Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2005, Qupperneq 4

Skessuhorn - 07.09.2005, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 ^ojjaunu.-; Vélaleiga Halldórs gerir bílastæði AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur samþykkt verksamning við Vélaleigu Halldórs Sigurðssonar ehf. um ffamkvæmdir við 1. á- fanga bflastæða á Jaðarsbökkum. Samningfjárhæðin er tæpar 7,9 milljónir króna. Framkvæmdir eru þegar hafnar og er áædað að verklok verði eigi síðar en 15. október. -hj Langt yfir kostnaðaráæthm BORGARNES: Tvö tilboð bár- ust í tengibyggingu milli Búðar- kletts og gamla Pakkhússins í Borgamesi. Það er Borgarbyggð sem ætlar að byggja glerbygg- ingu á milli húsanna sem síðan er meiningin að leigja Landnámi Is- lands ehf sem ætlar að opna Landnámssetur í Pakkhúsinu næsta vor. Kostnaðaráætlun fyrir bygginguna hljóðaði upp á 19 milljónir króna en lægra tilboðið var ríflega 50% hærra, eða 30,5 milljónir. Bygginganefhd á veg- um bæjarins tekur ákvörðun um ffamhaldið núna í vikunni. -ge Venus eykur hlut í HB Granda AKRANES: Fiskveiðihlutafélag- ið Venus keypti í síðustu viku 14 milljóna króna hlut í HB Granda, að því er kemur ffam í tilkynn- ingu til Kauphallar Islands. Aður átti félagið fyrir rúmlega 44 millj- óna króna hlut í félaginu og eykst því hluturinn úr 2,58% í 3,41%. Fiskveiðihlutafélagið Venus teng- ist Ama Vilhjálmssyni og Krist- járú Loffssyni stjómarmönnum í HB Granda. I tilkynningunni kemur ffam að hlutur fjárhags- lega tengdur þessum tveimur stjórnarmönnum sé um 760 milljónir króna eða um 44,5% af heildarhlutafé félagsins. -hj Bílskúrinn skilyrði ÓLAFSVÍK: Bæjarstjóri Snæ- fellsbæjar hefur gengið ffá samn- ingum við Trésmiðju Guðmund- ar Friðrikssonar í Grundarfirði um byggingu íbúða fyrir eldri borgara í Olafsvík. Um er að ræða tvö parhús sem standa til boða fyrir 60 ára og eldri en hver íbúð verður 117 m2 með bflskúr. „Það er þegar komin ein tunsókn án þess að búið sé að auglýsa," segir Kristinn Jónasson, bæjar- stjóri Snæfellsbæjar í samtah við Skessuhom. „Eg hef eiginlega frekar áhyggjur af því að um- sóknir verði of margar en of fáar. Þetta er hinsvegar bara fyrsta skrefið og við munum halda á- fram ef eftirspumin verður mik- il.“ Við hönnun húsanna er tekið mið af niðurstöðum úr könnun sem gerð var meðal eldri borgara í Ólafsvík. „Það sem kom skemmtilega á óvart þar var að skilyrði fyrir því að kallamir fengjust til að fara í íbúðir sem þessar var að það væri bflskúr og að sjálfsögðu em þau skilyrði uppfyllt,“ segir Kristinn. ~ge SigurSur GuSmundsson, framkvæmdasljm Sólfells og GuSsteinn Einarsson, sljómarformaSur BK takast í hendur eftir aS samningar höfSu veriS undirritaSir. Tæplega 2000 fermetra sérhæft kjötvinnsluhús Síðastliðinn fimmtudag var skrifað undir verksamning um byggingu nýrrar kjötiðnaðarstöðv- ar Borgarnes kjötvara ehf. við Vallarás 7-9 í Borgarnesi. Þar með hefur verið ákveðið að næsta vor flytji starfsemi fyrirtækisins úr Brákarey. Það er verktakafyrirtæk- ið Sólfell ehf. sem tekur nýbygg- inguna í alverktöku en um verður að ræða 1900 fermetra iðnaðarhús sérhæft fyrir kjötiðnað sem samtals kostar um 180 milljónir króna. Fyrsta skóflustungan að húsinu var tekin í