Skessuhorn - 07.09.2005, Page 7
o&U9UflÚk!
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
7
Liggja verðmæti í bílhræjum
um víðan völl?
Svo virðist sem
töluverð verðmæti
liggi um víðan völl í
bílhræjum sem ekki
hefur verið skilað inn
til söfnunarstöðva.
Með slíkum skilum
fær eigandi greiddar
15 þúsund krónur,
enda hafi verið greitt
af bifreiðinni að
minnsta kosti einu
sinni úrvinnslugjald.
Forsaga málsins er sú
að í upphafi ársins
breyttust lög um úr-
vinnslugjald bifreiða
á þann veg að nú skal
greiða 700 krónur ár-
lega í slíkt gjald. Það
skal greiða í full 15 ár
en bifreiðar eldri en 2 5 ára eru und-
anþegnar gjaldinu.
Bifreiðaeigandi sem afskráir öku-
tæki sitt, sem skráð er 1980 og síð-
ar, og skilar því inn til móttöku-
stöðvar til endurnýtingar eða end-
anlegrar förgunar, fær greiddar 15
þúsund krónur í skilagjald. Það
skilyrði er þó sett að úrvinnslugjald
þarf að hafa verið greitt í það
minnsta einu sinni af ökutækinu.
Skila skal bifreiðum til sérstakra
söfhunarstöðva og þar skal ff amvísa
skráningarvottorði þeirra eða skoð-
unarvottorði. Með sérstakt skila-
vottorð í höndtmum fer biffeiða-
eigandinn til næstu skoðunarstöðv-
ar eða Umferðarstofu og óskar eft-
ir afskráningu bifreiðar til úr-
vinnslu. Að þessu loknu getur
greiðsla skilagjalds farið ffam. Sá
misskilningur virðist algengur að
nægilegt sé að afskrá bifreiðar til
þess að fá greitt skilagjaldið. Stað-
reyndin er hinsvegar sú að þrátt
fyrir afskráningu bifreiðar er áffam
innheimt úrvinnslugjald af henni
allt þar til gjaldið hefur verið greitt
í 15 ár eins og áður sagði eða farið
með hana til söfnunarstöðvar.
Bílhræ eru flestum þyrnir í aug-
um. Því er ekki úr vegi að eigendur
þeirra hugi nú að þeim því þar geta
leynst óvænt verðmæti. Lista yfir
söfnunarstöðvar má sjá á vef Ur-
vinnslusjóðs. Þeir staðir á Vestur-
landi þar sem hægt er að skila öku-
OLÍUVERZLUN
ÍSLANDS HF
Til leigu á Blönduósi
Til leigu er veitingahúsnæði
við þjóðveg 1. Laust strax.
Nánari upplýsingargefur
Jón Guðmundur Ottósson,
forstöðumaður Olís og ÓB-stöðva,
jgo@olis.is, sími 515 1178.
Sundagarðar 2,104 Reykjavík, sími 515 1000, fax 515 1010, olis@olis.is
tækjum til söfnunarstöðva sveitafé-
laga eða til Furu, Hringrásar og
Vöku eru á Akranesi, Borgarnesi,
Grundarfirði og í Snæfellsbæ.
Einnig er hægt að ganga ffá af-
skráningu ökutækis og fá greitt
skilagjald hjá skoðunarstöðvum
Aðalskoðunar og Frumherja eða
hjá Umferðarstofu með því að skila
bifreiðum til söfmmarstaða í Borg-
arfjarðarsveit, Stykkishólmi, Búð-
ardal og Reykhólum.
HS
Gestir á skólasetningunni.
Heilsárskóli settur í
fyrsta sinn á Bifröst
Viðskiptaháskólinn á Bifföst var
settur á sunnudag og hófst þar með
88. starfsár skólans. Háskólaárið
sem nú er að hefjast er það fyrsta í
nýju námskerfi skólans sem gefur
nemendum færi á að ljúka sínu
námi allt að ári fyrr en til þessa hef-
ur verið hægt með því að stunda
nám allt árið. Af því tilefni var nýtt
skólaár hringt inn með gamalli
skólabjöllu sem notuð var á tímum
Samvinnuskólans þegar hann var í
Reykjavík.
