Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2005, Qupperneq 14

Skessuhorn - 07.09.2005, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 ^kCMUIIUW Bensíndropinn á misjöfitiu yerði á Vesturlandi Verð á eldsneyti hefur farið hratt hækkandi undanfarnar vikur. I kjöl- far fellibylsins á Mexíkóflóa hefur verðið komist í hæstu hæðir. Ekki er sama hvar bíleigendur stoppa til þess að taka eldsneyti og þar getur munað nokkrum krónum á hvern lítra bensíns. Skessuhorn gerði lauslega könnun á bensínverði á Vesturlandi föstudaginn 2. septem- ber. Ef marka má heimasíður olíu- félaganna er lítrinn af 95 oktana bensíni ódýrasmr hjá OB á Akra- nesi og í Borgarnesi. Á þessum stöðvum kostaði lítrinn 116.30 krónur. A bensínstöðvum Skeljungs og Esso á Akranesi kostaði lítrinn 117,00 krónur. A stöðvum þessara félaga í Borgamesi kostaði lítrinn hinsvegar 117,70 krónur. Hjá Skeljungi í Olafsvík kostar lítrinn 118,70 krónur og hjá Esso í Gmnd- arfirði og hjá Skeljungi í Húsafelli kostaði hann 120,70 krónur. Bensínverð á landinu virðist hins vegar lægst á stöðvum Orkunnar. Þar kostaði lítrinn af 95 oktana bens- íni 116,20 krónur. Sama verð er hjá stöðvum þess fé- lags um land allt, meðal annars í Súðavík. Hjá Atl- antsolíu var verðið hinsvegar 116,30 krónur á hvern lítra. I öllum til- fellum er miðað við sjálfsaf- greiðsluverð. Auk þess má fá afslátt af uppgefnu stað- greiðsluverði með notkun viðskipta- korta félaganna og inneignarkorta. Nemur sá afslátmr allt að tveimur krónum á hvern lítra. HS Eldri VLFA félagar á Snæfellsnes Hinn árlega ferð eldri félags- manna VLFA var farin sl. miðviku- dag og tókst vel. Um 120 félagar þáðu boð félagsins og hafa ekki fleiri tekið þátt í þessari ferð áður. Að þessu sinni var farið um Snæ- fellsnes undir leiðsögn Björns Fin- sen. Fyrst lá leiðin í Borgarnes þar sem Skallagrímsgarðurinn var skoðaður. Þvínæst var Staðarkirkja skoðuð undir leiðsögn Sr. Guðjóns Skarphéðinssonar og þaðan farið að Hótel Búðum þar sem snæddur var hádegisverður. Næsta stóra stopp var í Bjarnarhöfn þar sem Hildibrandur bóndi hélt fyrirlest- ur um kirkjuna á Bjarnarhöfn, bauð hákarl og harðfisk, kaffi, kleintu- og annað góðmeti áður en haldið var heim á leið á ný. MM/ Ljósm: Afvlfa.is Fjölhæfur Borgnesingur í amerískri bíómynd Victor Pémr Rodriguez keyrir ekki bara póstbílinn í Borgarnesi heldur stendur hann einnig vaktina við grillið hjá Ismynd við Digranes- veg í Borgarnesi og var þar við störf þegar fréttaritara bar að garði. Þessi ungi Borgnesingur læmr þó ekki þar við sitja heldur hefur hann látið ljós sitt skína á sviði kvikmyndalist- ar. Að sögn hefur Victor komið fram í nokkrum auglýsingum auk þess sem hann leikur í kvikmynd með hinum þekkta leikara Jason Biggs (American Pie myndirnar). Kvikmyndin Guy X var tekin upp að mesm leyti hér á landi í fyrra og mun koma til sýninga í kvikmynda- húsum nú í september. Guy X er gamanmynd og fjallar um hermann í ameríska hernum, leikinn af Biggs, sem sendur er til Grænlands en þar lendir hann í ýmsum ógöng- um. Victor trúði fréttaritara Skessuhorns fyrir því að hann kæmi ffam kviknakinn í myndinni, hlaup- andi í snjó. Það verður gaman að sjá hvort Victor sé eins góður leikari og hann er póstbílstjóri og grill- kokkur. HSS 18 ára í fullu Ijöri Ölafur Sigurgeirsson bóndi á Þaravöllum í Innri Akraneshreppi er hér að hleypa kúnum sínum úr haganum til mjalta. Hyrnda kýrin á meðfylgjandi mynd er merkileg fyrir þær sakir að vera með elstu kúm, a.m.k. á Vesturlandi, en hún er 18 ára og enn í fullu fjöri og ber aldurinn vel. MM/ Ljósm: Eiríkur Kristófersson Frá vinstri: Siguvjón á GlitstöSum, Kata, Þorkell í Fetjukoti og Brynjólfur í HlóSutúni. Kata í Munaðamesi sjötug Heiðurskonan Katrín Magnús- fólki í sunnudagskaffi í húsnæði dóttir, bóndi í Munaðamesi varð BSRB í Munaðamesi þar sem með- sjömg sl. mánudag. Af því tilefni fylgjandi myndir vom teknar. bauð hún vinum sínum og frænd- Ljósm: ES Kata og Halli ásamt ungum frœnda. Salemistorg! SalemisaSstaSa gengur stundum undir nafninu náShús, enda viljaflestir vera íþokka- legu nœSi þegarþeir sinna athöfium sem þykja viSeigandi á slíkum stöSum. ÞaS er hins- vegar htegt aSfinna staði sem eru meira „prívat“ heldur en hringtorgiS við vegamót Smefellsnesvegar og Vesturlandsvegar við Borgarnes. Þar hafði samt sem áður einhverj- um dottið í hug að kama upp vísi að snyrtingu meðglænýju „Gustavsherg. “ Samkvcemt upplýsingum frá lögreglunni í Borgamesi var saleminu komiðjyrir á þess- um prýðilega stað aðfaranótt sunnudagsins. Lögregluþjónar gátu einnig staðfest aS húið var að vígja postulínið. Hinsvegar hajði það verið fiarlœgt á mámideginum og hugsan- lega komiðjýrir á rólegri stað. GE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.