vor og búið er að skipta um jarðveg í granni þess. Húsið á samkvæmt samningi að afhendast fullbúið með frysti- og kælibúnaði 1. maí 2006.1 máli Guðsteins Ein- arssonar, stjórnarformanns BK við undirritun verksamningsins kom fram að samið hafi verið við Byggðastofnun um lánsfjármögn- un hússins en Sparisjóður Mýra- sýslu fjármagnar það á byggingar- tíma. „Þetta hús mun leiða til gjör- breyttrar stöðu Borgarnes kjötvara en þarna verður hægt að ná fram mikilli hagkvæmni í framleiðslu og öll aðstaða fyrir starfsfólk verður eins og best verður á kosið,“ sagði Guðsteinn. MM Snæfellsbær fær mest framlag í tekjujöfiiun vegna lækkandi fasteignaskatta Snæfellsbær er það sveitarfélag á Vesturlandi sem fær mest í sinn hlut í framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna jöfnunar tekju- taps sveitarfélaga í kjölfar lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2005. Félagsmálaráðherra hefur fallist á tillögu um úthlutun ffam- laganna. Hlutur Snæfellsbæjar er rúmar 43,3 milljónir króna. Akra- neskaupstaður fær í sinn hlut tæpar 42,5 milljónir og Borgarbyggð fær rúmar 38,6 milljónir . I hlut Stykk- ishólmsbæjar koma tæpar 21,5 milljónir Dalabyggð fær í sinn hlut rúmar 14,3 milljónir, Borgarfjarð- arsveit 14,1 milljón og Grandar- fjarðarbær rúmar 12,8 milljónir króna. Önnur sveitarfélög á Vesturlandi fá mun minna í sinn hlut. Minnstur er hlumr Helgafellssveitar rúmar 821 þúsund króna. Heildarúthlut- un framlaga til sveitarfélaga á land- inu er tæpar 1.758 milljónir króna. Samtals koma í hlut sveitarfélaga á Vesturlandi tæpar 206 milljónir króna eða um 11,7% af heildar- tekjujöfnun. HJ Lítil hreyfing komin á framboðsmál á Akranesi Lítil hreyfing virðist komin á undirbúning sveitarstjómakosninga í vor á Akranesi ef marka má svör leiðtoga tveggja þeirra flokka er sæti eiga nú í bæjarstjórn. Við síð- ustu kosningar hlaut Sjálfstæðis- flokkurinn 4 fulltrúa kjörna, Akra- neslistinn 3 fulltrúa og listi Fram- sóknarflokksins hlaut 2 fulltrúa. Auk þessara lista bauð Vinstri hreyfingin grænt framboð fram en hlaut ekki fulltrúa kjörinn. Gunnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðismanna í sveitarstjórn, segir enga hreyfingu komna á fram- boðsmál flokksins. Misjafnt er með hvaða hætti sjálfstæðismenn hafa stillt upp á lista sinn fyrir kosning- ar. Síðast var notast við opið próf- kjör þar sem Gunnar sigraði með yfirburðum. Gunnar vildi engu spá með hvaða hætti nú yrði stillt upp. Aðspurður hvort hann gæfi kost á sér til áframhaldandi setu í bæjar- stjórn sagðist Gunnar ekki hafa tekið um það ákvörðun. Sveinn Kristinsson, oddviti Akra- neslistans, sem Samfylkingin stóð ein að í síðustu kosningum, segir enga ákvörðun hafa verið tekna um fyrirkomulag framboðs Samfylk- ingarinnar í kosningunum í vor. Hann sagði óformlegar umræður eflaust hafnar milli einstakra félags- manna en engin formleg umræða hefði farið ffarn innan flokksins. Aðspurður hvort hann teldi æski- lega að endurvekja samstarf við aðra vinstri menn í sveitarfélaginu sagðist hann ávallt opinn fyrir öll- um slíkum hugmyndum. Tíminn vrði síðan að leiða í ljós hvort slíkar hugmyndir nytu fylgis meðal al- mennra félagsmanna. Aðspurður um eigin ffamboð sagðist