Skessuhorn - 14.12.2005, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005
^tttasunu^:
íbúaþing
á nýju ári
SUNNAN HEIÐAR: Hval-
fjarðarstrandarhreppur, Leirár-
og Melahreppur og Innri Akra-
neshreppur munu standa fyrir
íbúaþingi, laugardaginn 14.
janúar nk. að félagsheimilinu
Hlöðum. Þar mun íbúum sunn-
an Skarðsheiðar gefast kostur á
að hafa áhrif á stefnu nýs sveit-
arfélags sem verður til í vor
með sameiningu þessara hreppa
ásamt Skilmannahreppi. -mm
Óhappavika í
umferðinni
BORGARFJÖRÐUR: Nokk-
uð var um umferðaróhöpp í
umdæmi Borgarneslögreglu
liðna viku. Harður árekstur
tveggja bíla varð í Borgarnesi á
miðvikudag án þess að meiðsl
yrðu á fólki. Bílarnir skemmd-
ust þó mikið. Þá rann bíll út af
vegi sama dag og endaði í
skurði í Norðurárdal. Tvær bíl-
veltur urðu í umdæminu um
liðna helgi. Onnur varð á Vest-
urlandsvegi við Grundartanga
en hin á viðgerðarsvæðinu ofan
við Munaðarnes. Ekki urðu al-
varleg slys á fólki en kranabíl
þurfti til að fjarlægja bílana.
Viðgerðarkaflinn á þjóðvegin-
um frá söluskálanum Baulu og
upp fyrir Grafarkot ofan Mun-
aðarness hefur verið mjög
slæmur að undanförnu og hafa
myndast þar margar mjög djúp-
ar holur og varasöm “þvotta-
bretti.” Hefur lögreglan óskað
eftir því við Vegagerðina að
viðgerðarkaflinn verði lagaður
og hann merktur betur. Nokkur
óhöpp hafa orðið á þessum veg-
arkafla það sem af er vetri. Ráð-
gert var að viðgerðir hæfust þar
í gær og lagning varanlegs slit-
lags. -mm
Vefir skora hátt
VESTURLAND: Samkvæmt
nýlegri úttekt Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga á upplýs-
inga- og samskiptavefjum sveit-
arfélaga og opinberra aðila
kemur í ljós að af 70 vefjum
sveitarfélaga lendir vefur Akra-
neskaupstaðar í efsta sæti hvað
varðar nytsemi en í þeim flokki
lenti Grundarfjarðarvefurinn í
fjórða sæti og vefur Dalabyggð-
ar í því fimmta. Þegar innihald
var skoðað lendir vefur Akra-
ness í öðru sæti á eftir Reykja-
víkurborg. Vefirnir voru metnir
m.t.t. innihalds, nytsemi og að-
gengis fyrir fatlaða. Vefur
Borgarfjarðarsveitar kemst efst
á lista sveitarfélaga hér á Vest-
urlandi þegar aðgengi fyrir fatl-
aða er skoðað, lendir þar í
fimmta sæti. Allir þessir vefir
eru unnir og hýstir hjá Nepal
hugbúnaðarlausnum í Borgar-
nesi. Sambærileg könnun var
gerð á vefjum opinberra stofn-
ana. Þar lendir vefur Fjöl-
brautaskóla Snæfellsness í öðru
sæti yfir aðgengi. I flokknum
nytsemi er vefur Landmælinga
Islands í þriðja sæti opinberra
stofnana.
