmtiatriði sem var dóttir Sindra, söng afa sínum óð við
um leið afmælisgjöf ffá barnabami undirleik ffá Badda á nikkunni.
Kristjáns, en það var þegar Lilja Ljósm: HSS
Fréttir frá Golfklúbbi Borgamess
Golfvöllurinn í Borgarnesi er
kominn í sæmilegt ástand eftir erf-
iðan vetur. I byrjun júní voru tekn-
ar í notkun fjórar nýjar brautir og
er nú leikið á 12 brauta velh.
Fyrsta mótið, Vormót GB, fór
ffam 14. og 16. maí og gilti betri
hringur. Leiknar voru 18 holur.
Omar Orn Ragnarsson vann í
höggleik án forgjafar með 85 högg,
en Ingimundur Ingimundarson
með forgjöf á 71 höggi.
Þrjú mót eru búin í SM mótaröð-
inni en það eru safhmót styrkt af
Sparisjóði Mýrasýslu. Mótin verða
átta talsins en fjögur þeirra telja.
Keppt er í höggleik án forgjafar og
pimktakeppni.
Fyrsta opna mótið á 12 holu vell-
inum var Xerox open sem fór fram
12. júní. Keppendur voru 65 tals-
ins. Sváfhir Hreiðarsson GR vann í
höggleik án forgjafar með 75 högg,
Hróðmar Halldórsson GL varð
annar með 76 högg og Orn Ævar
Hjartarson GS þriðji með 78 högg.
Hróðmar Halldórsson GL var
fyrstur með forgjöf með 73 högg,
annar Hlynur Þór Stefánsson GB
með 73 högg og þriðji Hilmar Stef-
ánsson GKJ með 75 högg. Lengsta
teighögg á 6. braut átti Örn Ævar
Hjartarson. Næst holu á 8. braut
eftir upphafshögg var Guðmundur
Ragnar Ólafsson GÖ 1,71 m og
næst holu á 10. braut eftir annað
högg var Trausti Eiríksson GB 0,81
m.
Hinn geðþekki kylfingur Krist-
vin Bjarnason ffá Akranesi kennir
hjá GB í sumar og virðist fara vel af
stað. MM
LANDSBANKA
DEILDIN
AKRANESVÖLLUR
IA - IBV
miðvikudaginn 29. júní kl. 19:15
ALLIR Á MÖLLIIMIM
rn "visT jj |§! rn|KBBANKi
HBGRANDI
v al COKE og COKE LIGHT á Akranesiy
0 Bflás
Kaupir þú bíl frá B&L
hjá Bílás - nýjan eða notaðan - |
styrkir þú Knattspyrnufélag ÍA I
V__________________
Lilja Sindradóttir syngur fyrir afa.
Fjölmenni var í hófinu.