Skessuhorn - 14.12.2005, Side 14
>
14
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005
gBéSSUHÖígKI
m
m
m.
fc
Aðventusamkoma í
Breiðablild
Aðventusamkoma var haldin að
Breiðabliki í Eyja- og Miklaholts-
hreppi föstudaginn 9. desember og
var hún mjög vel sótt enda mikil
tónlistarveisla. Þar komu fram
skólakór Laugargerðisskóla undir
stjórn Steinunnar Pálsdóttur,
kirkjukór Kolbeinstaðar- og Fá-
skrúðabakkasókna undir stjórn
Zsuzsanne Budai og einnig sáu
nemendur úr Laugargerðisskóla
um hljóðfæraleik og ljóðalestur.
Aðalræðumaður kvöldsins var Gísli
Marteinn Baldursson en hann er
ættaður frá Snorrastöðum í Kol-
beisstaðahreppi. Séra Guðjón
Skarphéðinsson stjórnaði samkom-
unni og er þetta annað árið í röð
sem hann fær þjóðkunnan einstak-
ling til að halda ræðu á aðventu-
kvöldi. Kvenfélagið Liljan sá svo
um kaffið og meðlætið eftir allan
sönginn.
ÞSK
Jólatréð á Akratorgi
Lattgardaginn 3. desember voru Ijósin tendruð ájólatrénu i Akratorgi á Akranesi, en tréð er g/öffrá vinabie Akumesinga, Tönder í
Danmörku. Meðfylgjandi myndir voru teknar viðþetta tækiferi. Dagskráin var hefðbundin. Guðmundur Pálljánsson biýarstjóri á-
varpaði bœjarbúa, Ólína Jónsdóttirfulltrúi Norrana félagsins flutti ávarp ogferði Skagamönnum tréð,Jólasveinar mættu á staðinn
og útdeildu mandarínum að ógleymdum Gísla S Einarssyni, harmonikkuleikari sem stjómaði söng og léttu gríni. Ljósm. MM
Jólatréð
ljómar í
Hólminum
Síðastliðinn sunnudag var
komið að þeirri árvissu athöfh að
tendra ljósin á jólatrénu sem
vinabær Stykkishólms í Noregi,
Drammen færir bænum að gjöf.
Var fjölmenni mætt í Hólmgarð,
lúðrasveitin lék jólalög og jóla-
sveinar voru komin á stjá og
skemmtu bömunum.
Ljósm: DSH
Klettaborgarkrakkar
skemmta foreldninum
Foreldraskemmtun var haldin Myndin sýnir krakkana á Sjónar-
fyrir nokkrum vikum í leikskólan- hóli flytja atriði úr Latabæ og Kalla
um Klettaborg í Borgarnesi. á þakinu. Ljósrn: Þóra Sif
Oll 6 ára böm fá
endurskinsborða ffá skátum
Skátahreyfingin hefur nú dreiff
til allra 6 ára barna í landinu end-
urskinsborða ásamt sérstöku riti
um öryggi barna í umferðinni.
Jafhframt fylgja hverju blaði tveir
límmiðar til að líma í rúður bif-
reiða sem áminningu um að keyra á
réttum hraða. Þetta er 15. árið
sem skátarnir vinna þetta verkefhi
undir heitdnu “Látum ljós okkar
skína” og hafa því á þessum tíma
verið dreift um 70 þúsund endur-
skinsborðum til barna í landinu. I
áratug var dreift endurskinsborða
sem lá yfir axlir bamanna en nú
hafa verið útbúnir vandaðir upp-
handleggs endurskinsborðar með
frönskum lás og fær hvert barn 2
borða senda. Talið er að slíkir
borðar hafi lengri lífdaga en axlar-
borðinn þar sem ekki þarf að taka
hann af þegar farið er úr útifatnað-
inum. Samhliða þessari sendingu
til allra 6 ára barna í landinu er
einnig árlega framleitt stórt vegg-
spjald sem sent er í alla grannskóla
landsins og setja flestir það upp til
að minna börnin og foreldra þeirra
á mikilvægi þess að bera endurskin
í svartasta skammdeginu, en það er
marg sannað að það dregur veru-
lega úr slysum á gangandi vegfar-
endum. Inni í ritinu eru síðan tveir
límmiðar sem ætlaðir eru í aftur-
rúður bifreiða til áminningar til
öloimanna um að aka ekki of greitt
“Avallt viðbúinn ... og á réttum
hraða!”
Til að fjármagna verkefnið er
leitað til fjölmargra aðila. Aðal
styrktaraðih borðanna er Vátrygg-
ingarfélag Islands - VIS, en jafn-
framt hafa fjölmörg fyrirtæki og
stofiianir styrkt verkefnið. Þá er
samhliða verkefninu og því til
stuðnings rekið árlegt bílnúmera-
happdrætti þar sem öllum bifreiða-
eigendum er sendur happdrættis-
miði. Dregið er í happdrættinu 31.
desember. A 15. ári verkefnisins
Látum ljós okkar skína, á næsta ári
er stefnt að frekari útvíkkun þessa
umferðarátaks skátahreyfingar-
innar og verður farið í samstarf við
VIS þar um. Aldrei er of mikil á-
hersla lögð á öryggi barna í um-
ferðinni og eru foreldrar sérstak-
lega hvattir til að tryggja að börnin
séu ávallt vel merkt með endur-
skini yfir vetrarmánuðina.
Aðventutónleikar SPM
Arlegir aðventutónleikar Spari- Þar kom söng- og tónlistarfólk víða
sjóðs Mýrasýslu fóru fram í Reyk- að úr héraðinu fram og söng fyrir
holtskirkju sl. fimmtudagskvöld. fullu húsi. Ljósm: BÞ
Jú, þegar krakkamir í tónlistarskólanum og lúðrasveitin í Stykkishólmi norpa krók-
loppin í desember, í norðan kulda með nótumar jjúkandi allt í kring, og spila jólalögin
i ogfyrir utan búðir ogfyrirtæki í Hólminum. Jú, þá eru jólin alveg að koma í
Stykkishólmi. Ljósm. DSH