-mm
Línur teknar að skírast í framboðs-
málum í sameinuðu sveitarfélagi
Framboðsmál í sameinuðu sveit-
arfélagi sem til verður í vor úr
Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit,
Hvítársíðuhreppi og Kolbeins-
staðahreppi eru nú að byrja að taka
á sig mynd. Ljóst er að a.m.k. þrír
listar verða í kjöri, þ.e. listi Fram-
sóknarmanna, Sjálfstæðismanna
auk sameinaðs lista vinstri flokka
sem í tveimur síðusm sveitarstjórn-
arkosningum bauð fram í Borgar-
byggð í nafhi Borgarbyggðarlist-
ans. Þau pólitísku félög sem stóðu
að Borgarbyggðarlistanum síðast,
þ.e. Vinstri - grænir, Samfylking og
óháðir hafa ályktað um að vilji er
fyrir að halda áfram samstarfi fyrir
kosningar í nýju sameinuðu sveitar-
félagi. Oddviti Borgarbyggðarlist-
ans, Finnbogi Rögnvaldsson stað-
festi þetta í samtali við Skessuhorn.
Aðspurður kvaðst hann ekki hafa
gert það upp við sig hvort hann
sjálfur myndi gefa kost á sér á lista
fyrir næsm kosningar, en taldi það
alls ekki óhugsandi. Benti hann á að
hinsvegar væri það ljóst að ffam-
boðið myndi skipta um nafh í ljósi
aðstæðna og að sveitarfélagið sam-
anstæði af fjóram sveitarfélögum
sem í eina sæng fara í vor.
Eins og ffam hefur komið í frétt-
um hafa bæði Helga Halldórsdótt-
ir, oddviti Sjálfstæðismanna í Borg-
arbyggð og Asbjörn Sigurgeirsson
bæjarstjórnarmaður ákveðið að
gefa ekki kost á sér á lista fyrir
næsm kosningar. Björn Bjarki Þor-
steinsson í Borgarnesi sagðist að-
spurður ekki vera bú-
inn að gera það upp við
sig ennþá hvort hann
gæfi kost á sér, en sagði
það skýrast á allra
næstu dögum. For-
menn sjálfstæðisfélag-
anna beggja megin
Hvítár era þessa dag-
ana að ræða við menn
um framboð, þeir Ingi
Tryggvason norðan ár
og Karvel Karvelsson á
Hýrumel sunnan Hvítár. Karvel
sagðist í samtali við Skessuhorn
geta staðfest nöfn tveggja einstak-
linga sem gefi kost á sér en tók ffam
að vinna við uppstillingu og samráð
beggja sjálfstæðisfélaganna væri
eftir um uppröðun framboðslista.
Sagði hann að bæði Þórvör Embla
Guðmundsdóttir og Torfi Jóhann-
esson væra búin að gefa vilyrði fyr-
ir þátttöku, en Embla hefur undan-
farið kjörtímabil setið í sveitar-
stjórn Borgarfjarðarsveitar.
Nokkrar breytingar era fyrirsjá-
anlegar á þeim hópi fólks sem býð-
ur sig fram á lista Framsóknar-
flokks í héraðinu. I síðusm kosn-
ingum var einn þverpóhtískur listi
sjálfkjörinn í Borgarfjarðarsveit. I
Borgarbyggð hafa bæði Kolfinna
Jóhannesdóttir og Þorvaldur T
Jónsson, oddvitá listans ákveðið að
gefa ekki kost á sér á lista í samein-
uðu sveitarfélagi. Staðfesm þau það
bæði i samtali við Skessuhorn. Jafii-
ffamt sagðist Þorvaldur vona að
þau Finnbogi og Jenný Lind sem
sitja nú í bæjarstjórn gefi áffam kost
á sér þar sem slæmt væri ef allir
fulltrúar listans úr þessu sveitarfé-
lagi myndu hverfa af vettvangi
stjórnmálanna á sama tíma. Þegar
leitað var til framsóknarmannanna
sem nú sitja í sveitarstjórn Borgar-
fjarðarsveitar, þeirra Sveinbjörns
Eyjólfssonar oddvita og Bergs Þor-
geirssonar í Reykholti, gáfu þeir
báðir fremur jákvætt út á þátttöku
sína til ffamboðs yrði eftir því sóst.
