Skessuhorn - 07.09.2005, Side 19
SmKSSHWQiBRl
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
19
Vinnaeða
fangelsi?
í FANGELSI fær maður 3 frí-
ar máltíðir á dag.
f VINNUNNI fær maður pásu
fyrir 1 máltíð-sem maður þarf
að borga sjálfur.
í FANGELSI fær maður að
fara fyrr út fyrir góða hegðun.
í VINNUNNI fær maður
meiri VINNU fyrir góða hegð-
un.
í FANGELSI er maður sem
opnar og lokar öllum hurðum
fyrir mann.
I VINNUNNI þarftu að gera
það sjálfúr.
í FANGELSI má maður horfa
á sjónvarpið og leika sér í tölv-
unni.
í VINNUNNI þú verður rek-
inn fyrir það.
í FANGELSI fær maður sitt
eigið klósett.
í VINNUNNI þarf maður að
deila með öðrum.
í FANGELSI mega vinir og
vandamenn koma í heimsókn.
í VENNUNNI.... ekki sjéns.
í FANGELSI borga skatt-
greiðendur allt fyrir þig.
I VINNUNNI Þarftu í fyrsta
lagi að borga til að koma þér í
vinnuna, og svo er tekið 40% af
þér í skatt....til þess að borga
fyrir fangana.
Fangaklefi er að meðali 2-4 fer-
metrum stærri en meðal skrif-
stofa á íslandi!!
Nú er bara að velja!
Aðlokum
Eiginmaðurinn hafði legið
meira og minna í dái í nokkra
mánuði fársjúkur en af og til
komist til rænu. Eiginkonan var
við sjúkrabeð mannsins upp á
hvern einasta dag. Dag einn
þegar eiginmaðurinn komst til
meðvitundar um stund gaf hann
konu sinni bendingu um að
koma nær sér. Og þegar hún
hafði sest hjá honum hvíslaði
hann að henni tárvotum aug-
um: Veism hvað?
Nei, hvað er það væni minn?
Þú hefur gengið gegnum öll
erfiðleikatímabil lífs míns með
mér...
Þegar ég var rekinn varstu til
staðar að styðja mig...
Þegar atvinnureksturinn mis-
heppnaðist varstu stoð mín og
stytta...
Þegar var skotið á mig varstu
við hliðina á mér ....
Þegar við töpuðum húsinu
varstu á þínum stað og þegar
heilsan fór að bila varstu enn
við hlið mér....
Veistu hvað?
„Nei hvað, kæri minn,“ sagði
hún brosandi um leið og hún
fann hjarta sitt fyllast hlýju.
,,Eg held þú færir mér
ógæfú...“
Tuttugu skip sldptu
á milli sín byggða-
kvóta á Snæfellsnesi
Á liðnu fiskveiðiári skiptu 20 skip
og bátar á milli sín 443 tonna
byggðakvóta er kom í hlut sveitar-
félaga á Snæfellsnesi. Þetta kemur
fram í frétt ffá Fiskistofu. Byggða-
kvóta er úthlutað til þeirra sveitar-
félaga er lent hafa í vanda vegna
minnkandi aflaheimilda af ýmsum
orsökum. Sveitarstjórnir geta sett
reglur um úthlutun kvótans en geri
þau það ekki deilist hann á milli
allra skipa og báta í sveitarfélaginu
í hlutfalli við kvótaúthluttm hvers
og eins. Hámark slíkrar úthlutunar
eru 15 þorskígildistonn. Setji sveit-
arstjórn reglur gemr úthlutun orð-
ið meiri.
Mestur byggðakvóti kom í hlut
Stykkishólms eða 205
þorskígildistonn, í hlut Snæfells-
bæjar komu 100 tonn og í hlut
Grundarfjarðar komu 138 tonn.
Af einstökum skipum kom mest-
ur kvóti í hlut Gullhólma SH eða
tæp 96 þorskígildistonn. I hlut
Þórsness II SH komu tæp 79 tonn,
Farsæll SH fékk úthlutað tæpum 67
tonnum og Haukaberg fékk úthlut-
að rúmum 63 tonnum. Onnur skip
fengu mun minni úthlutun.
