Skessuhorn - 29.06.2005, Blaðsíða 23
»&usunuÉ.
MIÐVIKUDAGUR 29. JUNI 2005
23
Um 840 þátttakendur tóku þátt
í KB bankamótinu í knattspyrnu
sem fram fór í Borgarnesi um
liðna helgi. Þar áttust við knatt-
spyrnufólk framtíðarinnar úr 4. 5.
6. og 7. flokkum frá öllum lands-
hlutum. „Það rigndi,“ voru fyrstu
viðbrögð Aðalsteins Símonar-
sonar, formanns knattspyrnu-
deildar Skallagríms, þegar hann
var spurður um hvernig móts-
haldið hafi gengið. Síðan bætti
hann reyndar snarlega við: „Mót-
ið gekk alveg rosalega vel þrátt
fyrir talsverða úrkomu og erfitt
veður framan af mótinu, en fólk
var í góðu skapi og glaðlynt og
þá gengur allt vel. En þetta end-
aði eins og venjulega í blíðskap-
arveðri og allir fóru glaðir heim.“
Það var því mikið líf og fjör í
Borgarnesi alla helgina vegna
mótsins. Fjölmargir foreldrar
fylgdust með eins og vanalega
og fylltust tjaldstæði bæjarins og
tjaldstæði í nágrenninu einnig.
Skemmtidagskrá var í íþrótta-
miðstöðina á laugardagskvöld-
inu og mikið að gera í verslunum
og hjá þjónustuaðilum alla helg-
ina.
Tap gegn íslandsmeisturunum
Á myndinni er Valberg Sigurðurðsson, reiðkennari í Dölum á leið með nemend-
ur sína á hestamanamótið á Nesodda sem fram fór um sl. helgi. Ljósm: SJök.
Um 70 knattspyrnuiðkendur
tóku þátt mótinu úr Borgarnesi
og fylgdu þeim u.þ.b. tvöfaldur
sá fjöldi í formi foreldra, systkina
og annars venslafólks sem jafn-
framt voru starfsmenn mótsins.
Einnig voru nokkur dæmi um að
viljugir Borgnesingar tækju þátt í
vinnu við mótið þó þetta ágæta
fólk hefði í sjálfu sér engra
beinna hagsmuna að gæta ann-
arra en að verða bænum sínum
til sóma. Aðalsteinn vildi koma á
framfæri þakklæti til KB banka
og annarra styrktaraðila mótsins,
til sveitarfélagsins og þá sérstak-
lega Indriða Jósafatssonar í-
þrótta- og æskulýðsfulltrúa sem
stóð sig með prýði í allri aðstoð
við mótshaldara. Einnig vill Aðal-
steinn þakka fyrirtækjum og öðr-
um aðilum sem studdu við
Skallagrím á einn eða annan hátt
um liðna helgi.
MM
Ljósm: ES
I 7. umferð Landsbankadeild-
arinnar á fimmtudag mætti ÍA
efsta liði deildarinnar, FH á
Kaplakrikavelli í Hafnarfirði en
liðið hefur ekki unnið Skaga-
menn í heil fimmtán ár, eða þar til
nú. íslandsmeistararnir unnu
leikinn 2-0 og verður að játast að
það var nokkuð verðskuldaður
sigur. Að venju byrjuðu Skaga-
menn leikinn vel en náðu ekki að
nýta færin og þegar leið á fyrri
hálfleik tóku FH-ingar öll völd á
vellinum. Hjörtur Hjartarson fékk
gult spjald um miðbik hálfsleiks-
ins fyrir að brjóta á markmanni
FH. Skagamenn virtust vera óá-
nægðir með dómarann allan leik-
inn. Úr óverðskuldaðri auka-
spyrnu, að þeirra mati, skoraði
Tryggvi Guðmundsson fyrsta
mark leiksins á 44. mínútu. Dóm-
arinn bætti heilum fjórum mínút-
um við leiktímann við fyrri hálf-
leik og FH bætti við öðru marki
þegar 3 mínútur voru komnar
framyfir venjulegan leiktíma. Það
skoraði Allan Borgvardt eftir lag-
lega sendingu frá Jóni Þorgrími
Stefánssyni. Seinni hálfleikur
byrjaði einnig kröftuglega hjá
Skagamönnum en datt niður
þangað til bæði liðin fóru að
skapa sér færi þegar um 20 mín-
útur voru eftir. Pálmi Haraldsson
fékk færi sem hann var óheppin
að nýta ekki betur og minnka
muninn og Skagamenn áttu
sannkallað dauðafæri þegar
skammt var eftir en Hafnfirðingar
rétt náðu að hreinsa frá. Heima-
menn áttu einnig sín færi en
náðu ekki að skora.