„Eg er að hugsa málið og útiloka
ekki framboð," segir Bergur. Svein-
björn hafði þetta að segja: „Eg tel
líklegra en ekki að ég gefi kost á
mér til áframhaldandi þátttöku í
pólitík, en að sjálfsögðu ræðst það
af effirspurn fólks efrir sem hverjir
veljast á listann. Eg fagna hinsvegar
hverri smnd sem efnisleg málefhi
sameiningar þessara sveitarfélaga
fær í umræðu áður en ffamboðs-
málin taka hug manna allan.“
MM
Fjárveiting til fræðaseturs
í Stykkishólmi
I fjárlagafrumvarpi fyrir árið
2006 sem samþykkt var í síðustu
viku er framlag að upphæð 8 millj-
ónir króna „til að stofna fræðasetur
í Stykkishólmi,“ eins og sagði í
breytingatillögu meirihluta fjár-
laganefndar Alþingis. I greinargerð
sem Stykkishólmsbær sendi fjár-
laganefhd í haust er stofhun þessi
nefhd Háskólasemr Snæfellsness.
I greinargerðinni kemur frarn að
ætlunin sé að stofna rannsóknasetur
Háskóla Islands í Stykkishólmi.
Kemur ffam að gert sé ráð fyrir
stöðu eins náttúrafræðings, sem
hafði aðsetur undir sama þaki og
Náttúrastofa Vesmrlands og hefði
aðgang að bókasafni, rannsóknaað-
stöðu og búnaði hennar án endur-
gjalds. Segir að með slíkri samnýt-
ingu megi spara veralega í stofh- og
rekstrarkosmaði semrsins, auk þess
sem Náttúrastofan og slíkt semr
styrki hvort annað. „Náttúra svæð-
isins er geysilega fjölbreymt og rík á
heimsvísu og bjóða aðstæður upp á
rannsóknamöguleika, sem einungis
ímyndunaraflið takmarkar,“ segir
orðrétt í greinargerðinni.
I upphafi er gert ráð fýrir einu
stöðugildi sérfræðings sem mun
hafa akademíska stöðu við Háskóla
Islands og einhverja kennsluskyldu
en verður búsetmr í Stykkishólmi
og sinni starfi sínu þaðan. Kennslu-
skyldan muni fyrst og frernst verða
uppfyllt með því að taka á móti ein-
staklingum í framhaldsnámi eða
nemendahópum í grunnnámi við
Háskólann, sem koma í styttri eða
lengri námsferðir á svæðið.
Þá kemur ffarn í greinargerðinni
að rannsóknir á svæðinu hafi ffam
til þessa verið af ffekar skomum
skammti „og sýndi þekkingarskort-
ur á náttúranni sig berlega þegar
hörpudisksstofninn í Breiðafirði
hrandi nýverið og það sama má
segja um orsakir fækkunar sjófugla
á svæðinu síðustu ár. Með Háskóla-
setri Snæfellsness væri stdgið mikil-
vægt skref í þá átt að auka þekkingu
á náttúra svæðisins, öllum til hags-
bóta.“ HJ
Hópferðamiðstöðin - Vestfjarðaleið
ehf. tekur við sérleyfi um Vesturland
Hópferðamiðstöðin - Vestfjarða-
leið ehf. tekur við sérleyfisakstri á
Vesturlandi frá næstu áramótum.
Samningur þess efhis milli fýrir-
tækisins og Vegagerðarinnar hefur
verið undirritaður. Einnig tekur
fýrirtækið að sér áætlunarferðir á
Norðurlandi allt austur á Fljóts-
dalshérað. Samningurinn, sem er til
þriggja ára kemur í kjölfar útboðs
sem ffam fór í haust. Vegagerðin
greiðir fýrirtækinu á þriðja hundrað
milljónir króna sem greiðast í sam-
ræmi við efridir samningsins.
Að sögn Jóns Gunnars Borgþórs-
sonar, nýráðins ffamkvæmdastjóra
fýrirtækisins, hafa fulltrúar fýrir-
tækisins verið á ferðinni undanfarið
til að kynna sér þarfir þeirra sem
eiga efrir að njóta þjónustu þeirra.