I semingarræðu Runólfs Agústs-
sonar rektors Viðskiptaháskólans
kom fram að nemendur hafi aldrei
verið fleiri. Skráðir nemendur þetta
háskólaárið eru um 680, bæði í
stað- og íjarnámi, í grunn og meist-
aranámi. Nýnemar í staðnámi em
171 en alls bárust skólanum um
400 umsóknir fyrir þetta háskólaár.
I setningarræðu sinni varaði
rektor við of mikill Evrópuvæðingu
íslenskra háskóla og sagði miðstýr-
ingu, stöðlun og ríkisreksmr ein-
kenna evrópska háskóla þvert á það
sem þekktist í löndum eins og
Kanada, Bandaríkjunum og Astral-
íu þar sem háskólakerfið einkennd-
ist af samkeppni, krafti og fjöl-
breytni. Runólfur benti á að enginn
Evrópskur háskóli utan Bretlands,
væri á meðal besm háskóla í heimi
og vararði sérstaklega við lögfest-
ingu hins svokallaða Bolognaferlis
sem hann sagði að myndi skerða
fullveldi þjóðarinnar yfir háskólum
sínum.
GE
Auglýsing
Akraneskaupstaður llTTl deiliskipulag á Akranesi
Breyting á deiliskipulagi í ldasa 5 og 6 á Akranesi.
Á fundi sveitastjórnar Akraness sem haldinn var þann 7. júlí 2005, var samþykkt
deiliskipulagsbreyting vegna Innnesvegar 1. í klasa 5 og 6 á Akranesi.
Breytingin felst m.a. í að byggingarreitur á lóð nr. 1 við Innnesveg, er stækkaður til
norðurs sem nemur 5 metrum. Hámarksstærð byggingar verður 1058 m2 og nýtingarhlutfall
0,26. Bílastæði verða 66 talsins.
Framangreind deiliskipulagsbreyting var grenndarkynnt skv. 2. mgr., 26. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997 og hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög
mæla fyrir um.
Deiliskipulagsbreytingin tekur þegar gildi.
Akranesi 30. dgúst 2005
ÞorvaldurVfestmann, sviðsstjóri tœkni- og umhverfissviðs
LEIKSKOLAKENNARA
VANTAR TIL STARFA
Andabœr á Hvanneyri
Leikskólakennara vantar í tvö 100% störf við
leikskólann Andabæ á Hvanneyri frá og með 1.
október nk. Andabær er tveggja deilda leikskóli
þar sem vistuð eru börn frá 18 mánaöa aldri. Nú
er verið að taka þriðju deildina í notkun.
Við erum að leita að fólki með
leikskólakennaramenntun eða aðra sambærilega
l menntun. Fáist ekki menntaðir starfsmenn til
i starfa verða ráðnir ófaglærðir starfsmenn.
Upplýsingar veitir Áslaug Ella Císladóttir,
leikskólastjóri í síma 437 0120.
ÚTB0Ð
- Jarðvinna á Hvanneyri
Trésmiðjan Akur ehf. á Akranesi byggir 16 íbúðir á
næstu mánuðum á Hvanneyri.
Byrjaðverður á tveimur parhúsum viðSóltún 14a-14b og 16a-16b. Er
óskaðeftir tilboðum í gröft, fyllingar og lóðafrágang viðþau.
Hægt er aðsenda væntanlegum bjóðendum gögn frá og meðdeginum
í dag, en einnig er hægt aðfá útboðsgögn send á tölvutæku formi.
„ Tilboðverða opnuð föstudaginn 16. september 2005 kl. 14.00 á
l skrifstofu Trésmiðjunnar Akurs ehf.r að Smiðjuvöllum 9, Akranesi.
Trésmiðjan AKUR ehf.
Smiðjuvöllum 9 • 300 Akranes • Sími: 430 6600 • Fax: 430 6601
Netfang: akur@akur.is • Veffang: www.akur.is