Allt í allt var þessi sigur verð-
skuldaður enda FH liðið geysi-
sterkt. Það er athyglisvert hve
Skagamenn voru duglegir að
safna gulu spjöldunum en alls
var sjö leikmönnum liðsins veitt-
ar áminningar á meðan Hafnfirð-
ingarnir fengu enga. Næsti leikur
ÍA í Landsbankadeildinni er í
kvöld þegar ÍBV mætir á Skag-
ann og hefst leikurinn klukkan
19:15. ÍBV er í níunda sæti deild-
arinnar en ÍA í því áttunda.
GG
Gott KB bankamót
þrátt fyrir mikla vætu
Stig á útivelli
Víkingar í Ólafsvík fóru langt til
að sækja stig að þessu sinni, alla
leið til Húsavíkur. Þar var ákjós-
anlegt knattspyrnuveður og áttu
Víkingar í fullu tré við heimamenn.
í fyrri hálfleik fengu þeir Slavisa,
Hemmi, Helgi Reynir og Craig
góð færi en náðu ekki að setj'ann.
Markalaust í leikhléi en Völsungar
komu sterkir til leiks eftir teið og
settu mark í upphafi hálfleiksins
eftir misskilning hjá Bega og Ein-
ari markverði. En Víkingar létu
það ekki slá sig út af laginu og
skoruðu 7 mínútum síðar þegar
Slavisa náði að skora eftir
darraðadans í teignum. Hans
fyrsta mark fyrir Víking, þ.e. rétt-
um megin. Á 70. mínútu fá Völs-
ungar vítaspyrnu eftir að knöttur-
inn hrökk í hönd Ejubs en Einar
Hjörleifsson gerði sér lítið fyrir og
varði spyrnuna. I blálokin varði
hann svo einnig eftir að heima-
maður hafði komist einn í gegn-
um vörn Víkings. Bestur í liði Vík-
ings var Einar markmaður og
Tryggvi Hafsteinsson komst
einnig vel frá sínu í stöðu hægri
bakvarðar þar sem Ragnar Mar
var meiddur. Steven Mackay var
í leikbanni í þessum leik. Fyrir-
fram hefðu Víkingar líklega verið
sáttir við jafntefli en ef færin í fyrri
hálfleik hefðu nýst ætti sigur að
hafa unnist. En Völsungar fengu
góð færi í seinni hálfleik þannig
að jafntefli er líklega sanngjörn
úrslit. Því eru Víkingar með 8 stig
eftir sex leiki og í áttunda sæti en
þeir eiga tvo heimaleiki í þessari
viku sem gætu breytt stöðunni.
Hver veit!
FRF
Stórtap á heimavelli
Nú er þátttöku ÍA manna í Inter-
Toto keppninni lokið eftir 4-0 tap
gegn finnska liðinu FC-Turku á
sunnudag. Fyrri leik liðanna lauk
með markalausu jafntefli í Finn-
landi og því voru margir vongóðir
um gott gengi á heimavelli. Það
voru þó ekki margir sem sýndu
leiknum áhuga hér á Akranesi og
var frekar illa mannað á áhorf-
endapöllunum. Ólafur Þórðarson
þjálfari ÍA ákvað að hvíla marga af
reyndari leikmönnum liðsins enda
þurfa Skagamenn að nýta alla
sína krafta í Landsbankadeildinni
þar sem gengi liðsins hefur verið
slakt það sem af er sumri. í fyrri
hálfleik voru heimamenn betra
liðið þó að markatalan gefi það
ekki til kynna. Ellert Jón Björns-
son átti dauðafæri á 8. mínútu en
skotið fór framhjá. Eins og svo oft
áður vantaði herslumuninn upp á
að úr yrði mark. Skagamenn
höfðu átt nokkur ágæt færi þegar
Finnarnir komust yfir á 24. mínútu
með marki frá Henri Lehtonen.
Lítið var um færi á báða bóga í
síðari hálfleik en Turku komst í 2-
0 á 64. mínútu þegar Miikka llo
skoraði. Þegar á leið leikinn var
sem ÍA liðið hefði hreinlega gefist
upp fyrir gestunum og játað sig
sigrað. Á 75. mínútu skoraði Tom
Petrescu fyrra mark sitt og þriðja
mark Turku og bætti svo við öðru
á 81. mínútu. Þetta var óþarflega
stórt tap hjá Skagamönnum og
þó að teflt sé fram óreyndara liði
þarf það ekki að réttlæta svona
skell.
GG