Megin áhersla hafi verið lögð á
fólksflutningana og hvemig við-
halda megi háu þjónustustigi. Að
auki verði að sjálfsögðu reynt að
sinna öðram flutningum effir föng-
um.
Jón Gunnar segist vonast efrir
góðu samstarfi við íbúa, fýrirtæki
og stofnanir sem þurfa á þjónustu
fýrirtækisins að halda. Þessa dagana
er unnið að uppsetningu nýrrar
vetraráætlunar og verður hún
kynnt fljótlega. HJ
Ungnr rithöf-
undur í Evrópu-
keppni
BORGARFJÖRÐUR: Ingi-
björg Olöf Benediktsdóttir
nemandi í Varmalandsskóla var
fulltrúi Islands á evrópskri
verðlaunahátíð í París föstu-
daginn 9. desember sl. Sögurn-
ar era efrir grannskólanema frá
16 löndum Evrópu á ensku og
móðurmálinu. Islenska sagan,
Undarlegir atburðir, er eftir
Ingibjörgu Ólöfu, 14 ára.
Ingibjörg Ólöf tók þátt í sögu-
samkeppni SAFT, vakningar-
verkefhi á vegum Heimilis og
skóla - landssamtaka foreldra,
um jákvæða og öragga notkun
barna og unglinga á Netinu og
tengdum miðlum fýrr á þessu
ári og hlaut fýrstu verðlaun í
hópi 13-16 ára höfunda sem
sendu sögur inn í keppnina.
Dómnefnd valdi Ingibjörgu til
að vera fulltrúi SAFT og Is-
lands í París og sögu hennar
Undarlega atburði til birtingar
í verðlaunasagnabók sem gefin
er út í tilefni samkeppninnar.
-mm
Spyr um afla og
aflagjöld
ALÞINGI: Magnús Þór Haf-
steinsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins hefur lagt ffam
á Alþingi fýrirspurnir til Einars
Kristins Guðfinnssonar sjávar-
útvegsráðherra um afla og afla-
gjöld í Akraneshöfn. Óskar
þingmaðurinn svara við því
hver hafi verið mánaðarlegur
landaður afli eftir fisktegundum
frá 1. janúar 2000 til loka nóv-
ember 2005. Einnig hvaða skip
hafi landað þar og hve miklu af
hverri fisktegund þau hafi land-
að í hverjum mánuði á þessu
tímabili. Þá er óskað upplýsinga
um hver hafi verið aflagjöld í
Akraneshöfh, frá 1. janúar 2000
til loka nóvember 2005 reiknað
til núvirðis. Einnig hvort hlut-
fall innheimtra aflagjalda Akra-
neshafnar hafi breyst á tímabil-
inu, og ef svo er, hvenær það
hefur gerst og hvernig.
-hj
Efnahagsleg
geta hamli ekki
BORGARFJÖRÐUR: Al-
mennur fundur í Samfýlkingar-
félagi Borgarfjarðar sem hald-
inn var í Borgarnesi fyrir
skömmu samþykkti ályktun þar
sem lýst er yfir fullum stuðn-
ingi við framkomnar hugmynd-
ir um stofnun Menntaskóla
Borgarfjarðar. “Fundurinn
skorar á menntamálaráðherra
að veita skólanum nú þegar
starfsleyfi þannig að skólastarf
geti hafist haustið 2006. Fund-
urinn leggur jafnframt áherslu
á að jafnrétti til náms verði
tryggt óháð efnahagslegri getu
og að skólagjöld íþyngi ekki
nemendum umfram það sem er
í ríkisreknum skólum.”
-mm
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjamarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla mi&vikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þri&judögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þri&judögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánuði en krónur 900
sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór lónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Fréttaritarar: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is
Ófeigur Gestsson 892 4383 sf@simnet.is
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is