Skessuhorn - 14.12.2005, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005
SHSS'iíli©^
Bifrastarævintýrið heldur vissulega áfram
Nýtt rannsóknahús vígt og skrifað undir 5 ára samning um kennslu og rannsóknir
Síðastliðinn fimmtudagur var
stór dagur í sögu Viðskiptaháskól-
ans á Bifröst. Þá skrifaði mennta-
málaráðherra undir nýjan samning
milli skólans og ráðuneytisins um
rekstur og starfsemi hans næstu 5 ár
og vígði auk þess nýjasta húsið á
staðnum. Samningur þessi mun
skipta sköpum fyrir skólann enda
verður meiri fjármunum varið til
kennslu- og rannsóknastarfs á Bif-
röst en nokkru sinni fyrr.
Þorgerður Katrín Gtmnarsdóttir,
menntamálaráðherra gat þess í
ræðu sinni við þetta tækifæri að eft-
ir því væri tekið bæði í þekkingar-
samfélaginu og á Alþingi hversu
kröftugt starf færi fram við Við-
skiptaháskólann á Bifföst og gat
hún þess að sér væri jafnvel legið á
hálsi fyrir að umbuna skólanum
jafnvel meira en öðrum mennta-
stofnunum. Sagði hún það stað-
reynd að Bifrestingar hafi sannað
svo ekki væri um villst að hér væri á
ferðinni skóli í ffemstu röð á sínu
sviði og frá honum útskrifuðust
einstaklingar sem margir hverjir
sköruðu fram úr í þjóðfélaginu og
ffam hjá slíkum árangri yrði ekki
horff.
Ævintýri sem
við eigum öll
“Með þessum samningi er Bifföst
skapaður starfsgrundvöllur til
næstu ára með umtalsverði aukn-
ingu á fjárffamlögum til kennslu og
rannsókna. Samningurinn tryggir
að Biffastarævintýrið heldur áfram.
Það ævintýri sem hófs hér í hraun-
inu við Hreðavatn árið 1955 er ó-
trúlegt. Það hefur verið gefandi og
gaman að eiga þátt í þessu ævintrýri
undanfarin ár ásamt öllu því góða
fólki sem hér kennir og starfar.
Þetta ævintýri eigum við Biffesting-
ar öll saman,” sagði Runólfur A-
gústsson, rektor m.a. á fjölmennri
athöfn sem haldin var í tílefni vígslu
nýs rannsóknahúss og nemenda-
garða og undirritun samningsins
við menntamálaráðherra. Að öllum
ræðum loknum vígði menntamála-
ráðherra formlega nýja rannsóknar-
húsið og nemendagarðana og gaf
húsinu nafnið Hamragarðar.
Fjölnota hús
Húsið Hamragarðar, sem hannað
er af Steve Christer hjá Studio
Granda og byggt af Loftorku í
Borgarnesi, er einhver stærsti
áfangi í uppbyggingu þekkingar-
þorps og háskóla á Bifföst í 87 ára
sögu skólans. Nýbyggingin er um
3300 fermetrar og er í tvískiptu
eignarhaldi. Bifur ehf. er eigandi
rannsóknahússins en hluthafar í
Bifur eru Vesmrland hf og sveitar-
félög á svæðinu. Nemendagarðarn-
ir eru í eigu Vikrafells, eignarhalds-
félags Loftorku og Viðskiptahá-
skólans. Rtmólfur Agústsson þakk-
aði í ávarpi sínu samstarfsaðilum
sem komu að byggingu hússins fyr-
ir gott og gjöfult samstarf. Þar
þakkaði hann sérstaklega eigendum
hússins fýrir þeirra þátt en það eru
Vesturland hf, Sparisjóður Mýra-
sýslu, Borgarbyggð, Borgarfjarðar-
KoparkUdd hlið á Hamragörthim.
Um 200 umsóknir um
störf hjá Norðuráli á
Grundartanga
Um 200 umsóknir hafa borist
Norðuráli á Grundartanga í kjöl-
far þess að fyrirtækið auglýsti á
dögunum eftir starfsfólki. Eins og
fram hefur komið í fréttum
Skessuhorns mun störfum í fyrir-
tækinu fjölga um 50 eftir áramót-
in vegna stækkunnar verksmiðj-
unnar. Rakel Heiðarsdóttir, ffam-
kvæmdastjóri starfsmannasviðs
Norðuráls segir flestar umsókn-
irnar koma úr næsta nágrenni
verksmiðjunnar, en einnig af höf-
uðborgarsvæðinu. Þá koma einnig
umsóknir úr öðrum landshlutum
svo sem ffá Vestfjörðum að henn-
ar sögn.
Töluverð spenna hefur verið á
vinnumarkaði á suðvesmrhorninu
undanfarin ár. Rakel segir þennan
fjölda umsókna því mikla viður-
kenningu fýrir Norðurál sem
vinnustað. „Hér hafa menn lagt
mikla áherslu á að byggja upp
góðan og fjölskylduvænan vinnu-
stað og ég tel fjölda umsókna
staðfesta að það hefur tekist.”
Rakel segir að þessa dagana sé
unnið úr umsóknum og ráðningu
í öll störf verði lokið á næstu vik-
um.
m
MenntamálaráSherra, rektor, aðstoðarrektor, aðrir starfsmenn og gestirfylltu Hriflu, hátíðarsalinn á Bifróst.