Á þvf fiskveiðiári sem nú er ný-
hafið koma 518 þorskígildistonn í
hlut sveitarfélaga á Snæfellsnesi en
sveitarstjórnir hafa ekki tekið af-
stöðu til þess með hvaða hætti
kvótanum verður úthlutað.
HJ
www.skessuhorn.is
r Fylgstu með,
I það borgar sig!
Skessuhorn ehf.
Lúsin
komin á
kreik
Nú er komið haust og lúsar hef-
ur orðið vart í Borgarfjarðarhér-
aði. Viljum við undirrituð beina
því til foreldra og forráðamanna
allra barna í héraðinu að leita lúsa
og meðhöndla hana rétt og effir
viðurkenndum aðferðum. Allar
upplýsingar um meðhöndlun og
hvernig lús er fúndin er hægt að fá
á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi.
Viðeigandi hárþvottaefni fæst í
næsta apóteki. Tökum til hendinni
og útrýmum lúsinni fljótt og vel.
Skólahjúkrunarfræðingar, skóla-
stjórar og leiksskólastjórar á svæði
heilsugæslustöðvarinnar í Borgar-
nesi.
Þensla á
vinnu-
markaði
I gær voru 56 manns skráðir at-
vinnulausir hjá Svæðisvinnumiðl-
un Vesturlands, þar af 45 konur. Á
sama tíma voru skráð 68 laus
stöðugildi hjá 17 fyrirtækjum á
Vesturlandi. Þar af voru 32 þeirra
starfa í fiskvinnslu. Rétt er að á-
rétta að ekki er víst að þeir sem
skráðir eru atvinnulausir hafi starf-
að í sömu atvinnugreinum og laus
störf eru í. HJ
Gjaldskrá
Höfða
hækkar
AKRANES: Stjórn Dvalarheimil-
isins Höfða á Akranesi hefur sam-
þykkt samhljóða að hækka gjald-
skrá fyrir dagvist og matsölu um
12% frá 1. október. Gjaldskráin
hefur verið óbreytt frá 1. október
2001 og er hækkunin nú miðuð
við hækkun neysluverðsvísitölu
síðustu fjögur ár. -hj
ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR
Límtré Vírnet ehf er öflugt og rótgróið íslenskt fyrirtæki sem hannar, framleiðir og selur vörur
í hæsta gæðaflokki fyrir íslenska byggingamarkaðinn. Saga þess nær allt aftur til 1956 þegar
Vírnet var stofnað í Borgarnesi. Framleiðsla fyrirtækisins fer fram í þremur verksmiðjum sem
eru; límtrésverksmiðja á Flúðum, völsun, saumframleiðsla, blikksmíði, járnsmíði,
rafmagnsverkstæði, sala og stjórnun í Borgarnesi og Yl- og Paneleiningaframleiðsla
í Reykholti í Bláskógabyggð. Fyrirtækið er með hönnunar- og ráðgjafadeild í Reykjavík
og innflutnings- og söludeild í Garðabæ. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 120 manns.
STARFSFÓLK ÓSKAST
Vegna mjög góðrar verkefnastöðu vantar okkur
hæft starfsfólk til eftirfarandi starfa.
Borgarnes
• Blikksmiði í blikksmiðju
• Járnsmiði / vélvirkja
• Rafvirkja
• Verkamenn
almenn blikksmiðjuvinna
almenn jánsmíði ásamt vélaviðhaldi
viðhald og nýlagnir
almenn verksmiojustörf
Fiúðir
• Smiði og verkamenn til framleiðslu og uppsetninga á límtréshúsum
Reykhoit Biáskögabyggð
• Verkamenn til verksmiðjustarfa við framleiðslu eininga.
Reykjavík
• Smiði og verkamenn til uppsetninga á límtréshúsum
• Tæknimenntaða starfsmenn til hönnunar og ráðgjafastarfa.
Umsóknum ber að skila á þar til gerðum eyðublöðum á heimasíðu okkar
limtrevirnet.is eða til Reynis Guðmundssonar, starfsmannastjóra.
Skilafrestur umsókna er til 24. september.
Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær sem trúnaðarmál.
Borgarnesi
Simi: 530 6000 • Fax: 530 6069
www.iimtrevirnei.is
l*U
JÉfít /