Sveinn enga ákvörðtm hafa tekið um slíkt. Guðmundur Páll Jónsson, odd- viti Framsóknarmanna segir engar formlegar umræður hafa átt sér stað um tilhögun uppstillingar flokksins fyrir komandi kosningar. Undanfarin kjörtímabil hafi verið kosin uppstillingarnefnd og hún síðan gert tillögu að framboðslista til fúlltrúaráðs. Guðmundur Páll segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann gefi kost á sér til áffam- haldandi setu í bæjarstjórn, en þá á- kvörðun muni hann taka á næstu vikum. HSS Óhapp á dag BORGARFJÖRÐUR: Nokkur tunferðaróhöpp urðu í umdæmi Borgameslögreglu síðustu daga. Þriggja bfla árekstur varð á Vest- urlandsvegi við Brúartorg á fimmtudag með þeim hætti að bifreið á norðurleið var ekið í veg fyrir umferð á móti og kastaðist síðan á þá þriðju sem var kyrr- stæð. Engin meiddist en tölu- verðar skemmdir á ökutækjum. A föstudag valt vörubiffeið á Melasveitarvegi. Biffeiðin var að koma úr malamámu og var því fúllhlaðin. Talið er að vegkantur hafi gefið sig. A laugardag valt jeppi á Jarð- langsstaðavegi upp með Langá á Mýrum. Femt var í biffeiðinni og sakaði engan en jeppinn var ó- ökufær. Biffeið hafnaði utanvegar við bæinn Reyki í Lundarreykjadal á sunnudag. I bifreiðinni vora er- lendir ferðamenn og handleggs- bromaði einn þeirra við höggið. Loks lenti biffeið út af veginum í Norðurárdal á mánudag þegar ökumaður sofnaði undir stýri. Bifreiðin skemmdist h'tið og gat ökumaður því haldið áffam ferð sinni eftir að hann hafði fengið aðstoð við að koma farartækinu á veginn á ný. -ge Helmingi meiri afli GRUNDARFJÖRÐUR: Land- aður afli í Grundarfjarðarhöfn í ágústmánuði var 1.715 tonn, samanborið við 1.143 tonn í á- gúst í fyrra. Fyrstu mánuði ársins hefúr verið landað 15.780 tonn- um af fiski í Grundarfjarðarhöfn en á sama tíma í fyrra vom 10.238 tonn komin þar á land. Aflinn í ár er því ríflega helmingi meiri en í fyrra, eða 54%. Stærsta löndunarár síðan skráningar hófust í Grundarfjarðarhöín var árið 2001 en þá var landað 16.184 tonnum. Aflinn fyrstu átta mánuðina í ár er 97,5% af því sem var allt árið 2001 og því er nokkuð ljóst að nýtt met verð- ur slegið í ár. Se Skortur á bíla- stæðum AKRANES: Vegfarendur um Vogabraut á Akranesi hafa tek- ið eftir gríðarlegum skorti á bílastæðum við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Ástæðan er sú að þar sem áður vom bílastæði norðan við skólann eru nú miklar framkvæmdir vegna stækkunar á húsnæði hans. Af- leiðingar þessa skorts hefur m.a. komið út þannig að ný bílastæði hafa sprottið upp án nokkurrar skipulagningar og nemendur hafa meira að segja lagt það á sig að mæta tíman- lega í skólann til þess eins að ná bílastæðum. Nemendur þurfa þó ekki að kvíða því vonast er til að framkvæmdum verði að mestu lokið um áramót þegar síðustu nýju stofurnar verða teknar í gagnið. -þgb WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqamesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla mi&vikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þri&judögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tfmanlega. Skitafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is Prentun: ísafoldarprentsmiðja

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.