Ktmráð Andrésson, forstjóri Loftorku gaf skólanum klukku með þakklœti fyrir gott sam-
starf við byggingu Hamragarða. Konráð ásamt Runólfi Agústssyni, rektor.
sveit, Hvítársíðuhreppur og
Loftorka. Að auki studdi Akranes-
kaupstaður bygginguna með mynd-
arlegum hætti.
Þá sagði Runólfur: “Þetta hús
mun hýsa rannsóknamiðstöð skól-
ans, rannsóknasetur í húsnæðismál-
um, rannsóknasetur verslunarinnar,
rannsóknasetur í vinnurétti og jafn-
réttismálum og Evrópufræðasetur.
Oll eru þessi setur fjármögnuð í
samstarfi við atvinnulíf og einkaað-
ila. Þau eru liður í stóreflingu rann-
sókna við háskólann en í ár erum
við að verja um 105 milljónum
króna til rannsókna og rannsókna-
tengdrar starfsemi. A næsta ári ætl-
um við að gera enn betur og unnið
er að stofnun tveggja nýrra rann-
sóknasetra; rannsóknaseturs í
skattarétti og rannsóknaseturs í
Asíuffæðum. I þessu húsi verður
aðstaða fyrir öll þessi rannsóknaset-
ur og starfsfólk þeirra. Að auki
verður þar aðstaða fýrir meistara-
nema og lessalur með um 60 lesbás-
um fyrir nemendur skólans. Þá vilj-
um við gjarnan að húsið skapi
einnig ramma utan um ffumkvöðla
innan og utan skólans með aðstöðu
og ráðgjöf.”
Vill efla tengsl
íbúa og skólanna
Fjölmargir aðilar kvöddu sér
hljóðs við vígslu hússins. Svein-
björn Eyjólfsson, oddviti Borgar-
fjarðarsveitar flutti ávarp fyrir hönd
þeirra sveitarfélaga sem hlut áttu að
máli við byggingu rannsóknahúss-
ins. Beindi hann orðum sínum að
Biffestingum sérstaklega vegna
þeirrar elju sem þeir hafa sýnt við
hreint ótrúlega uppbyggingu skóla
og háskólaþorps á Bifröst sem telur
nú hátt í 800 íbúa. Sagði hann m.a:
“Bifrestingar láta engar venjur eða
staðla stöðva sig í viðleitni sinni til
að styrkja staðinn og starfið sem þar
er unnið. Þeir vita það manna best
að þegar þeir hætta að fljúga þá
hrapa þeir og ég er viss um að Jónas
frá Hriflu er ánægður með ykkur.
Þetta hús sem hér er vígt í dag er
gott dæmi um þessa ffamkvæmda-
gleði og elju. Það er ekki svo langt
síðan forseti Islands, herra Olafur
Ragnar Grímsson sótti Bifföst heim
og tók hér fýrstu skófhistunguna.
Fyrstu skóflustungu að húsi sem
ekki var búið að fjármagna, varla
búið að hanna og alls ekki að teikna.
Það er ekki svo ýkja langt síðan að
hér var huggulegur framhaldsskóli
með heimavist. Nú er hér háskóli
sem er farinn að gera sig gildandi á
alþjóðamarkaði og hér er risið þorp
með hundruðum íbúa.”
Sveinbjöm vék einnig að sam-
starfi sveitarfélaganna við háskól-
ana í héraðinu og sagði að oft virk-
uðu þessi háskólasamfélög einangr-
uð ffá næramhverfi sínu; íbúum
héraðsins. Taldi hann það ekki síð-
ur sök heimamanna en skólafólks-
ins. “Eg held að sveitarfélögin og
háskólarnir ættu sameiginlega að
huga betur að þessum samfélags-
lega þætti og kynna fýrir íbúum þá
kosti sem eru í boði í háskólaþorp-
unum á Hvanneyri og Bifföst.”
Fjöregg héraðsins
Stækkun samfélagsins á Bifföst er
eins og áður segir ævintýri líkust.
Þar búa nú tæplega 800 manns í há-
skólaþorpi sem einungis taldi um
tíunda hluti þess fýrir rúmum ára-
tug síðan. Heildarfjöldi nemenda
við skólann er nú 670 og þar af
stunda 150 manns nám á meistara-
stigi. Skólinn og starfsemin á Bif-
röst skapar um 200 ársverk í Borg-
arfjarðarhéraði. Margir eiga e.t.v.
erfitt með að gera sér fulla grein
fýrir þýðingu þessa fýrir byggð í ná-
grenninu og samfélagið í heild
sinni, að svo öflug stofnun er risin.
En ásamt háskólanum á Hvanneyri
er óhætt að segja að þar séu á ferð-
inni fjöregg héraðsins sem heima-
menn eiga að hlúa að svo vel sem
kostur er.
MM
Gretti hyggingastjóra Hamragarða var þakkað sérstaklega fyrir framlag sitt til bygg-
ingarinnar. Gjöfin var óvenjuleg, en þar sem Grettir er kunnurfyrir áhuga sinn á
hestum var honum gefinn folatollur fyrir eina af hryssum sínum undir ekki ómerkari
stóðhest en Þórodd.