Skessuhorn


Skessuhorn - 01.03.2006, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 01.03.2006, Blaðsíða 9
SSESSlíHÖSSí MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 9 Perlan aS dœla efni í höfnina. Framkvæmdir við land- fyllingu Stóru-bryggju D/S Perla frá Björgun ehf. kom vegna landfyllingar við Stóru- til Grundarfjarðar í gærmorgun. bryggju. Um 10 þúsund m3 af efhi Perla er aðallega notuð til dýpkana, af hafsbotni fara í verkið. landfyllingar og annarra skyldra Eftir að Perlan hefur lokið við verkefna. Skipið ber 300 m3 af efni verkið tekur Berglín ehf. í Stykkis- og getur dælt efni upp af 20 m dýpi. hólmi við og lýkur við landfylling- Skipið er 50 m að lengd og verður una. Verklok eru áætluð 1. júní í í Grundarflrði um það bil hálfan sumar. mánuð við vinnu við undirlag Af grundarfjordur.is Tíu ár firá undirrit- un samnmga um Hvalfj arðargöng Síðastliðinn miðvikudag, 22. febrúar, var liðinn nákvæmlega ára- tugur frá því samningar voru und- irritaðir um fjármögnun og fram- kvæmdir við Hvalfjarðargöng. Þetta gerðist við hátíðlega athöfn á Hótel Sögu og þar voru með penna á lofti fulltrúar fjölda innlendra og erlendra fyrirtækja og fjármála- stofnana, ráðherrar og forystu- menn Spalar. Spölur, félagið sem á og rekur Hvalfjarðargöng, var stofhað rétt- um fimm árum áður en samningar voru undirritaðir eða í janúar 1991. Spölur fagnaði því fimmtán ára af- mæli fyrr á þessu ári. Einn maður hefur setið samfellt í stjórn félags- ins allt ffá stofun: Gísli Gíslason, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi og núverandi hafnarstjóri Faxaflóa- hafna, sem vel að merkja er stærsti hluthafi í Speli. Aður en samningar tókust upp- haflega um Hvalfjarðargöng höfðu átt sér stað erfiðar og býsna dramatískar þreifingar og viðræður um fjármögnun ganganna beggja vegna Atlantshafsins og hér heima í ein tvö ár. Mönnum létti því að vonum þegar endar náðust saman og unnt var að hefja sjálfar fram- kvæmdirnar í Hvalfirði vorið 1996. Gert var ráð fyrir að opna göngin fyrir umferð fyrri hluta árs 1999 en verkið gekk svo vel og farsællega að Davíð Oddsson, þáv. forsætisráð- herra, gat klippt á borðann við suð- urmunna ganganna 11. júlí 1998. MM MOBEL STILLHOLT116-18 • AKRANESI SÍMI431 3333 - model.ak@simnet.is Rauði kross íslands Akranesdeild Skyndihjálparnámskeið Rauði kross íslands Akranesdeild heldur skyndihjálparnámskeið dagana 6. 7. og 9. mars kl. 19-22 ef næg þáttaka fæst. ÖUum er heimil þátttaka, námskeiðsgjaLd er kr. 5.000. Félagar í Akranesdeild Rauða krossins þurfa ekki að greiða þátttökugjald. Markmið: Að auka þekkingu og færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum i skyndihjálp. Að auka færni í að meta einkenni algengra sjúkdóma og áverka. j Nemendur FVA athugið, námskeiðið er metið sem 1 eining. Þátttaka tilkynnist í síma 431-2270 frá kl: 8-14. r Borgarfjörður - Frumkvöðlasmiðja Verkefnið Sóknarfæri til sveita á vegum Bændasamtakanna og Frumkvöðlafræðslan ses. bjóða upp á 26 tíma námskeið um viðskiptatækifæri og hagnýtingu þeirra á Hvanneyri, dagana 10 og 11 mars og 17 og 18 mars (kl 14-18 á föstud. og 10-19 á laugard) ef næg þáttaka fæst. Námskeiðið er fyrir fólk með áhugaverðar hugmyndir, fólk sem er þegar í rekstri en vill auka við kunnáttu sína og/eða fólk sem langar að leita að viðskiptatækifærum. Ekki er gerð krafa um menntun eða reynslu, en áhugi og jákvætt hugarfar er skilyrði. Kenndar verða aðferðir við að koma auga á tækifæri í umhverfinu. Farið yfir helstu grunnatriði sem þarf að kunna skil á til að skrifa viðskiptaáætlun sem virkar. Allir gera stutta viðskiptaáætlun á námskeiðinu, en hún verður eingöngu unnin á glærur og kynnt í lok námskeiðs. Fólki gefst hér tækifæri til að vinna með eigin viðskipa-hugmyndir og allir fá tækifæri til að tjá sig í lokin frammi fyrir hópnum. Meginefní námskeiðsins er: • Hvernig má koma auga á viðskiptatækifæri í eigin umhverfi og hvernig má nýta þau í ábataskyni? • Mótun stefnu og markmiðasetning • Grundvallaratriði við gerð viðskiptaáætlunar • Þróun, markaðsmál, fjárhagslegar áætlanir, fjármögnun. • Sala- og samningatækni. Tjáning. • Tækni við að kynna og "selja" viðskiptahugmyndir. Á námskeiðinu er blandað saman fyrirlestrum, tímaverkefnum (æfingum), heimaverkefnum, hlutverkaleikjum og hagnýtri þjálfun við t.d. notkun kynningarforrits, meðferð talna o.fl. Eftir því sem kostur er fá nemendur aðstoð á milli námskeiða (með aðstoð tölvupósts). Þátttökugjald: íbúar á lögbýlum 8.000 kr, aðrir greiða 30.000 kr. Skráning fer fram hjá Árna Jósteinssyni í síma 563-0367 eða gegnum netfangið aj@bondi.is Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Sóknarfæris til sveita á www.bondi.is Opel Astra árg. 1999 Kr. 13.100 á mán í 48 mán Renault Megane árg 1997 Kr. 9.400 á mán í 48 mán ENGIN LANTOKUGJOLD Honda CR-V árg 1998 kr.15.200 á mán í 48 mán VAXTALAUSIR DAGAR 3. - 6. mars. Hyundai Starex árg 1998 Kr. 19.700 á mán í 48 mán Renault Kangoo árg 2003 Kr. 18.500 á mán í 48 mán Bílás, umboðsaðili B&L, Þjóðbraut 1, Akranesi. Komdu og gerðu frábær kaup. 431 2622 www.bilas.is Bílás Akranesi S: 431 2622 Þjóðbraut 1 Umboðsadili B&L • Akranesl

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.